Víkurfréttir - 15.12.1988, Qupperneq 51
tf/KUR
jíiUU
JÓLABLAÐ 1988
Eitt ár með spenn-
ing og reynslu
„Gegnum kennslu, biblíu-
lestur og bæn hefur það lokist
upp fyrir mér að það að vera
kristinn er ekki eitthvert
einkamál heldur að við höfum
ábyrgð á fólkinu í kringum
okkur. Mig langar til að kynn-
ast Guði betur og miðla því
sem ég hef lært til annara,"
segir Linda Sjöfn Sigurðar-
dóttir frá Keflavík. Þetta ár
stundar hún nám við Lagets
Bibel- og Evangeliseringssent-
er (LBES) Hald í Mandal í
Noregi.
LBES er öðruvísi biblíu-
skóli. Við viljum mæta þörf-
inni fyrir íleiri menntaða sjálf-
boðaliða hjá Kristilegu skóla-
hreyfingunni og öðrum kristi-
legum félögum. Nemendurnir
fá mikla verklega þjálfun. Á
þann hátt geta þau þjálfað sig
upp til forstöðumannshlut-
verks.
Markmiðið til ársins 2000 er
að gera Jesú sýnilegan í stú-
dentaheiminum og á skólalóð-
inni. Einmitt þetta fengu nem-
endurnir að spreyta sig á í
haust er þau fóru í tíu daga
ferð, í litlum starfshópum, um
Noreg. I haust var Linda í
Lillehammer og hefur hún
ákveðið að fara til Englands
eftir áramótin og kynna sér
Evrópukristniboð.
Nemendurnir á Hald mæta
stöðugt nýjum persónulegum
áskorunum. Á þann hátt upp-
götva þau hve mikið í þeim býr
og að Guð getur notað þau.
Þau finna að verkleg kennsla
gefur þeim frjálsræði og öryggi
til að starfa.
Fyrri nemendur skólans
hafa sjálfir mætt hinni miklu
þörf fyrir kristniboðun í
Evrópu með því að allur skól-
inn hefur farið í kristniboðs-
ferð til ólíkra landa í Evrópu.
Reynslan af ástandinu í Evr-
ópu er mikilvæg til að við get-
um séð okkar ábyrgð á okkar
eigin landi. Á meðan kristin-
dómurinn fer hnignandi í hin-
um vestræna heimi fer hann
stöðugt vaxandi í öðrum lönd-
um.
Allt þetta gefur nemendun-
um sóknarvilja til að taka virk-
an þátt í þjónustu á móti árinu
2000, segir í frétt frá skólan-
um.
Betra verð fyrir vel
meðhöndlaðan fisk
Fréttabréf Ríkismats sjáv-
arafurða hefurgert víðreist um
Suðurnesin fyrir síðasta tölu- >
blað og meðal þeirra sem Rík-
ismatið heimsótti var áhöfn
Sigurborgar KE, þar sem hún
var að vinna við að ganga frá
afla í gáma sem sigla átti með
til Englands.
Hjalti Sigurðsson, annar
stýrimaður, sagði aðspurður
við fréttabréfið að áhöfnin
hefði tamið sér vönduð vinnu-
brögð um borð og oftast væri
fiskinum raðað í körin. Sagði
hann að alltaf væri farið vel
með aflann um borð, hvort
sem aflinn ætti að fara í gáma
eða ekki. Reynslan af fisk-
mörkuðunum væri sú, að betra
verð fengist fyrir vel með-
höndlaðan afla.
Ytri Njarðvíkurkirkja
Laugardagur:
Jólatónleikar Tónlistarskóla
Njarðvíkur kl. 14.
Sunnudagur:
Barnastarf kl. 11.
Útskriftarathöfn Fjölbrautaskóla
Suðurnesja kl. 14.
Aftansöngur og aðventuhátíð kl.
18. Kirkjukórinn syngur aðventu-
og jólasálma undir stjórn Oddnýj-
ar Þorsteinsdóttur organista. Ein-
söng syngur Theodóra Þorsteins-
dóttir. Kjartan Már Kjartansson
leikur á fiðlu. Víxllestur og bæna-
gjörð.
Sóknarprestur
„Hvernig í andsk ... nær maður ríkissjónvarpinu út úr þessum sjón-
varpstækjum og kemur myndbandstækjunum inn?“, gæti Ástþór B.
Sigurðsson í Frístund verið að hugsa á þessari mynd, sem var tekin í
tilefni opnunar Frístundar í Hólmgarði. Ljósm.: hbb.
Linda Sjöfn Sigurðardóttir
Sendum Suð-
urnesjamönnum
bestu jóla- og
nýársóskir, með þökk
fyrir samstarí'ið á árinu
sem er að líða.
Shell-stööin, Fitjum
Fitjanesti
Fitjanesti - bón- og þvottastöð
Tómstundaráð
Miðneshrepps
auglýsir eftir starfsmanni í hluta-
starf. Um er að ræða gæslustörf á
„diskótekum“ og „opnu húsi“. Nán-
ari upplýsingar veita Víðir í síma
37441 og Sigurður í síma 37681. Um-
sóknarfrestur rennur út 23/12 ’88.
Ekta Þorláksmessuskata
Humar, rækja og skötuselur, ásamt ýmsu öðru
góðgæti fyrir hátíðamar.
Hringbraut 92
Keflavík
ATH
Tökum að okkur að
vakúmpakka jóla-
skötuna og fiskinn
til vina og vanda-
manna erlendis.
Tökum pantanir.