Morgunblaðið - 12.12.2015, Side 11

Morgunblaðið - 12.12.2015, Side 11
okkar, það er á einhvern dularfullan hátt í genetísku minni okkar. Lífið er miklu dularfyllra en við gerum okkur grein fyrir. Ég ber í mér allt sem mamma, pabbi, ömmur, afar og aðrir forfeður skiluðu mér í gegnum genin.“ Tímarnir breyst til batnaðar Í þessari nýjustu bók Þórunnar bregður fyrir mörgum sterkum kon- um, þetta er mikil kvennasaga, mæðgnasaga, systrasaga og vin- kvennasaga. „Ég ólst upp meðal kvenna, við erum fimm systurnar í hópi sjö al- systkina. En á mínum bernskuárum var stelpuheimur og strákaheimur sitt hvor heimurinn og það er ótrú- lega gaman að sjá hvað tímarnir hafa breyst mikið til batnaðar. Það er gaman að skoða kvennasöguna í þessari bók og það er frábært fyrir konur af minni kynslóð að hafa lifað aukin kvenréttindi og sjá þau ger- ast. Til dæmis finnst mér gaman að sjá stríðsmálaðar blondínur núna sem lögregluforingja á Íslandi. Litla barnið í mér, þetta gamla, hrekkur í kút, rétt eins og þegar ég lenti í fyrsta sinn hjá kvenlækni á slysó, þá hugsaði ég: „Ha, þessi litla stelpa í græna sloppnum, er hún læknir?“ Þannig hittir maður sína eigin for- dóma.“ Tabú tengd klofsvæðinu Þórunn segir að það hafi verið gaman fyrir menntaskólastelpu og unga konu að upplifa hinn kraft- mikla hippatíma og þá vakningu sem honum fylgdi. „Hippabyltingin, sem ég tók þátt í, gekk meðal annars út á það að afneita ríkjandi tísku og fara yfir í meiri rómantík. Þá vaknaði fal- legur stuðningur við þriðja heiminn, sem ég áttaði mig ekkert á fyrr en eftir á. Hipparnir voru með aftur- hvarf til fortíðar, þeir vildu vefa sín eigin klæði, vildu ekki vera háðir kapítalisma heimsins. Fötin sem hipparnir klæddust, batik og hand- gerðar hippamussur, voru til að sýna samstöðu með menningar- heimum þriðja heims, indíánum, Afríkumönnum og fleirum. Við vor- um í uppreisn gegn staðlaðri og las- inni vestrænni hugmyndafræði, við risum upp gegn því að allir væru klæddir í eins jakkaföt og konurnar í óþægilegum tískuklæðum.“ Hippatímanum fylgdi líka frelsi í ástamálum og tilraunir með hug- víkkandi efni. Var Þórunn aldrei ef- ins um að hún vildi opna ókunnu fólki, lesendum bókarinnar, sýn inn í hennar innstu persónulegu mál? „Ég er orðin algerlega ónæm fyrir þessu og hef ekkert til að skammast mín fyrir. Er hægt að gera meira en tala um sífilis hjá ömmu og afa? Það var mál sem hafði ofboðslega mikil áhrif á mína fjölskyldu án þess að ég vissi, af því þetta var þaggað niður þar til ég fann það í bréfum fyrir þremur ár- um. Þetta var mikið tabú, af því þetta tengdist klofsvæðinu. Kristninni fylgdi svo mikil kynbæl- ing og konur voru lokaðar inni, og eru því miður enn lokaðar inni víða um heim. Ég vil leggja mitt af mörkum til að berjast gegn kynbæl- ingu. Mál sem tengjast klofsvæðinu eiga ekki að vera feimnismál.“ Rekum dimma skugga burt Þórunn segist löngu búin að læra að það sé best að vera „org- inal“, eins og maður er. „Ég hvet fólk til að vera það sjálft. Sem betur fer er miklu meira umburðarlyndi en áður og komin alls konar heiti á öllum þessum syndrómum sem gera okkur sér- stök. Þetta eru genetískar gjafir, og álög. Þegar ég var ung áttu allir að vera eins, og konur voru skelfilega kúgaðar. Hávaxnar konur gengu í keng og voru með bogið bak, en núna rigsa ungu stelpurnar um á háum hælum, stoltar af hæð sinni.“ Þórunn er mikil talskona já- kvæðninnar og hún segir það miður hversu oft hafi verið gert grín að Pollýönnu. „Það ætti að gera hana að dýr- lingi. Nú hefur heila-líffræðin sýnt fram á að þess meira sem maður ákveður að hugsa um góða hluti og velur það fagra framyfir það ljóta, þess meira eykst virknin í heilastöð- inni fyrir innan ennið þar sem gleðin býr. Ef það væru heiðnir tímar þá ætti að reisa Pollýönnu hof. Og við færum þangað til að sækja í okkur kraft til að draga hvítu skuggana til okkar og reka þá dimmu í burtu.“ Æskan 23 ára sólbrún ævintýrasnót í Mexíkó, eitt besta ár Þórunnar. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið lau. 10-22, sun. 13-18 Nýtt kortatímabil DIMMALIMM Úrval af Jólagjöfum, Jólafötum Úlpur Kápur Útigallar Húfur Lambúshetur Náttföt Náttkjólar DimmalimmReykjavik.is Gjöfin hennar Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 www.selena.is • Næg bílastæði Selena undirfataverslun Undirföt Náttföt Sloppar - Nýtt kortatímabil - Opið alla daga til jóla Gjafakort Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Jólagjöfin hennar Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Flottar sokkabuxur og leggings Austurveri | Háaleitisbraut 68 | sími 553 3305 FRÁBÆRT ÚRVAL PILS - PEYSUR - BUXUR - BOLIR - NÁTTFATNAÐUR Meyjarnar Fallegu jólagjafirnar færðu hjá okkur Skoðið flottu fötin á friendtex.is GjafakortOpið laugardaga í desember kl. 12-16 Bonito ehf. • Friendtex • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is Opið alla virka daga kl. 11:00-17:00, laugardaga kl. 12:00-16:00. Mikið úrval af primaloft jökkum fyrir dömu og herra, einnig hálfsíðar kápur. gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Náttfatnaður og nærfatnaður frá Calvin Klein
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.