Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.1988, Qupperneq 55

Víkurfréttir - 15.12.1988, Qupperneq 55
VHKUR jutUt JÓLABLAÐ1988 Már bestur hjá UMFK ÍBK með körfurfyrir þá yngstu Nú býðst yngstu körfu- boltamönnunum gott tækifæri til að fá körfur við sitt hæfi. Körfuknattleiksráð ÍBK mun fyrir þessi jól á nýjan leik hefja sölu á minni körfum fyr- ir yngsta körfuknattleiksfólk- ið okkar. Hér er um að ræða körfu, sem ÍBK byrjaði að selja fyrir tveimurárum síðan, og mæltist mjög vel fyrir. Körfurnar fást hjá Stefáni Kristjánssyni, Melteigi 16, Keflavík, sem er við á kvöldin og um helgar og síminn hjá honum er 12474. Ungmennafélag Keflavíkur hélt nýverið uppskeruhátíð sína í félagsheimilinu við Sunnubraut. Kosnir voru knattspyrnumenn ársins í hverjum flokki og íþróttamað- ur ársins í hverri deild innan félagsins. Kjörið fór á þann veg að knattspyrnumenn ársins voru kjörnir: í 6. flokki Haukur Ingi Guðnason, í 5. flokki Adam Ingason, í 4. flokki Jóhann Steinarsson, í 3. flokki Ólafur Pétursson, í 2. flokki Brynjar Harðarson, í yngri flokki kvenna Eva Steinsdóttir og í eldri flokki Björg Hafsteins- dóttir. Knattspyrnumaður ársins var kjörinn Gestur Gylfason en hann stóð sig sem kunnugt er með mikilli prýði í 1. deild- inni í sumar. Handknattleikskona UMFK var kjörin Anna María Sveinsdóttir og handknatt- leiksmaður Gísli Jóhannsson. Unnur Sigurðardóttir fékk verðlaun fyrir framfarir í frjálsum íþróttum og júdó- maður ársins var kjörinn Gylfi Gylfason. Að síðustu var Már Her- mannsson krýndur frjáls- íþróttamaður ársins og jafn- framt íþróttamaður UMFK árið 1988. Már hlaut þennan titil einnig árin 1985 og 1986. Hefur Már því hlotið titilinn þrisvar sinnum, eða oftar en nokkur annar frá því byrjað var að útnefna íþróttamann UMFK árið 1978. ÍBK stakk Eldingar- drengina af Keflvíkingar unnu góðan sigur á Aftureldingu í íþróttahúsi Keflavíkur á laugardag með 32 mörkum gegn 20. í leikhléi var UMFA yfir, 12:10. „Það gekk ekkert né rak í fyrri hálfleik en í þeim seinni tókum við okkur saman í andlitinu,“ sagði Gísli Jó- hannsson, fyrirliði Keflvík- inga. ÍBK skoraði 3 fyrstu mörkin á tveimur mínútum og komst strax yfir og eftir það var ekki aftur snúið. Keflvíkingar juku forskotið jafnt og þétt og skoruðu 20 mörk gegn 8 í seinni hálfleik, þar af mörg úr hraðaupp- hlaupum. ,,Gamla“ brýnið, Jón Ol- sen, var markahæstur hjá ÍBK með 9 mörk, þar af 5 úr vítum, Gísli Jóhannsson skoraði 7 og þeir Kristinn Óskarsson og Jóhann Júl- íusson 4 hvor, aðrir minna. Fadness og Teitur í körfu fyrir austan Kris Fadness, þjálfari UMFN, og Teitur Órlygs- son, leikmaður með liðinu, fóru austur til Egilsstaða, Eskifjarðar og Eiða, þar sem þeir kynntu körfuknattleik og sýndu. Var þeim geysivel tekið af heimamönnum en áhugi á körfuknattleik mun vera mjög mikill þarna, þó svo að þeir keppi ekki mikið. Fóru þeir félagar, Fadness og Teitur, á vegum NIKE umboðsins og Körfuknatt- leikssambandsins. ÍBK og UMFN lentu saman í þriðja sinn Það verður nágrannaslag- ur í fyrstu umferð bikar- keppni Körfuknattleikssam- bands íslands á Suðurnesj- um, en risarnir tveir, IBK og UMFN, drógust saman og það í þriðja sinn á jafn mörg- um árum. I síðustu tvö skipti hafa Njarðvíkingar slegið IBK út úr keppninni. Grindvíkingar lentu á móti Haukum. POWER MOOC SOUNO 1P 2»8T 2PHA ACL» CLUB 6CLECT SW1WOSHOT T /1 • •• / / Jolagjofin í ar proQotfj handa golfurum og eins þeim sem minna eða ekkert kunna. Frábær tölva. ARP s.f. HEILDSALA-SMÁSALA SÍMAR: 11142 - 11559 Raggi Margeirs í Fram Ragnar Margeirsson, knatt- spyrnumaður úr Keflavík og landsliðsmaður, hefur ákveðið að hafa félagaskipti og leika með Fram úr Reykjavík næsta keppnistímabil. Ragnar lék með Keflavíkurliðinu síðasta sumar, en áður hefur hann einnig leikið með Frömmur- um, m.a. seinni part sumars 1987. Spegill, spegill, herm þú mér! Mikið úrval af speglum og speglaflísum, skrautspeglum. - margir möguleikar. Gerum föst verðtilboð. Gler í myndarammann, gler á borðið. Borðplötur. GLERSALAN í KEFLAVÍK Norðurtúni 2

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.