Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 18

Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Það er alltaf fjör og gleði á aðventu- helgistundum Íslendinga í Hull og London á Englandi og á því var ekki breyting um liðna helgi. „Þetta var skemmtilegt að vanda, byrjunin á jólunum hjá okkur,“ segir Inga Lísa Middleton, formaður íslensku sóknarnefndarinnar í London. Nefndin mætir árlega með ís- lenska kórinn, organista og prest á aðventuhelgistundina og jólaballið í Hull, sem fór fram í dansk- færeysku sjómannakirkjunni. „Eins og venjulega sungum við líka íslensk jólalög í lestinni við góðar undirtektir,“ segir Inga Lísa. Að helgistundinni lokinni var slegið upp íslensku jólaballi, þar sem jólasveinarnir Hurðaskellir og Stúfur komu í heimsókn. Daginn eftir var sambærileg íslensk að- ventuhelgistund í Sænsku kirkj- unni í London. Hópur barna og unglinga bar inn kertaljós, nokkur þeirra lásu ritningarlestra og jóla- guðspjall og sungnir voru íslenskir aðventu- og jólasálmar. Sr. Sig- urður Arnarson leiddi helgihaldið, íslenski kórinn í Lundúnum söng undir stjórn Helga Rafns Ingvars- sonar. Elísabet Þórðardóttir lék undir á orgel og píanó. Íslendinga- félagið sá síðan um jólaballið á eft- ir. „Þetta er mjög skemmtileg hefð og heldur samfélaginu saman,“ seg- ir Inga Lísa. Vilborg Gunnlaugsdóttir hefur lengi starfað með Freyjunum, fé- lagsskap íslenskra kvenna á Húmbrusvæðinu. Hún segir að ís- lenska samfélagið í Hull og ná- grenni leggi mikið upp úr því að viðhalda þessum hefðum og stundin hafi verið notaleg. „Fjölskyldurnar halda vel saman og það er góð sam- staða og samvinna hjá fólkinu,“ segir hún. Bætir við að það sé alltaf ánægjulegt að fá kórinn og prest- inn í heimsókn. Öflugt starf Jón Aðalsteinn Baldursson bisk- up var ráðinn prestur Íslendinga í Bretlandi 1989 og þá kom hann ís- lensku sóknarnefndinni í London á laggirnar. Hann gegndi embættinu í 19 ár. Sigurður Arnarson tók við af honum 2004 og var til 1. desem- ber 2009, þegar embættið var lagt niður. Sóknarnefndin hélt starfinu áfram með stuðningi frá íslensku þjóðkirkjunni og lúthersku kirkj- unum í Bretlandi, einkum kirkj- unum frá Skandinavíu og Eystra- saltsríkjunum. Helgi Rafn Ingvarsson, doktorsnemi í tón- smíðum við Guildhall School of Mu- sic and Drama, hefur verið kór- stjóri undanfarin fjögur ár. „Söfnuðurinn hefur haldið úti góðu starfi,“ segir Sigurður, en frá því prestsembættið var lagt niður hafa Jón, Sigurður og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir skipst á að sinna fjórum messum á ári í Lond- on og einni í Hull. „Það er dásam- legt að taka þátt í þessu með þeim og halda tengslunum við fólkið,“ áréttar Sigurður. Ljósmynd/Helgi Rafn Ingvarsson London Frá aðventuhelgistundinni í sænsku kirkjunni, þar sem Íslendingar fjölmenntu. Jólin byrjuð hjá Íslend- ingum í Hull og London  Gleði á íslenskum aðventuhelgistundum og jólaböllum Ljósmynd/Vilborg Gunnlaugsdóttir Hull Hurðaskellir og Stúfur mættu á jólaballið og skemmtu börnunum. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Ég tel enga þörf á að breyta lög- unum. Þau byggjast fyrst og fremst á tilskipun frá ESB. Ef hætt verður með íblöndunarefni í eldsneyti þá munum við menga meira. Við gætum mjög auðveldlega aukið framleiðslu okkur til að anna allri eftirspurn með 5% íblöndun í alla díselolíu,“ segir Sigurður Eiríksson, einn eigenda Ís- lensks eldsneytis ehf., sem hefur ver- ið að framleiða lífdíselolíu úr repju. Fyrirtækið er einnig að prófa sig áfram með íblöndunarefni úr þör- ungaræktun, sem bæði innlendir og erlendir fjárfestar hafa sýnt áhuga á, m.a. eitt af stóru olíufélögunum hér á landi. Sigurður segir of snemmt að segja til um hvaða olíufélag sé um að ræða, viðræður séu á lokametrunum. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu liggur fyrir frumvarp fjög- urra þingmanna um breytingar á lög- um um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi. Haft var eftir Sigríði Á. Andersen, einum flutnings- manna, að lögin væru vanhugsuð og búin að valda íslenskum neytendum óþarfa kostnaði og skaða. Samkvæmt lögunum, nr. 40/2013, verða sölu- aðilar eldsneytis m.a. að tryggja að minnst 5% af orkugildi heildarsölu eldsneytis til notkunar í samgöngum skuli vera endurnýjanlegt eldsneyti. Metanól frá CRI á Reykjanesi hefur ekki reynst góður kostur til íblönd- unar og hafa íslensku olíufélögin flutt inn etanól frá finnska fyrirtækinu Neste, til að standast kröfur laganna, með miklum tilkostnaði. Finnska efn- ið er unnið úr pálmaolíu en íblönd- unarefni úr þörungum er m.a. unnið úr koltvísýringi og heitu vatni. Auka- afurðir eru fullnýttar, m.a. í dýrafóð- ur. Einnig er hægt að búa til etanól úr hratinu með smá íblöndun af glýs- eríni er til fellur við olíuframleiðslu. Íslensk framleiðsla ekki öll eins Sigurður segist geta tekið undir þá gagnrýni að metanól sé ekki hentugt íblöndunarefni. Ekki sé hins vegar hægt að setja alla íslenska fram- leiðslu undir einn hatt, það sé eins og líkja saman appelsínum og kart- öflum. Sigurður segir afurð Íslensks elds- neytis hafa staðist allar kröfur og gefist vel hjá þeim aðilum sem byrj- aðir eru að nota íblöndunarefnið, t.d. rútufyrirtækið Gray Line Iceland og Landsvirkjun. Gray Line keypti ný- verið 30% hlut í fyrirtækinu og kín- verskir fjárfestar hafa einng sýnt áhuga, líkt og kom fram í Morgun- blaðinu nýverið. Þá hefur íslenskt ol- íufélag, sem fyrr segir, sýnt fyrir- tækinu mikinn áhuga. „Okkar framleiðsla í dag er aðal- lega repjuolía en þörungaolía er framtíðin. Við ættum að geta annað allri eftirspurn eftir íblöndun hér á landi. Metanól verður aldrei notað sem íblöndunarefni,“ segir Sigurður, sem gerir sér vonir um að á næstu ár- um verði framleiðsla á þörungaolíu komin á fullt skrið í verksmiðju fyrir- tækisins á Reykjanesi. Aukin mengun ef hætta á íblöndun  Eitt stóru olíufélaganna hefur sýnt Íslensku eldsneyti ehf. mikinn áhuga Valgeir Sigurðsson, rithöfundur og blaða- maður, lést 8. desem- ber sl., 88 ára gamall. Valgeir fæddist 23. mars árið 1927 í Fremri-Hlíð í Vopna- fjarðarhreppi og ólst þar upp. Hann var sonur hjónanna Sig- urðar Þorsteinssonar, og Guðrúnar Sigríðar Sigurjónsdóttur. Hann átti þrjú syst- kini og tvö uppeld- issystkini sem öll eru látin. Eftirlifandi eiginkona Valgeirs er Sigríður Einars Sveinsdóttir kenn- ari. Saman eignuðust þau soninn Svein Valgeirsson prest í Dóm- kirkjunni. Stjúp- dóttir Valgeirs er Þórný Perrot. Árið 1957 flytur Valgeir til Reykja- víkur og frá 1965 var hann búsettur í Kópavogi. Hann starfaði m.a. sem blaðamaður á Tím- anum í ein 12 ár og var skjalavörður í Alþingi frá 1979 til starfsloka 1997. Hann var einn af stofnendum Holl- vinafélags Rík- isútvarpsins. Hann var höfundur fjögurra viðtalsbóka auk þess sem ljóð, viðtöl og greinar eftir hann hafa birst í fjölda rita. Andlát Valgeir Sigurðsson Skógræktarfélag Mosfellsbæjar stendur fyrir sinni árlegu jólatrjáa- sölu í Hamrahlíðarskógi. Opið verð- ur frá klukkan 10 til 16 um helgina og verða jólasveinar á ferðinni báða dagana kl. 13. Í skóginum getur fjölskyldan sag- að sér alíslenskt jólatré fyrir jólin en einnig eru til söguð tré á staðnum. Í Hamrahlíð hafa verið ræktuð tré í rúm fimmtíu ár. Skógurinn er við Vesturlandsveg í Úlfarsfelli í Mos- fellsbæ. Skógurinn blasir við þegar Vesturlandsvegur er ekinn. Jólatrjáasala hafin í Hamrahlíðarskógi Eyrarrósin verður veitt í tólfta sinn snemma árs 2016, fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið viður- kenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Tíu verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar ásamt peningaverðlaunum og flugmiðum frá Flugfélagi Íslands. Handhafi Eyrarrósarinnar hlýtur verðlaun að upphæð 1.650.000 krónur. Frú Dorrit Moussaieff, forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar. Umsóknum skal fylgja Lýsing á verkefninu Tíma- og verkáætlun Upplýsingar um aðstandendur Fjárhagsáætlun Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. janúar 2016 og verður öllum umsóknum svarað. Þær skulu sendar með tölvupósti til Listahátíðar í Reykjavík á netfangið eyrarros@artfest.is Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Listahátíðar í síma 561–2444 og á vefsvæði Eyrarrósarinnarwww.listahatid.is/eyrarrosin Eyrarrósin 2016 auglýsir eftir umsóknum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.