Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 2. D E S E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 292. tölublað 103. árgangur
BRÝTUR HÚN
ÞYKKASTA
GLERÞAKIÐ?
HUNDRAÐ
ÁRA
VEGSEMD
ALDARAFMÆLI SINATRA 102Á FUNDI MEÐ CLINTON 46
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að laun lækna
og hjúkrunarfræðinga á Íslandi séu
orðin hærri en í Danmörku, Noregi
og Svíþjóð. Það hefur áhrif á þennan
samanburð að gengi íslenskrar krónu
hefur styrkst og þessar stéttir samið
um launahækkanir á Íslandi.
Laun þessara tveggja stétta í lönd-
unum fjórum eru borin saman í Morg-
unblaðinu í dag.
Miðað er við tölur á vefjum hag-
stofa Danmerkur, Noregs og Svíþjóð-
ar og á vef fjármála- og efnahags-
ráðuneytisins á Íslandi. Þær tölur eru
síðan framreiknaðar miðað við spár
Efnahags- og framfarastofnunarinn-
ar, 2015-16, og kjarasamninga hér.
Til dæmis eru samanlögð meðal-
laun lækna á Íslandi nú ríflega 1.400
þúsund krónur á mánuði, eða um 400
þúsund krónum hærri en í Dan-
mörku, sem er í öðru sæti.
Eru þá borin saman heildarlaun
lækna á Íslandi og föst mánaðarlaun í
Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, telur samanburð á heildar-
launum á Íslandi og grunnlaunum í
hinum löndunum þremur gefa skýrari
mynd en samanburður á grunnlaun-
um. Greiðslur fyrir yfirvinnu og
vaktaálag séu enda mun stærri hluti
heildarlaunagreiðslna á Íslandi.
Hæstu launin á Íslandi
Laun lækna og hjúkrunarfræðinga á Íslandi hafa hækkað mikið undanfarið
Styrking krónu breytir samanburði við laun í Danmörku, Noregi og Svíþjóð
MLaunin á Íslandi »20
Komin undir 15 krónur
» Hrun norskrar krónu eftir
mikið verðfall á olíu þýðir að
hlutfallslega hafa laun þar
lækkað mikið í krónum.
» Miðgengi norskrar krónu var
14,8 kr. eftir gærdaginn, en var
23,5 kr. í lok janúar 2013.
Ólétt kona er í hópi þeirra 55 sýr-
lensku flóttamanna sem væntanlegir
eru til landsins fyrir áramót. Til stóð
að hópurinn kæmi hingað fyrir jól en
hugsast getur að ferðinni seinki um
einhverja daga.
Undirbúningur komu þeirra
gengur vel í þeim þremur sveitar-
félögum þar sem þau munu setjast
að. Börnin, sem eru 34 talsins og á
aldrinum 1-17 ára, munu fljótlega
eftir komuna fá aðlögun í skólum á
Akureyri, í Hafnarfirði og Kópavogi
og fullorðna fólkinu mun bjóðast at-
vinna. Fólkinu verður þó öllu gefið
svigrúm til að ná áttum áður en að
þessu kemur og því veitt sálfræði-
aðstoð og annar stuðningur. „Fólk
sem er að koma úr erfiðum að-
stæðum fer ekkert beint í skóla,“
segir Kristín Sóley Sigursveins-
dóttir, verkefnastjóri á Akureyri.
Fólkið mun búa í leiguíbúðum og
hefur Rauði krossinn að mestu náð
að safna nauðsynlegum húsbúnaði.
Enn vantar þó t.d. reiðhjól fyrir
börnin en slík farartæki verða oftast
eftir þegar lagt er á flótta.
34 börn
og eitt á
leiðinni
Morgunblaðið/Sunna
Fátækt Sýrlensku börnin komu
flest allslaus til Líbanons.
Mögulega verða tafir
á komu flóttafólksins
MBarnungar brúðir »38-40
Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað í fyrsta sinn á vetrinum í gærkvöldi.
Litið var á opnunina sem generalprufu fyrir helgina. Lyftur voru prófaðar
og annar búnaður. Fjögurra sæta lyftan, Kóngurinn, hefur skemmst í eld-
ingum að undanförnu og er lokuð. Drottningin er hins vegar í fullum
rekstri og hún var notuð óspart. Ekki voru margir við opnun lyftanna í gær
en það fjölgaði á svæðinu þegar leið fram á kvöld. Opið var til klukkan níu.
Generalprufa fyrir helgina í Bláfjöllum
Morgunblaðið/Eggert
Jólaverslunin hófst fyrr en venju-
lega með verslunardögunum „svört-
um föstudegi“ og „rafrænum mánu-
degi“. Þess vegna voru fyrstu
dagarnir í desember rólegri en oft
áður, samkvæmt úttekt sem Rann-
sóknasetur verslunarinnar gerði fyr-
ir Samtök verslunar og þjónustu.
Ágætt hljóð er í kaupmönnum
sem rætt er við. Gunnar Guðjónsson
í Gleraugnamiðstöðinni og formaður
Samtaka kaupmanna og fasteigna-
eigenda við Laugaveg, segir þó að
lokanir fyrir bílaumferð um Lauga-
veg um helgar fari illa í menn. »16
Kaupmenn ósáttir við
lokanir á Laugaveginum
Morgunblaðið/Ómar
Jól Skoðað í búðir á Skólavörðustíg.
Jólaverslunin
fór fyrr af stað
12
GLUGGAR TIL JÓLA
Í Þingeyjarsýslu er vaxandi áhugi
á heimavinnslu afurða og ýmsu
handverki. Fyrir jólin eru haldnir
markaðsdagar víða og búvörur og
handverk haft til sölu.
„Það er örugglega framtíð í
vinnslu afurða í smáum stíl heima og
okkar markmið er að vera með
gæðavörur,“ segir Jóhanna Magnea
Stefánsdóttir, bóndi í Vallakoti í
Þingeyjarsveit. Hún og maður henn-
ar, Þórsteinn Rúnar Þórsteinsson,
reykja kjöt á haustin og sperðla og
silung allt árið. Þá taka þau allar
nautatungur sem til falla og reykja
og hafa verið að gera tilraunir með
ýmislegt annað hráefni á búinu.
Hjónin gerðust nýlega félagar í
samtökunum Beint frá býli og eru að
fóta sig í heimavinnslunni. »22
Hjónin í Vallakoti reykja kjöt og tungur
og fikra sig áfram í heimavinnslu búvara
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Vinnsla Þórsteinn Rúnar Þórsteinsson
gefur smakk af hráu jólahangikjöti.