Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 78

Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 78
78 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 Minningar um Stellu móðursystur mína eru allar ein- staklega hlýjar og bjartar. Hún var vönduð kona og allt sem hún gerði var gert af mikilli alúð og umhyggju. Hún var sönn og heilsteypt mann- eskja, vel menntuð, mikill listunn- andi, orðvör og einstaklega vand- virk í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var trygg og trú hverju því verkefni sem henni var falið og gerði það allt á sinn hóg- væra og hljóða hátt. Stella var kennari að mennt og kenndi með mömmu minni í Laugarnesskóla í áratugi. Hún kenndi mér, eins og fjölda ann- arra barna, heimilisfræði og var ákveðinn brautryðjandi í því starfi. Þar lagði hún mikla áherslu á hollt mataræði og hreinlæti og lagði þannig grunn að heilbrigðum lífsháttum margra barna. Hún gaf út kennslubók um heimilisfræði sem nýttist heimilum langt eftir að námi barnanna lauk. Stella og Gísli maður hennar lögðu mikla áherslu á holla hreyfingu og úti- veru og voru að svo mörgu leyti á undan sinni samtíð. Þau voru um- hverfisverndarsinnar, unnu landi sínu og ferðalög innanlands sem erlendis voru stór hluti af þeirra lífi. Stella var virk í félagsstarfi kennara. Þar stendur trúlega fremst allt það sem hún lagði af mörkum við uppbyggingu á un- aðsreit Laugarnesskóla, Katla- gili, sem börn og kennarar Laug- arnesskóla njóta enn. Listrænt eðli Stellu kom fram í svo mörgu. Hún hafði mikinn áhuga á að njóta listviðburða, ekki síst sígildrar tónlistar. Listrænt auga hennar endur- speglaðist einnig í því hvernig hún og Gísli bjuggu heimili sitt. Af þeirra heimili á ég svo ótal- margar góðar minningar. Stærstu samfelldu minningabrot- in eru frá þeim tveimur sumrum sem ég, þá um 10 ára gömul, var í Þorgerður Þorgeirsdóttir ✝ ÞorgerðurÞorgeirsdóttir fæddist 19. janúar 1926. Hún lést 27. nóvember 2015. Útför Þorgerðar fór fram 11. desem- ber 2015. svokallaðri vist við að passa börnin þeirra Magnús og Rósu sem þá voru smábörn. Stella og Gísli voru einstak- lega góð við mig og yfir heimilinu og samskiptum þeirra á milli ríkti mikil ástúð. Mér fannst alltaf sem ég ætti einhvern sérstakan stað hjá þeim. Að búa síðar um nokkurra ára skeið við Berg- staðastræti aðeins tveimur hús- um frá þeim var því kærkomin nálægð við þessar góðu mann- eskjur. Sá mikli kærleikur sem ríkti milli systranna, mömmu minnar og Stellu, hafði þau áhrif að við hittumst mjög oft og hún var stór hluti af mínu lífi alla tíð. Nú er hún Stella mín farin inn í ljósið bjarta og hvílir þar í faðmi Guðs. Ég þakka góðum Guði fyrir að hafa gefið mér þessa góðu frænku og við Leifur biðjum Guð að blessa minningu hennar. Vilborg Ingólfsdóttir. Þegar við hugsum til Stellu frænku sjáum við snyrtilega klædda konu, brosmilda og ljúfa með falleg blóm í gluggunum og matarilm úr eldhúsinu. Bleikur litur er einhvers staðar í kringum hana, annaðhvort er hún klædd einhverju bleiku eða blómin eru bleik. Í fallegu íbúðinni þeirra Gísla og innan um öll fallegu blómin leyndist krókódíll sem okkur fannst afskaplega spenn- andi. Sem betur fer var hann fast- ur undir flyglinum hans Gísla og gat því ekki náð okkur. En við þurftum samt alltaf að kíkja og athuga hvort hann væri ekki örugglega á sínum stað. Stella frænka var mikil matar- kona, hún bakaði yndislegar smá- kökur og brauðbollur. Hún var matreiðslukennari og gaf út mat- reiðslubókina Unga stúlkan og eldhússtörfin. Síðar var þessi bók endurútgefin undir nafninu Unga fólkið og eldhússtörfin. Öll eigum við þessa bók og höfum nýtt hana vel í gegnum tíðina. Ekki var haldin veisla heima hjá okkur öðruvísi en Stella kæmi þar nálægt, hún tók oft þátt í að útbúa veitingarnar. Uppáhalds- saga okkar af Stellu og tertu- bakstri er úr brúðkaupi foreldra okkar 1954. Þar bakaði Stella þessa fínu brúðartertu en ekki vildi betur til en svo að hún missti tertuna á hvolf rétt áður en hún var borin á borð. En Stella var nú ekki lengi að bjarga málum, lag- færði tertuna og enginn tók eftir neinu. Mamma okkar og Stella frænka voru ekki bara systur heldur mjög nánar vinkonur alla tíð. Þær brölluðu ýmislegt og oft vorum við krakkarnir með í för. Margar ferðir voru farnar í Katlagil til sumardvalar, ferðalög austur í sveitir, ferðir í kartöflu- garðinn o.fl. Við áttum ótal sam- verustundir með Stellu og fjöl- skyldu, eins og t.d. hinn árlega laufabrauðsbakstur fyrir jólin. Okkur er það alveg hulin ráðgáta hvernig þær systur fóru að því að standa heilan dag og hnoða, fletja út og steikja laufabrauð og enda svo daginn á matarveislu fyrir fjölskyldurnar. Þetta voru ótrú- legir dagar og alltaf jafnskemmti- legir. Á hverju vori fóru systurnar austur að Ólafsvöllum til að huga að leiði foreldra sinna. Þær þurftu að gróðursetja blóm, hreinsa og taka til í kringum foreldra sína. Í seinni tíð fór eitthvert barna þeirra með þeim, oftast Sigrún, sem bílstjóri. Hún minnist þess að þær systur hafi haft mikið gaman af þessum ferðum, þær nutu þess að vera saman, gátu slúðrað um sveitunga sína og rifj- að upp gamla tíma. Þá var mikið spjallað og hlegið, enda hlátur- mildar og kátar systur. Mamma okkar er nú ein eftir af sínum stóra og góða systkinahópi og missir hennar er mikill við frá- fall Stellu. Þær töluðu reglulega saman í síma í hverri viku og nú undir það síðasta oft á dag. Í einu símtali þeirra nú í byrjun nóvem- ber sagði Stella við Villu sína: „Það er allt í lagi með okkur. Við erum svo ungar og sprækar!“ Já þær voru alltaf ungar í anda. Við sendum Maggó, Rósu og fjölskyldum þeirra okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Við eigum eftir að sakna yndislegrar frænku en minningin lifir í hjörtum okk- ar. Þorgeir, Sverrir, Vilborg, Sigurlaug og Sigrún Einarsbörn. Þorgerður Þorgeirsdóttir, allt- af kölluð Stella, er látin. Með henni er gengin einstaklega falleg og vel gerð manneskja. Ég kynnt- ist Stellu seint á sjöunda áratugn- um, þegar samstarf mitt hófst við eiginmann hennar, Gísla Magn- ússon píanóleikara. Við Gísli átt- um langt og farsælt samstarf og hann varð einn dýrmætasti vinur sem ég hef eignast á lífsleiðinni. Gísli lést árið 2001. Ég varð þess fljótt áskynja að Stella var kletturinn og verndar- inn í lífi fjölskyldu sinnar. Æfing- ar okkar Gísla fóru ætíð fram á heimili þeirra hjóna að Berg- staðastræti 65, en í því húsi bjuggu þau frá því þau giftust ár- ið 1955 og alla tíð síðan. Þegar Stella lést voru árin hennar í hús- inu orðin 60 talsins. Heimili þeirra Stellu og Gísla var fallegt, smekklegt og hlýlegt. Þangað var gott að koma og æfa og eiga sam- neyti við þessa yndislegu vini. Stella hafði greinilega græna fingur því blómin á heimili þeirra voru svo undurfalleg og vel hirt að sérstaka athygli vakti. Alltaf fannst mér blómin blómstra jafnt sumar sem vetur. Ég man aldrei eftir blómum í gluggakistum á heimilinu öðru- vísi en blómstrandi í fögrum lit- um. Hvernig hún fór að þessu er mér hulin ráðgáta en segir margt um persónuleika Stellu. Þegar æfingar urðu langar hjá okkur Gísla og við tókum okkur hlé var ekki að sökum að spyrja að Stella birtist með veitingar okkur til hressingar. Þá er ótalin matar- gerðarlist Stellu, en þetta var hennar fag, sem hún kenndi í ára- tugi. Að setjast að matarborði hjá Stellu var unaðslegt því kunnáttu hennar og vandvirkni var þar við- brugðið eins og á svo mörgum öðrum sviðum. Þau Gísli áttu mörg falleg málverk en eitt þeirra, sem hékk yfir flyglinum, heillaði mig ævinlega. Þetta var olíumálverk af Stellu eftir Magn- ús Á. Árnason, málað á bláum grunni af geislandi fagurri konu, bjartri yfirlitum. Listamaðurinn skildi greinilega persónuna Stellu þegar hann málaði þessa mynd. Myndin er greypt í hjarta mitt því svona finnst mér Stella alltaf hafa verið sem persóna. Nokkrar manneskjur sem maður kynnist á lífsleiðinni hafa þannig áhrif að þær festa rætur djúpt í hjarta manns. Slík manneskja var Stella. Ég kveð hana með söknuði og innilegu þakklæti fyrir þau dýrmætu áhrif sem hún hafði á líf mitt. Megi góður guð vernda hana og blessa í nýjum heim- kynnum. Öllum ættingjum og vinum Stellu sendi ég hjartanleg- ustu samúðarkveðjur. Gunnar Kvaran. Í dag kveð ég Sigurð Ívar, besta vin minn til margra ára. Vinskapur okkar Sigga hófst á fermingarárunum, þegar hann flutti í Hafnarfjörð og hef- ur vinátta okkar varað alla tíð. Við vorum mikið saman þrír, Siggi, Kristján bróðir hans og ég Sigurður Ívar Sigurðsson ✝ Sigurður ÍvarSigurðsson fæddist 30. sept- ember 1929. Hann lést 22. nóvember 2015. Útför Sigurðar fór fram 11. desem- ber 2015. og vorum gjarnan kallaðir Bakka- bræður, því við vor- um oft eins klæddir. Ef einn okkar sást á götu voru hinir ekki langt undan. Lengi vel vorum við síðan nágrannar og var þá mikið um það að við aðstoð- uðum hvor annan þegar á þurfti að halda. Margt höfum við brallað saman á þessum rúmlega 70 ár- um sem vinskapurinn hefur var- að, höfðum báðir gaman af því að veiða saman, þó að hann hafi nú reynst betri á þeim vettvangi, enda mikill veiðiáhugamaður. Á síðustu árum höfum við verið duglegir við að sækja heimaleiki hjá FH saman enda báðir áhuga- samir um knattspyrnu og sátum í sömu sætunum á öllum leikjum. Sigga var margt til lista lagt og kom maður aldrei að tómum kof- unum hjá honum þegar vélar voru annars vegar og ekki var hann síðri smiður. Handlaginn með afbrigðum. Minningar um okkar vináttu eru óteljandi og gleymast aldrei. Ég sendi Guð- rúnu og börnum þeirra innilegar samúðarkveðjur og þakka fyrir hlýhug þeirra í minn garð í gegnum tíðina. Guðjón Frímannsson. Okkur langar að minnast fall- ins vinar, Sigurðar Ívars Sig- urðssonar, sem lést 22. nóvem- ber. Siggi, eins og hann var alltaf kallaður, andaðist á Sól- vangi í Hafnarfirði, eftir stutta veru þar. Siggi hafði átt við erfið veikindi að stríða um nokkurt skeið. Það sást þó ekki á honum að svo væri fyrr en undir það síðasta. Siggi var einstakur mað- ur, hægur í fasi, traustur og brosmildur. Alltaf var hann eitt- hvað að gera, lagfæra heimafyrir eða hjálpa öðrum. Okkar vinskapur byrjaði þeg- ar Siggi giftist Guðrúnu Emils- dóttur, eða Rúnu eins og vinirnir kalla hana. Það var gott að koma á heimili þeirra hjóna. Alltaf tek- ið á móti manni með brosi og faðmlagi og margar eru veisl- urnar sem við höfum notið hjá þeim Rúnu og Sigga. Aðaláhuga- mál húsbóndans var stangaveiði. Hann var félagi í Stangaveiði- félagi Hafnarfjarðar og starfaði mikið fyrir félagið. Það var gaman að fara í veiði með Sigga. Alltaf var hann fyrst- ur út á morgnana og þó veiði væri treg var ekki stoppað fyrr enn í hádeginu. Þá var hitað kaffi og nesti tekið fram. Að mál- tíð lokinni var það næsta að skutla sér í koju og fá sér kríu. Að hálftíma liðnum var risið úr rekkju, snarast í vöðlurnar og haldið til veiða á ný. Siggi var alltaf tilbúinn til þess að leið- beina veiðifélögum, ýmist um veiðistaði eða agn sem gæti freistað. Nú þegar þú leitar á ný mið, þá kveðjum við góðan vin með söknuði og þakklæti fyrir allar góðu stundirnar. Við biðjum góðan Guð að styrkja Rúnu á þessum erfiðu tímum og sendum henni og fjöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jóna Sigursteinsdóttir, Guðrún Eiríksdóttir, Viðar Janusson, Guðlaug H. Óskarsdóttir, Sæmundur Ingólfsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, ÞÓRÓLFS INGVARSSONAR, rennismiðs og vélstjóra, frá Birtingaholti, Vestmannaeyjum, til heimilis að Skuggagili 6 á Akureyri. Sérstakar þakkir fær Friðbjörn Sigurðsson krabbameinslæknir, starfsfólk á lyfjadeild og göngudeild lyfjadeildar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og Heimahlynning á Akureyri fyrir frábæra umönnun. Einnig fá kórfélagar í Karlakór Akureyrar - Geysi og Heimir Ingimarsson sérstakar þakkir fyrir fallegan söng. Guð blessi ykkur öll. . Jónheiður Pálmey Þorsteinsdóttir, Ingunn Þórólfsdóttir, Anna Júlíana Þórólfsdóttir, Elva Eir Þórólfsdóttir, Björn Gestsson, afa-, langafa- og langalangafabörn. Elsku eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA GRÓA GUÐJÓNSDÓTTIR, fv. lögreglukona og fulltrúi hjá sálfræðideild skóla í Reykjavík, síðast búsett í Torfufelli 20, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Reykjavík 7. desember síðastliðinn, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 18. desember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja æskulýðs- og sumarstarf KFUM og KFUK í Vindáshlíð og Kaldárseli, Hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi, Samhjálp og Mæðrastyrksnefnd. . Kristján Búason, Jóna Kristjánsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Rúnar Vilhjálmsson, Búi Kristjánsson, Sif Sigfúsdóttir, Guðjón Kristjánsson, Ragnheiður Harpa Arnard., Erlendur Kristjánsson, Elín Anna Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR INGI JÓNATANSSON, Böggvisbraut 11, Dalvík, lést þann 4. desember. Útför hans verður frá Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 16. desember klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveit Landsbjargar Dalvík. . Guðrún Katrín Konráðsdóttir, Eva B. Guðmundsdóttir, Sigurður P. Gunnarsson, Þ. Kristín Guðmundsdóttir, Garðar Guðmundsson, Hannes I. Guðmundsson, Þóra B. Eiríksdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, KRISTINS BJÖRNSSONAR, fv. forstjóra, Fjólugötu 1, 101 Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir einstaka umönnun. Jafnframt sendum við fjölskyldu og vinum hugheilar jóla- og nýárskveðjur. . Sólveig Pétursdóttir, Pétur Gylfi Kristinsson, Emilía Sjöfn Kristinsdóttir, Björn Hallgrímur Kristinsson, Herborg H. Ingvarsdóttir, Inga Bríet, Kristinn Tjörvi, Einar Ísak og Markús Bragi. Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.