Morgunblaðið - 12.12.2015, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
SVIÐSLJÓS
Atli Vigfússon
Laxamýri
„Þetta er skemmtilegt og byrjaði
vegna áhuga okkar á vinnslu af-
urða og eldun á góðu hráefni. Við
höfum lengi verið að stússa í
svona fyrir okkur sjálf, en á sínum
tíma unnum við bæði í kjöt-
vinnslum.“
Þetta segir Jóhanna Magnea
Stefánsdóttir, kúabóndi í Vallakoti
í Þingeyjarsveit, en hún og maður
hennar, Þórsteinn Rúnar Þór-
steinsson, eru nýlega orðin félagar
í samtökunum Beint frá býli og
hafa um nokkurt skeið verið að
fóta sig í heimavinnslu búfjár-
afurða o.fl.
Markaðsdagur í sveitinni
„Við reykjum kjöt á haustin og
auk þess sperðla og silung allt ár-
ið. Þá tökum við allar nautatungur
sem falla til og reykjum þær auk
þess að gera líka tilraunir með
ýmislegt hráefni og það er mjög
gaman að því,“ segir Jóhanna, en
nú á dögunum var haldinn mark-
aðsdagur í sveitinni og komu mjög
margir til þess að sjá það sem er
á boðstólum frá Vallakotsbúinu.
Jóhanna Magnea og Þórsteinn
Rúnar eru með nokkuð stórt
kúabú og hafa í ýmsu að snúast,
en áhuginn á heimavinnslu hefur
alltaf verið að aukast og því var
ákveðið að slá til. Þau eru einnig
með kindur og sperðlarnir eru all-
ir gerðir úr kindakjöti úr Vallakoti
og nágrannabæjum þar sem
fjárbúið er ekki mjög stórt.
Sperðlarnir eru án bindiefna og
eftir gömlum uppskriftum sem
þau kynntust í sínum uppvexti, en
þau eru bæði uppalin í sveit.
Mikilvægt að kjötið meyrni
Á kúabúinu fellur ýmislegt
spennandi til og má þar nefna
nautatungurnar sem þau reykja
og er Þórsteinn Rúnar reykmeist-
arinn á bænum. Hann reykir við
tað sem þau hjónin þurrka sjálf og
í sumar var byggt nýtt reykhús í
Vallakoti sem þau eru að fá vottun
á til þess að þau megi selja reykt-
ar afurðir.
Ábrystir eru einnig mjög vinsæl
vara sem mikið fellur til af í Valla-
koti enda bera margar kýr á
hverju ári. Þær þarf að frysta og
síðan eru þær seldar í flöskum til
neytenda.
Nautakjötið er allt skorið í stór
stykki strax eftir slátrun gripa og
öllu kjötinu er pakkað í lofttæmd-
ar umbúðir. Þannig er það látið
meyrna í allt að 20 daga í kæli og
síðan skorið og pakkað í neytenda-
umbúðir. Þau eru með lærðan
kjötiðnaðarmann sem kemur alltaf
til þeirra til þess að úrbeina og til
að tryggja að allt sé rétt gert.
Mjög góður rómur hefur verið
gerður að þessari aðferð og þykir
kjötið sérlega vel verkað og
bragðgott.
Hreinar afurðir án aukaefna
Jóhanna Magnea hefur einnig
mikinn áhuga á niðursuðu ýmiss
konar og býr til marmelaði o.fl.
sem hún verið að selja á markaðs-
dögum. Þar hefur hún lagt mjög
mikið upp úr umbúðum og má
segja að hún skreyti hverja
krukku. Hún kaupir rauðrófur og
rauðkál til þess að sjóða niður og
er með fjölbreytt úrval gjafa-
pakkninga í matvörunni. Fjalla-
grösin eru t.d. í sérstökum pokum
merktum Vallakoti.
Í Þingeyjarsýslu hefur verið
vaxandi áhugi á heimavinnslu af-
urða sem og handverki öllu og fyr-
ir jólin eru markaðsdagar haldnir
víða þar sem búfjárafurðir og ým-
islegt handverk tengt landbúnaði
er til sölu. „Það er örugglega
framtíð í vinnslu afurða í smáum
stíl heima og okkar markmið er að
vera með gæðavörur. Hreinar af-
urðir án aukaefna sem neytendur
vita hvaðan koma,“ segir Jóhanna
Magnea í Vallakoti brosandi og
segir að þau hjón séu bjartsýn á
framhaldið í heimavinnslunni.
Vaxandi áhugi á heimavinnslu
Hjónin á kúabýlinu Vallakoti í Þingeyjarsveit feta sig áfram í heimavinnslu afurða Komin í sam-
tökin Beint frá býli Ábrystir og marmelaði Reykja kjöt, tungur, sperðla og silung í nýju reykhúsi
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Vallakot Gamlar uppskriftir í heiðri hafðar. Jóhanna Magnea Stefánsdóttir, bóndi í Vallakoti, með hangikjöt og
stóra sperðla sem eru gerðir eftir gamalli sveitauppskrift. Bóndi hennar, Þórsteinn Rúnar, er reykmeistarinn.
Markaðsdagur Þórsteinn Rúnar Þórsteinsson gefur gestum að smakka
hrátt jólahangikjöt. Íshildur Rún Haraldsdóttir 10 ára fylgist forvitin með.
Skreyttar krukkur Það er margt
bragðgott og fallegt að finna í hill-
unum hjá Vallakotshjónum.
Krossgátubók ársins 2016 er kom-
in í verslanir en bókin kemur út
ár hvert fyrir jólin. Þetta er 33.
árgangur bókarinnar.
Krossgátubókin er 68 síður og
eru gáturnar bæði fyrir nýliða í
fræðunum og þá sem lengra eru
komnir.
Lausnir annarrar hverrar gátu
eru aftast í bókinni. Forsíðu-
myndin er að venju eftir Brian
Pilkington teiknara. Hún er af
Bjarna Benediktssyni fjármála-
ráðherra.
Krossgátubók ársins 2016 fæst í
blaðasölustöðum landsins. Útgef-
andi er sem fyrr Ó.P.-útgáfan ehf.,
Grandagarði 13, Reykjavík, en að-
aleigandi hennar er Ólafur Páls-
son. Prenttækni ehf. prentaði bók-
ina.
Krossgátubók árs-
ins 2016 komin út
Opinn fræðslu-
fundur um heil-
ann verður hald-
inn í fyrir-
lestrasal
Íslenskrar erfða-
greiningar,
Sturlugötu 8 í
Reykjavík, í dag,
laugardag,
klukkan 14 til
15.30.
Kári Stefánsson, læknir og erfða-
fræðingur, Engilbert Sigurðsson,
prófessor í geðlækningum, Auður
Jónsdóttir rithöfundur og Jón Kal-
man Stefánsson rithöfundur halda
erindi um heilann. Boðið verður
upp á kaffi og piparkökur frá kl.
13:30. Allir eru velkomnir.
Opinn fræðslu-
fundur um heilann
Kári
Stefánsson
Laugardaginn 12. desember klukk-
an 11 kemur Stekkjarstaur í Þjóð-
minjasafnið en hann er fyrstur
bræðra sinna til að koma til
byggða. Í kjölfarið koma sveinarnir
hver af öðrum í safnið eins og þeir
hafa gert frá árinu 1988. Jólasvein-
arnir skemmta gestum með söng og
skemmtisögum með fróðlegu ívafi.
Allir velkomnir en hópar eru
beðnir að bóka heimsóknir á jóla-
sveinadagskrána á netfangið
kennsla@thjodminjasafn.is.
Stekkjarstaur mætir
í Þjóðminjasafnið
STUTT
Glæsilegur
kvenfatnaður
& fylgihlutir
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Fylgist með okkur á faceboock