Morgunblaðið - 12.12.2015, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 12.12.2015, Qupperneq 54
54 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skipaði í gær hersveitum sínum sem staðsettar eru innan landamæra Sýrlands að svara af fullum þunga öllum þeim ógnum sem þar í landi er að finna. Eiga sveitir Rússlands að uppræta þær án tafar. „Ég gef ykkur fyrirskipun um að bregðast eins harkalega við og kost- ur er,“ sagði Pútín á varnarmála- fundi, en viðburðurinn var sýndur beint í rússneska sjónvarpinu. „Öll- um þeim skotmörkum sem ógna rússneskum sveitum eða innviðum okkar ríkis ber að eyða án tafar.“ Í máli sínu ávarpaði forsetinn einnig óbeint ráðamenn í Ankara í Tyrklandi, en stutt er liðið frá því að tyrkneskar orrustuflugvélar skutu niður rússneska herflugvél við landamæri Sýrlands. Gerðist það 24. nóvember síðastliðinn. Varar við frekari ögrun Rússnesku flugmennirnir náðu báðir að skjóta sér út úr brennandi þotunni og var annar þeirra skotinn til bana af uppreisnarsveitum er hann sveif til jarðar í fallhlíf sinni. Hinum manninum var hins vegar bjargað. Í björgunaraðgerðinni lést einnig annar rússneskur hermaður er skotið var á aðra af þeim tveimur þyrlum sem sendar voru á vettvang. „Ég vil vara þá við sem aftur hefðu í hyggju að reyna að skipuleggja ein- hvers konar ögrun í garð okkar her- manna,“ sagði Pútín einnig í ávarpi sínu á fundinum. Yfirlýsingin talin áhyggjuefni Lofthernaður Rússa innan landa- mæra Sýrlands hófst 30. september síðastliðinn og er með aðgerðunum verið að styðja við bakið á Bashar al- Assad Sýrlandsforseta sem átt hefur í langvarandi og blóðugum átökum við fjölmarga hópa vopnaðra upp- reisnarmanna. Fréttaveita AFP greinir frá því að yfirlýsing Pútíns sé áhyggjuefni margra en Rússar hafa margsinnis verið sakaðir um að sprengja upp önnur skotmörk en þau sem tengjast Ríki íslams. Brett McGurk, sérfræðingur Hvíta hússins í málefnum Ríkis ísl- ams, hefur meðal annars sagt ein- ungis 30 prósentum þeirra loftárása sem Rússar halda úti innan landa- mæra Sýrlands vera beint gegn liðs- mönnum vígasamtaka Ríkis íslams. Í flestum tilfellum segir McGurk Rússa beina spjótum sínum gegn öðrum uppreisnarhópum á svæðinu. Hafa því einkum mannréttinda- samtök auknar áhyggjur af enn frek- ara mannfalli í röðum almennra borgara nú er Pútín Rússlandsfor- seti boðar hertar hernaðaraðgerðir innan landamæra Sýrlands. Rússar sýni klærnar óspart  Eyða ber öllum ógnum gegn Rúss- landi án tafar AFP Hervald Vladimír Pútín Rússlandsforseti var ómyrkur í máli er hann ávarpaði varnarmálafund í gærdag. Guo Guangc- hang, sem er einn ríkasti mað- ur Kína og fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Fosun Inter- national, er nú horfinn. Hafa starfsmenn fyr- irtækis hans, að sögn AFP, ekki heyrt frá Guo síðan í fyrradag. Uppi eru sögusagnir um að Guo sé nú í haldi lögreglu og hefur breska ríkisútvarpið (BBC) það eft- ir heimildarmanni innan fyrirtæk- isins að Guo sé að líkindum að veita lögreglu aðstoð í tengslum við ein- hverja rannsókn. „Hann er ekki til rannsóknar sjálfur,“ sagði hann án þess að vilja geta sér til um hvaða rannsókn það væri. KÍNA Einn ríkasti maður Kína hvarf í skyndi Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj- anna segir Abu Saleh, yfirmann fjár- mála innan vígasamtaka Ríkis ísl- ams, hafa verið drepinn nýverið í loftárás bandamanna innan landa- mæra Sýrlands. Var hann „einn af æðstu og reyndustu mönnum“ sam- takanna, að því er fréttaveita AFP greinir frá, en árásin var gerð í nóv- ember síðastliðnum. „Abu Saleh er þriðji meðlimur í fjármálastjórnun samtakanna sem við drepum,“ sagði Steve Warren, ofursti í Bandaríkjaher, á blaða- mannafundi sem haldinn var í Bag- dad í Írak. Sagði hann þar Saleh hafa gegnt eins konar stöðu fjár- málaráðherra Ríkis íslams. Brett McGurk, sérfræðingur Hvíta hússins í málefnum Ríkis ísl- ams, segir í færslu á samskiptasíðu Twitter að Saleh hafi verið drepinn ásamt tveimur aðstoðarmönnum sín- um og að bandarískar hersveitir hafi leitt loftárásina. Hefur lamandi áhrif „Drápið á Saleh og forverum hans er mjög lýjandi fyrir samtökin og dregur úr bæði þekkingu og hæfi- leikum þeirra til að samræma fjár- mögnun samtakanna,“ sagði Warren ofursti. „Árásir sem þessar eru til marks um hvernig við förum að því að eyða þessum samtökum.“ AFP Hermál Brett McGurk, sérfræðingur Hvíta hússins í málefnum Ríkis íslams, á blaðamannafundi sem haldinn var í sendiráði Bandaríkjanna í Írak. Skarð höggvið í raðir Ríkis íslams Prófanir stóðu yfir í Pakistan í gær á öflugri tegund skotflaugar sem borið getur kjarnaodd. Eldflaugin sem um ræðir nefnist, að sögn fréttaveitu AFP, Shaheen III og er hún hönnuð til þess að granda skot- mörkum á jörðu niðri í allt að 2.750 kílómetra fjarlægð, en vopn þetta getur borið bæði hefðbundna sprengjuhleðslu og kjarnaodd. „Þessu vel heppnaða flugi, sem endaði í Arabíuhafi, var ætlað að staðfesta tæknigetu þessa vopna- kerfis,“ segir í tilkynningu yfir- stjórnar hersins þar í landi, en þetta er í annað skipti á þessu ári sem herinn prófar Shaheen- skotflaug. Var það seinast gert í mars síðastliðnum. Hershöfðinginn Mazhar Jamil, sem fer fyrir skot- flaugaáætlun Pakistans, hrósaði mjög þeim vísindamönnum sem að prófunum þessum komu og segir þær marka þáttaskil. PAKISTAN Shaheen tók á loft frá skotpalli sínum AFP Vopn Skotflaugin Shaheen III frá Pakistan getur borið kjarnaodd. John Kerry, utanríkis- ráðherra Banda- ríkjanna, mun næstkomandi þriðjudag sækja Moskvu heim á leið sinni frá Par- ís og sitja þar fund með Vla- dimír Pútín Rússlandsforseta, en til umræðu verða einkum málefni Sýr- lands og stríðið gegn víga- samtökum Ríkis íslams þar í landi. „Þeir munu ræða hinar yfir- standandi tilraunir til að koma á breytingum á stjórnmálum Sýr- lands,“ hefur fréttaveita AFP eftir talsmanni utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, en Kerry mun einn- ig koma inn á málefni Úkraínu. Þá greinir AFP jafnframt frá því að Kerry muni eiga fund með Ser- gei Lavrov utanríkisráðherra. BANDARÍKIN John Kerry sækir Vladimír Pútín heim „Hundurinn minn var búinn að vera í meðferðum hjá dýralækni í heilt ár vegna húðvandamála og kláða, þessu fylgdi mikið hárlos. Hann var búinn að vera á sterum án árangus. Reynt var að skipta um fæði sem bar heldur ekki árangur. Eina sem hefur dugað er Polarolje fyrir hunda. Eftir að hann byrjaði að taka Polarolje fyrir hunda hefur heilsa hans tekið stakkaskiptum. Einkennin eru horfin og hann er laus við kláðann og feldurinn orðinn fallegur.“ Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi Sími 698 7999 og 699 7887 Náttúruolía sem hundar elska Við Hárlosi Mýkir liðina Betri næringarupptaka Fyrirbyggir exem Betri og sterkari fætur NIKITA hundaolía Selolía fyrir hunda VP Globe Nú199.900 kr. SPARAÐU 50.000 kr. Loftljós hannað af Verner Panton. 40 cm. 249.900 kr. Nú 199.900 kr. VPGlobe-loftljós ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is Opið til 22:00 alla daga til jóla - lau. 10-22, sun. 12-22, mán. - fös. 11-22 NÝTT KORTATÍMABIL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.