Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 71
það. Og Guð forði manni frá því að
vera með töskur. Þegar búið var að
stimpla vegabréfið tók á aðra
klukkustund að fá farangurinn.
Eftir fjögurra klukkustunda flug
var þetta ekki skemmtileg leið til
að komast inn í Rússland, sér-
staklega ekki þegar hún var farin
aðra hverja helgi eins og í mínu til-
viki.
Ég hafði gert þetta frá árinu
1996 en um aldamótin 2000 sagði
vinur minn mér frá svokallaðri for-
gangsþjónustu. Fyrir lágt gjald
sparaði hún um það bil klukku-
stund, stundum tvær. Þessi þjón-
usta var enginn munaður en hverr-
ar krónu virði. Ég fór beint úr
vélinni í forgangsbiðsalinn. Vegg-
irnir og loftið voru baunasúpu-
grænir og á gólfinu var ljós línóle-
umdúkur. Stólarnir voru klæddir
rauðbrúnu leðri og býsna þægileg-
ir. Þjónustufólk bauð upp á þunnt
kaffi eða ofsoðið te á meðan beðið
var. Ég valdi te með sítrónusneið,
rétti vegabréfaeftirlitsmanni vega-
bréfið mitt og innan nokkurra sek-
úndna var ég önnum kafinn við að
sinna tölvupóstum í BlackBerry
símanum.
Ég tók varla eftir því þegar bíl-
stjórinn minn, Aleksej, sem hafði
leyfi til að koma í salinn, kom inn
og fór að spjalla við vegabréfaeft-
irlitsmanninn. Aleksej var 41 árs
eins og ég en andstætt mér krafta-
legur, 1,96 metrar á hæð, 108 kíló,
ljóshærður og hörkulegur. Hann
var fyrrverandi ofursti í umferð-
arlögreglu Moskvuborgar og kunni
ekki stakt orð í ensku. Hann var
alltaf stundvís og gat alltaf kjaftað
sig úr út smávægilegum vandræð-
um sem snertu umferðarlögregl-
una.
Ég lét þá afskiptalausa, svaraði
tölvuskeytum og drakk moðvolga
teið. Eftir stutta stund var tilkynnt
í hátalarakerfinu að farangurinn úr
flugi mínu væri tilbúinn til afhend-
ingar.
Þá leit ég upp og hugsaði: Hef
ég verið hér í heila klukkustund?
Ég leit á úrið. Ég hafði verið
þarna í heila klukkustund. Flug-
vélin lenti um hálf átta og nú var
hún hálf níu. Tveir aðrir farþegar
úr vélinni minni voru löngu farnir
úr forgangsbiðsalnum. Ég leit á
Aleksej og hann leit á mig með
augnaráði sem sagði: Ég kanna
málið.
Hann fór og talaði við vegabréfa-
eftirlitsmanninn en ég hringdi í Je-
lenu. Klukkan var aðeins hálf sex í
Lundúnum og ég vissi að hún væri
heima. Á meðan við töluðum saman
hafði ég auga á Aleksej og vega-
bréfaeftirlitsmanninum. Samtal
þeirra breyttist fljótt í rifrildi.
Aleksej sló í borðið og maðurinn
hvessti augun á hann. „Eitthvað er
að,“ sagði ég við Jelenu. Ég stóð
upp og gekk að borðinu, argur
fremur en áhyggjufullur, og spurði
hvað væri að. Þegar ég kom nær
varð mér ljóst að eitthvað hefði
farið alvarlega úrskeiðis. Ég virkj-
aði hátalarann á símanum og Je-
lena túlkaði fyrir mig. Ég er eng-
inn tungumálahestur og eftir tíu ár
í Moskvu kunni ég ekki mikið í
rússnesku.
Samræðurnar fóru í endalausa
hringi. Ég fylgdist með eins og
áhorfandi á tennisleik, höfuðið
hreyfðist í sífellu frá öðrum mann-
inum að hinum. Á einhverju stigi
sagði Jelena: „Ég held að þetta
snúist um vegabréfsáritun en mað-
urinn vill ekkert segja.“ Í sama
mund gengu tveir einkenn-
isklæddir landamæralögreglumenn
í salinn. Annar benti á símann
minn og hinn á farangurinn.
Ég sagði við Jelenu: „Tveir
menn eru að segja mér að hætta
að tala og fara með þeim. Ég
hringi eins fljótt og ég get.“
Ég sleit samtalinu. Annar mað-
urinn tók farangurinn minn en
hinn vegabréfsskjölin. Ég leit á
Aleksej áður en ég fór með þeim.
Herðar hans höfðu sigið, hann
horfði niður á gólfið og munnurinn
var opinn. Hann gat ekkert gert.
Hann vissi þegar eitthvað fer úr-
skeiðis í Rússlandi að þá fer það
jafnan mjög úrskeiðis.
71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Árvakur leitar að duglegum
einstaklingum í 50% hlutastarf.
Um er að ræða dreifingu á höfuðborgarsvæðinu. Vinnutíminn er
3-4 tímar í senn, sex daga vikunnar og að mestu í næturvinnu.
Góðir tekjumöguleikar og fín hreyfing fyrir duglegt fólk.
Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára og hafa bíl til umráða.
Umsóknir er hægt að fylla út á mbl.is, neðst á forsíðu.
Á umsóknareyðublaðinu skal tiltaka dreifingu þegar spurt
er um ástæðu umsóknar. Einnig er hægt að skila inn umsókn
merktri starfsmannahaldi í afgreiðslu Morgunblaðsins
í Hádegismóum 2.
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við
dreifingarstjóra Árvakurs, Örn Þórisson
í síma 569-1356 eða á ornthor@mbl.is
Aukavinna
fyrir orkubolta
Part-time work
for hard-working people
Árvakur is looking for energetic individuals
for 50% part-time work.
The job involves newspaper delivery in the Greater Reykjavik area.
Shifts are 3-4 hours long, six days
a week and mostly at night time. Good salary for hard-working
individuals and good exercise.
Applicants must be over 18 years of age and have access to a car.
An application form is available at the bottom of the mbl.is homepage.
Applicants should indicate ‘Newspaper delivery’ as the reason for their
application. Applications can also be delivered in an envelope marked
‘Human Resources’ to the reception at Morgunblaðið (Hádegismóar 2,
110 Reykjavik).
Further information is available from Distribution Manager
Örn Þórisson on 569 1356 or ornthor@mbl.is.
Mánudaginn 14. desember stendur Reykjavíkurborg
fyrir málþingi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á
fæðingardegi Ingibjargar H. Bjarnason undir yfirskriftinni
Stelpur stjórna. Málþingið er hluti af 100 viðburðum
sem Reykjavíkurborg stendur að í tilefni þess að 100 ár
eru liðin frá því íslenskar konur hlutu kosningarétt.
15.00 Setning málþings
Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
setur þingið.
15.05 Stjórnmálaþáttaka kvenna síðustu 100 ár
Auður Styrkársdóttir forstöðumaður Kvennasögusafns
15.25 Pallborðsumræður- sætustu sigrar og stærstu
áskoranir í borgarstjórn.
Í pallborði eru Hanna Birna Kristjánsdóttir frá Sjálf-
stæðisflokki, Sigrún Magnúsdóttir frá Framsóknarflokki,
Svandís Svavarsdóttir frá Vinstrihreyfingunni – grænu
framboði, Guðrún Ögmundsdóttir frá Samfylkingu og
Guðrún Jónsdóttir frá Kvennaframboðinu sem munu
ræða sína sætustu sigra og stærstu áskoranir.
16.15 Umræður og fyrirspurnir
Fundarstýra: Sirrý Arnardóttir sjónvarpskona á
Hringbraut
16.30
Stelpur filma og Stelpur rokka skemmta
Allir velkomnir