Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
ekki ganga svo langt að segja að
þær séu góðar, þó að flóttafólkið í
þorpinu þurfi ekki að hafast við í
tjöldum eins og víða annars stað-
ar, geti aflað sér einhverra tekna,
börnunum gefist kostur á að
ganga í almenningsskóla og að
þeim bjóðist ókeypis, lágmarks
heilsugæsla sem m.a. er rekin fyr-
ir fé frá Rauða krossinum á Ís-
landi.
Líkamleg heilsa mæðranna sem
sækja heilsugæslustöðina í Joun
er almennt góð. Það sama má
segja um börnin. Það er hefð fyrir
því að sýrlenskar konur hafi börn
sín lengi á brjósti, jafnvel í tvö ár.
Það hefur sem betur fer ekkert
breyst þrátt fyrir flóttann frá
heimalandinu.
En það er andlega hliðin sem
veldur heilbrigðisstarfsfólkinu
áhyggjum.
Þjökuð vegna stríðsins
„Margir eiga mjög erfitt,“ segir
líbanski læknirinn sem starfar á
sjúkrahúsi en vinnur einn dag í
viku á heilsugæslustöðvum Rauða
krossins. Biðstofan er nú full af
ungum mæðrum og börnum
þeirra. Sum hlaupa um og leika
sér, önnur kúra í hlýju hálsakoti
mömmu. Læknirinn sér fram á
enn einn langan dag á vaktinni.
En honum dettur ekki í hug að
kvarta. „Þau vilja sum spjalla,
segja mér sína sögu,“ segir hann.
„Þau eru þjökuð vegna þess sem
þau sáu í Sýrlandi og vandamál-
anna sem hafa fylgt þeim.“
Rauði krossinn rekur sjö fær-
anlegar heilsugæslustöðvar fyrir
flóttafólkið í Líbanon, fimm eru
reknar af þeim norska með stuðn-
ingi þess íslenska. Þar er t.d. boð-
ið upp á mæðra- og ungbarnaeft-
irlit og ókeypis lyf. Vonast er til
að hægt verði að fjölga þeim á
næstunni og ná þá til afskekktustu
svæðanna í fjöllunum.
Einstakt traust og virðing
Rauði krossinn í Líbanon hefur
algjöra sérstöðu í landinu. Sam-
tökin njóta gríðarlegs trausts og
virðingar. Það auðveldar allt
mannúðarstarf, líka erlendra syst-
ursamtaka sem halda úti marg-
þættri aðstoð við sýrlenska flótta-
fólkið. Það þykir upphefð að starfa
sem sjálfboðaliði hjá samtökunum
og því vilja margir ganga til liðs
við þau. Ekki veitir af, verkefnin
eru ærin, ekki síst nú þegar 1,1
milljón sýrlenskra flóttamanna í
neyð hefur bæst við þær 4,4 millj-
ónir manna sem fyrir bjuggu í
Líbanon.
Ein í múrsteinskofa
Bræðurnir Hassan og Ali Jawh-
ar eru í sjálfboðaliðasveit líbanska
Rauða krossins. Síðustu daga hafa
þeir sett upp rotþrær og vatns-
tanka við múrsteinskofa 18 fjöl-
skyldna við ólífu- og appels-
ínuakra skammt frá Joun. Þeir
hafa kynnst flóttafólkinu vel, er
fagnað er þeir mæta í rauðu vest-
unum sínum á svæðið.
Í gær settu þeir upp kamar við
múrsteinskofann hennar Safivu. Í
dag er hún í öngum sínum og þeir
eiga erfitt með að skilja hana.
Hún grætur svo mikið. Hún brotn-
ar niður um leið og hún sér þá og
það eina sem Ali heyrir hana
segja í fyrstu er: „Maðurinn minn,
maðurinn minn. Ég sakna hans
svo. Getið þið hjálpað mér?“ Hass-
an leggur hönd á öxl hennar. Hún
róast lítið. Fyrir fjórum mánuðum
lagði eiginmaður hennar af stað
frá Líbanon. Ferðinni var heitið til
Grikklands og þaðan til Þýska-
lands. Hún heyrði ekkert í honum
lengi og hélt að hann væri dáinn.
En nú telur hún sig vita að hann
hafi náð á leiðarenda. „Og ég þarf
að komast til hans, hvernig get ég
það? Ég á ekkert,“ segir hún og
þerrar tárin með slæðunni sinni.
Ekkert sprengjuregn
en sár fátækt
Þetta er ekki fyrsta áfallið sem
Safiva hefur orðið fyrir. Hún varð
að flýja þorpið sitt, Hala í Sýr-
landi, þegar húsið hennar var
sprengt í loft upp. Nú er hún alls-
laus, alein og fjarri heimkynnum
sínum. „Ég veit ekkert hvað varð
um aðra í fjölskyldunni minni. Við
komum hingað ein eftir sprengju-
regnið, ég og maðurinn minn.“
Í Líbanon er hún laus við
sprengjurnar og hinn stöðuga ótta
sem reif í hverja taug. En aðstæð-
urnar eru langt frá því að vera
góðar. Hún hefur verið á flakki á
milli landshluta, milli þorpa. Nú er
hún nýflutt í þennan óeinangraða
múrsteinskofa og heldur ráðalaus.
Hún er þó þakklát Ali og Hassan.
Þeir vilja allt fyrir hana gera.
Lofa henni nýrri hurð á kofann.
Færa henni segldúka og ætla að
hjálpa henni að koma þeim á þak-
ið fyrir veturinn.
En hjartasárið er enn opið.
Maðurinn hennar er í órafjarlægð.
Á ókunnum stað. Og hún veit ekki
hvort hún hittir hann aftur.
Hættuför yfir hafið
Fleiri flóttamenn hafa tekið
sömu ákvörðun og Safiva og eig-
inmaður hennar, að senda einn
fjölskyldumeðlim til Evrópu í
þeirri von að hann fái hæli og aðr-
ir ættingjar geti fylgt í kjölfarið á
grundvelli fjölskyldusameiningar.
Heilu fjölskyldurnar geta ekki flú-
ið, þær hafa ekki efni á því.
„Við heyrum stöðugt af fleiri
flóttamönnum sem eru búnir að
gefast upp á dvölinni hér og vilja
komast til Evrópu,“ segir Dana
Sleiman, upplýsingafulltrúi Flótta-
mannastofnunar í Líbanon. „Þeir
ætluðu sér það ekkert í upphafi,
ætluðu heldur að bíða stríðið í
Sýrlandi af sér í kunnuglegu ná-
grannalandi. En sumir taka
áhættuna og fara með þessum
bátum smyglara til Evrópu. Ör-
væntingin er sláandi.“
Þetta er neyðarúrræði, hættu-
för. Um 3.500 flóttamenn eru tald-
ir hafa farist á leið sinni um hafið
til Evrópu á þessu ári. Stundum
eru börnin send ein af stað. Violet
hjá UNICEF heyrði af fjölskyldu
sem ætlaði að senda fimm ára
dreng einan síns liðs á báti frá
Líbanon til Tyrklands og þaðan til
Evrópu. Lokaáfangastaðurinn var
Belgía þangað sem einhver skyld-
menni voru þegar komin. Þar
sleppur hann kannski við að þurfa
að vinna, eða að sjá á eftir systur
sinni barnungri í hjónaband. „Ég
hef ekki heyrt hvort þau létu
verða af því,“ segir Violet hugsi og
bætir við: „En þetta er aðeins eitt
dæmi.“
Lítill kofi hlaðinn úr múrsteinum í skjóli banana-
trjánna. Geislar sólar gægjast í gegnum þykkt lauf-
skrúðið og fuglarnir syngja í hitanum sem er óvenju
mikill miðað við árstíma í Líbanon. Tvær mæður
taka brosandi á móti bræðrunum Ali og Hassan
Jawhar, sjálfboðaliðum Rauða krossins, með ung-
börn sín á handleggnum. Lítill drengur, þriggja ára
á að giska, réttir mér höndina, forvitinn. Mestan
áhuga hefur hann á bláum og bleikum skónum mín-
um. Bræðurnir hafa litið til með þeim um skeið. Önn-
ur þeirra, Nawal, eignaðist tvíbura fyrir tíu dögum.
Hún nefndi stúlkurnar sínar Hibu og Hemu. Hema
litla er sofandi inni í kofa en Hiba geispar værðar-
lega í fangi móður sinnar. „Vitið þið hvað gerðist?“
segir Nawal og brosið þurrkast skyndilega af andliti
hennar. „Það kom hópur manna, þeir lögðu bílnum
við veginn. Svo tóku þeir mennina okkar og fóru
með þá inn á akurinn. Þeir börðu þá.“ Ali og Hassan
er brugðið. En konurnar geta ekki gefið þeim neinar
skýringar aðrar en þær að þau séu innflytjendur og
árásarmennirnir heimamenn. Þau eru Sýrlendingar
og þeir Líbanar.
Við kofann þeirra líkt og fleiri í nágrenni borg-
arinnar Saida í suðurhluta landsins er nú kominn
vatnstankur og rotþró. Þær eru þakklátar Rauða
krossinum. Sérstaklega er tvíburamóðirin Nawal
ánægð með útisturtuna sem Ali og Hassan settu upp.
Rauði krossinn stendur yfirleitt ekki í slíkum verk-
efnum, þetta er fyrsta sturtan sem þeir félagar setja
upp á svæðinu. En Ali segir einfaldlega: „Hún vildi
útisturtu svo við gerðum útisturtu fyrir hana.“
Nawal var mjög áhyggjufull er hún gekk með tví-
burana. Hún kom til Líbanons frá Sýrlandi áður en
borgarastyrjöldin braust út og hefur lítið sem ekkert
stuðningsnet. Rauði krossinn veitti henni aðstoð, út-
vegaði henni mæðravernd, og svo fór að hún fæddi
stúlkurnar á sjúkrahúsi en þurfti að greiða fyrir
fæðingarhjálpina úr eigin vasa. En síðan þá hefur
hún engan lækni hitt. Og ekki dætur hennar heldur.
„Við sendum einhvern strax á morgun,“ segir Hass-
an ákveðinn. Henni er létt og bros læðist aftur fram
á varir hennar.
Færanleg heilsugæsla, sem íslenski Rauði kross-
inn rekur ásamt þeim norska, er nýbyrjuð að eiga
viðkomu í nágrenninu. Með þeirri þjónustu sem
Nawal getur fengið þar, s.s. ungbarnavernd, er von
til þess að aðstæður hennar breytist til hins betra.
Hún, Hema og Hiba bætast því fljótlega í hóp yfir 90
þúsund flóttamanna sem fá aðstoð hjá heilsugæsl-
unum árlega. Kannski er það þegar orðið raunin.
Tvíburamóðir Nawal með dóttur sína Hibu í fanginu.
„Vitið þið
hvað gerðist?“
Á flótta Hálf milljón sýrlenskra barna er nú í Líbanon. Mörg þeirra eru fædd í landinu, enda um 3-5 ár síðan flestir flóttamennirnir flúðu þangað undan stríðinu í heimalandinu. Þau fá ekki alltaf
fæðingarvottorð og eru því ríkisfangslaus. Flest flóttafólkið býr við fátækt og hefur aðeins takmarkaðan aðgang að heilsugæslu. Þegar börnin eldast er alls ekki víst að þau geti gengið í skóla.
Morgunblaðið/Sunna
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is
Erum í sama húsi en höfum flutt okkur um nokkur verslunarbil
Hunda- og kattafóður
á frábæru verði
Ný stærri og glæsilegri verslun
Kíktu í
heimsók
n
L i f and i v e r s l un
Verð að
eins
13.900
kr.
Elite fiskabúr
TILBOÐ
• 54 l.
• Ljós og ljósastæði
• Lok
• Dæla
• Hitari