Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 4

Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Hreindýrið er mjög vinsælt,“ segir Jón Örn Stefánsson, eigandi Kjöt- kompanís, aðspurður hvaða kjöt verði á borðum hjá landsmönnum í ár. Villibráðin virðist heilla landann en Jón Örn segir reyktar og grafnar gæsa- og andabringur seljast tölu- vert sem og ýmiskonar paté sem verslunin býr til. Margir kjósa að borða nauta- kjöt yfir hátíðarnar eins og nauta- lund eða beef wellington, að sögn Jóns Arnar, og er stöðug eftirspurn eftir því. „Sala á öllu kjöti hefur aukist, hvort sem það heitir villibráð, nauta- kjöt, lambakjöt eða hreinlega hakk í hamborgara,“ segir Jón Örn enn- fremur. „Ef ég greini einhverja breytingu þá finnst mér fólk fara úr þessu reykta og saltaða og yfir í það létta,“ segir Jón Örn. Hreindýrið sem selt er í Kjöt- kompaníinu er frá Finnlandi. Lund- in kostar 18.900 krónur kílóið og inn- anlæri 16.500 krónur. „Við erum með hefðbundna sænska jólaskinku, sem er sívinsæl, og hamborgarhryggurinn líka, og það er einnig góð sala í hreindýra- kjöti,“ segir Björn Christensen, eig- andi Kjöthallarinnar, aðspurður um jólakjötið í ár. Af villibráð segir hann að hrein- dýrakjötið hafi komið í staðinn fyrir rjúpuna. „Hér áður fyrr seldum við mikið af íslenskri rjúpu áður en veiðibannið var sett,“ segir Björn. Hreindýrakjötið í Kjöthöllinni er sænskt og kostar 1.295 krónur kíló- ið. Í matvöruversluninni Víði er villibráð ekki til sölu í ár. Þeim mun meira úrval er af hefðbundnum jóla- mat eins og hamborgarhrygg og hangikjöti. Kalkúnn er einnig á boð- stólum. Að sögn Eiríks Sigurðs- sonar, eiganda Víðis, er boðið upp á íslenskan og erlendan kalkún og bendir hann á að sá íslenski sé ein- staklega bragðgóður. Hreindýrakjötið sækir á Morgunblaðið/Jim Smart Jólamatur Villibráð verður á borð- um margra landsmanna.  Kjötsalan eykst jafnt og þétt Hjörtur J. Guðmundsson Laufey Rún Ketilsdóttir „Ég vil bara lýsa yfir ánægju minni með að við séum komin á þennan stað,“ sagði Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga, í samtali við mbl.is eftir að undirritað var endanlegt sam- komulag á milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun þjónustu við fatlaða í Safnahúsinu í Reykjavík í gærdag. Samhliða var kynnt skýrsla verkefn- isstjórnar um faglegt og fjárhagslegt mat á yfirfærslu málaflokksins til sveitarfélaganna. Fyrir hönd ríkisins skrifuðu undir samkomulagið þau Bjarni Bene- diktsson, fjármála- og efnahags- ráðherra, Eygló Harðardóttir, fé- lags- og húsnæðismálaráðherra, og Ólöf Nordal innanríkisráðherra. Fyrir hönd sveitarfélaganna skrif- uðu undir þeir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga, og Karl Björnsson fram- kvæmdastjóri. Telja aukna fjármuni duga Gert er ráð fyrir að samkomulagið leiði til þess að framlög til þjónustu við fatlað fólk á hendi sveitarfélag- anna aukist um allt að 1,5 milljarða króna á ári. Annars vegar með því að tímabundin 0,04% hækkun útsvars- hlutfalls sveitarfélaga, sem ákveðin var á síðasta ári, verði lögfest sem hluti af hámarksútsvari þeirra og hins vegar með hækkun framlaga í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem hlut- fall af skatttekjum ríkissjóðs. Halldór sagði ljóst að ákveðnir hlutir stæðu út af í samkomulaginu líkt og notendastýrð persónuleg að- stoð (NPA) en þeir yrðu ræddir áfram og lending fundin í þeim efn- um líka. „Við erum á því að þessi upphæð, einn og hálfur milljarður sem bætist við tekjur sveitarfélag- anna, dugi til að fjármagna þá aukn- ingu sem átt hefur sér stað frá árinu 2011,“ sagði Halldór. Þjónustan í sem bestan farveg Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra sagði við undirrit- unina að það sem skipti mestu máli væri að þjónustan við fatlað fólk væri í sem bestum farvegi og það strand- aði ekki á samskiptum milli stjórn- sýslustiga hvernig sú framkvæmd tækist. Áhersla væri því lögð á að hafa góð samskipti við sveitarstjórnarstigið. „Ég er ekki síst að horfa til þess að núna með nýjum lögum um opinber fjármál þá þurfum við að koma sam- an á hverju ári og fara yfir fjár- hagsleg samskipti, verkefnaskipt- inguna og það hvernig við ætlum að deila opinberum tekjum á milli okkar og ég vonast til þess að það sem við höfum náð að leiða til lykta og hefur staðið út af að undanförnu, það hvernig við komum frá því geti verið gott upphaf að góðu samstarfi inn í lengri framtíð um þessi mál,“ sagði Bjarni í samtali við mbl.is. Strandi ekki á samskiptum stjórnsýslustiga  Framlag til þjónustu við fatlað fólk eykst um allt að 1,5 milljarða króna Sátt Samkomulag tókst með ríki og sveitarfélögum um fjármögnun. Þjónusta við fatlað fólk » Samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um endanlega niðurstöðu um fjármögnun þjónustu sveitarfélaga við fatl- að fólk undirritað í gær. » Skýrsla verkefnisstjórnar um faglegt og fjárhagslegt mat á yfirfærslu málaflokksins til sveitarfélaga kynnt samhliða. » Framlag til málaflokksins eykst um allt að 1,5 milljarða króna. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að óróinn í Evr- ópu vegna atvinnuleysis, hryðju- verkaárása og flóttamannastraums sé farinn að hafa aukin áhrif á eftirspurn eftir ferðalögum til Íslands. Þetta segir Sigrún Unnsteinsdótt- ir, annar eigenda bílaleigunnar Snail- .is, og vísar til fjölda fyrirspurna frá erlendum viðskiptavinum. Mikil aukning er í bókunum hjá Snail.is milli ára og er næsta sumar þegar orðið þéttbókað. Vegna mikill- ar eftirspurnar verður fyrirtækið með 50 bíla í leigu á næsta ári. Bílunum breytt í „svefnbíla“ Sigrún og eiginmaður hennar, Árni Guðnýjarson, stofnuðu bílaleiguna ár- ið 2010 og voru þá með sex bíla. Reksturinn hefur vaxið á hverju ári og bætast við 14 bílar á næsta ári. Bíl- arnir eru sendibílar af ýmsum stærð- um sem hefur verið breytt í „svefn- bíla“ fyrir ferðalög. Viðskiptavinirnir eru fyrst og fremst erlendir ferðamenn. „Það er töluverð aukning í bókun- um milli ára. Ég held líka að ástandið í heiminum hafi aukin áhrif á val ferða- manna á Íslandi. Fólk sem talar við okkur spyr í auknum mæli um trygg- ingar gegn þjófnaði. Ég hef rætt við fólk í Evrópu, var til dæmis í Póllandi og Þýskalandi í haust. Fólk sem ferðast á bílaleigubílum í Evrópu er nú að lenda í allskonar vandræðum. Það virðist vera aukning á þjófnaði á bílum og innbrotum í bíla. Þegar fólk spyr um þjófnaðartryggingu á Íslandi kemur það af fjöllum þegar það heyr- ir að við bjóðum ekki slíkar trygging- ar. Við höfum aldrei lent í þjófnaði. Fólk segist vera brennt eftir að hafa ferðast á bílaleigubílum í Evrópu. Við fórum að heyra þetta fyrst síðasta sumar.“ Ekki bara náttúran sem laðar Sigrún segir suma viðskiptavini fyrirtækisins kaupa tryggingu ytra áður en þeir koma til Íslands. „Fólk vill í auknum mæli koma hingað af því að það telur landið öruggt. Fólk talar um að það sé ekki aðeins náttúran sem laðar að heldur líka að Ísland sé í tíu efstu sætunum yfir örugga ferðamannastaði. Fólk segir okkur að það álíti sig miklu öruggara með fjölskyld- una sína á Íslandi en einhvers staðar í Suður-Evrópu. Þeg- ar maður fer dýpra ofan í málin fær maður þá um- ræðu,“ segir Sigrún. Vegna hryðjuverkaárás- anna í París hefur ör- yggisviðbúnaður verið hertur mjög víða í Evrópu. Morgunblaðið/Ómar Rekstur í örum vexti Bílafloti Snail.is hefur stækkað hratt á síðustu árum. Bílarnir eru geymdir inni yfir veturinn. Ferðamenn telja sig öruggari á Íslandi  Eigandi bílaleigu telur óróa í Evrópu hafa áhrif á bókanir Vefsíða snail.is hefur legið niðri að undanförnu vegna árása tölvuþrjóta á netþjón. „Síðan okkar www.snail.is var hýst á netþjóni sem varð fyrir árás, líklega vegna þess að hún var á sama stað og fyrirtæki tengt hvalveiðum,“ segir Sigrún sem orðið hefur fyrir nokkrum óþægindum vegna þessa. Hún segir alla umfjöllun um Ísland hjálpa til við markaðs- setningu landsins. Tónlistar- myndband Justins Biebers og nýlegt myndband frægra hjóna í indverska kvikmyndageir- anum, Bollywood, séu dæmi um landkynningu. „Það er rætt um að 400 milljónir Indverja séu komnir í millistétt. Það má e.t.v. búast við því að landkynning af þessu tagi skili yngri ferða- mönnum til lands- ins,“ segir Sigrún. Urðu fyrir tölvuárás VEFSÍÐAN LÁ NIÐRI Sigrún Unnsteinsdóttir 4.-18. MARS 2016 SUÐUR AFRÍKA CAPE TOWN Ævintýraferð til Suður Afríku þar sem ferðast verður frá Cape Town um vín- löndin upp til Klein Karoo og meðfram ströndinni. Fararstjórar ferðarinnar eru Bói og Villi sem bjuggu þar um tíma. NÁNAR Á UU.IS Innifalið er flug, gisting, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn, 20 kg taska og handfarangur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.