Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 81
MINNINGAR 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
✝ HallfríðurKristín Frey-
steinsdóttir fæddist
27. febrúar 1928 í
Glerárþorpi við Ak-
ureyri. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Droplaug-
arstöðum þann 22.
nóvember 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Guðlaug
Dagbjört Péturs-
dóttir frá Selskerjum við Skálm-
arfjörð í Barðastrandasýslu, f. 5.
maí 1893, d. 13. mars 1964, og
Freysteinn Sigtryggur Sigurðs-
son f. 16. ágúst 1886 í Stað-
artungu í Hörgárdal í Eyjafjarð-
arsýslu, d. 14. febrúar 1967.
Systkini hennar eru Sigríður, f.
18. ágúst 1918, d. 21. október
1991, Guðbjörg Sólveig, f. 15.
maí 1924, d. 22. júní 1937, Sig-
urður, f. 30. nóvember 1921, d.
17. apríl 2011, Pétur Breiðfjörð,
f. 16. september 1930, og Gunnar
Breiðfjörð, f. 2. maí 1932, d. 5.
janúar 1935.
Hallfríður, eða Halla eins og
hún var ávallt kölluð, giftist árið
1951 Erni Eiðssyni, f. 7. júlí 1926,
d. 19. desember 1997. Foreldrar
hans voru Eiður Albertsson og
Guðríður Sveins-
dóttir. Börn þeirra
eru 1) Eiður Arn-
arson, f. 16. októ-
ber 1951, d. 21. júní
2006. Fyrri kona
Eiðs var Ásdís Ein-
arsdóttir f. 1952, d.
2008. Eignuðust
Eiður og Ásdís son-
inn Einar Örn, f.
1978, sem lést 29.
júní á þessu ári.
Seinni kona Eiðs er Hafdís Stef-
ánsdóttir, f. 1957. Fóstursonur
Eiðs og sonur Hafdísar er Valur
Rafn Valgeirsson, f. 1976. Sonur
Eiðs og Hafdísar er Einar Rafn,
f. 1989 2) Guðbjörg Kristín, fædd
29. júlí 1958, sonur hennar er
Örn Bjarnar Marteinsson, f.
1998.
Hallfríður lauk gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar. Hún vann um tíma á
Rannsóknarstofu Háskólans sem
ung kona. Stærstan hluta starfs-
ævinnar stundaði hún verslunar-
og skrifstofustörf. Hún rak og
átti Bókaverslunina við Álfheima
6 í Reykjavík um árabil. Hún bjó
lengst af í Garðabæ.
Útför Hallfríðar fór fram frá
Garðakirkju 1. desember 2015.
Halla frænka hefur kvatt og er
farin yfir til betri heima. Við,
börnin hennar Siggu systur
hennar, minnumst hennar með
mikilli hlýju og virðingu. Halla
var alla tíð stórglæsileg kona,
ávallt vel tilhöfð og hafði til að
bera reisn og þokka. Það var afar
notalegt að koma til Höllu og
Arnar á fallega heimilið þeirra í
Hörgslundinum í Garðabæ og
alltaf voru móttökurnar höfðing-
legar og hlýlegar. Halla var
skemmtileg, létt í lund og það var
alltaf tilhlökkunarefni þegar hún,
Örn og börnin tvö, Eiður og
Gugga Stína, komu norður í
heimsókn, einkum og sér í lagi
þegar stórfjölskyldan dvaldi
saman í Bjarkarlundi í Vagla-
skógi. Þá var nú mikið hlegið og
margt brallað. Það var Höllu
þung raun að missa eiginmann-
inn og síðar soninn en hún hélt
sinni reisn í gegnum erfitt sorg-
arferlið. Hún bognaði en brotnaði
ekki og hélt áfram að vera sínum
stoð og stytta. Það er gott að eiga
góðar minningar um gengna tíð
og Halla, Örn og Eiður eiga þar
sinn stað í hjörtum okkar. Hjart-
ans samúðarkveðjur sendum við
dóttur, tengdadóttur og barna-
börnum Höllu.
Baldvin, Freysteinn,
Bjarni, Árni, Guðlaug,
Sigríður og Jóhannes
Bjarnabörn og makar.
Hallfríður Kristín
Freysteinsdóttir
✝ Stefán JúlíusArthúrsson
fæddist 1. maí
1960 í Reykjavík.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi
23. nóvember
2015.
Móðir Stefáns
Júlíusar var Þór-
anna Stefánsdóttir
frá Hraungerði í
Grindavík, f. 1. febrúar 1929,
d. 15. júlí 1999. Faðir hans er
Arthur Sveinsson frá Norð-
firði, f. 19. ágúst 1926. Hann
lifir son sinn. Systkini Stefáns
Júlíusar eru Rúnar Ármann,
f. 1947, Brynja, f. 1949, Pétur
Friðrik (Máni Hrafn), f. 1959,
d. 2013, og Rut, f. 1956.
Bernskuárunum eyddi Stef-
án Júlíus með fjölskyldu sinni
í Reykjavík, fyrst á Gríms-
staðaholti en lengst af í
Vogahverfi þar sem hann
gekk í Vogaskóla. Hann út-
skrifaðist úr járn- og blikk-
smíðadeild Ármúlaskóla í
Reykjavík. Nítján ára gamall
hélt hann til náms í lýðhá-
skólanum í Kungälv í Svíþjóð
en varð að hverfa
frá námi vegna
veikinda, því geð-
sjúkdómur sá, sem
hann átti síðan við
að stríða ævilangt,
gerði þá fyrst vart
við sig. Á unga
aldri var Stefán
Júlíus um tíma í
sambúð með Birnu
Eyjólfsdóttur, f.
1959, d. 2005, en
tók síðar upp sambúð með
Maríu Sigurðardóttur frá
Húsavík, f. 1954. Stóð þeirra
sambúð þar til María lést árið
2006.
Á meðan Stefán Júlíus hafði
heilsu til gegndi hann ýmsum
störfum til sjós og lands, bæði
í Reykjavík, Þorlákshöfn,
Vestmannaeyjum, Neskaup-
stað og á Suðureyri við Súg-
andafjörð. Í seinni tíð bjó
Stefán Júlíus einn í íbúð að
Sóleyjarima 3 en átti áfram
athvarf í búsetukjarna Star-
engi 6, þar sem hann bjó áður
um alllangt skeið.
Útför Stefáns Júlíusar fór
fram í kyrrþey 3. desember
2015.
Góður maður er fallinn frá eft-
ir stutta baráttu við illvígan sjúk-
dóm.
Við kynntumst Stefáni árið
2008. Húmor og léttleiki ein-
kenndi hann. Stefán var fróður
maður, vel lesinn og átti til að
vitna í ýmis ljóð og vísur. Hann
hafði mjög gaman af orðum og
merkingu þeirra og var mjög orð-
heppinn sjálfur. Það var alltaf
gaman að spjalla við Stefán.
Hann var höfðingi heim að sækja
sem hafði einlægan áhuga á fólk-
inu og lífinu í kringum sig.
Stefán var búinn að ganga í
gegnum ýmsa erfiðleika í lífinu.
Hann hafði mikið jafnaðargeð,
tók hlutunum af æðruleysi og
tókst á við hvert verkefni og vann
það vel. Aldrei heyrði maður
þennan merka mann barma sér.
Það var lærdómsríkt að verða
vitni að því hvað Stefáni tókst að
vinna vel úr erfiðleikum og hvað
hann var búinn að koma sér upp
fallegu heimili.
Stefán hafði jákvætt viðhorf til
hlutanna og lífsspeki hans var að
ekkert verkefni var honum of
stórt.
Ljóðið Fjallgangan eftir Tóm-
as Guðmundsson endurspeglar
vel lífshlaup hans og viðhorf. Lát-
um við síðustu línurnar í ljóðinu
verða lokaorð okkar hér. Hans er
og verður sárt saknað. Minning
þín lifir.
Sjáið tindinn, þarna fór ég!
Fjöllunum ungur eiða sór ég,
enda gat ei farið hjá því,
að ég kæmist upp á tindinn.
Leiðin er að vísu varla
vogandi nema hraustum taugum,
en mér fannst bara
bezt að fara
beint af augum,
því hversu mjög sem mönnum finnast
fjöllin há, ber hins að minnast,
sem vitur maður mælti forðum
og mótaði í þessum orðum.
að eiginlega er ekkert bratt,
aðeins mismunandi flatt.
(Tómas Guðmundsson)
Við vottum fjölskyldu hans
okkar dýpstu samúð og sendum
þeim hlýjar hugsanir á þessum
erfiða tíma.
Fyrir hönd allra í Starengi 6,
Eva Dögg Júlíusdóttir.
Stefán Júlíus
Arthúrsson
„Hæ skvísa, sæl
elskan, sæll vinur,
hvernig hefurðu
það“, klapp á bakið
eða knús. Svona heilsaði Styrmir
okkur þegar hann mætti á vakt-
ina, hlýlegur til augnanna og með
glettið bros á vör. Styrmir var ró-
legur, traustur og þægilegur
vinnufélagi sem lét sér annt um
samstarfsfólk sitt. Grín og glens
eða spjall um daginn og veginn
þegar lítið var að gera var alltaf á
boðstólum og stríðni eða mein-
lausir hrekkir áttu það til að líta
dagsins ljós og létta manni lund-
ina á vöktum.
Góður vinur genginn brott
góðar stundir áttum saman.
Núna eiga englar gott
alltaf verður á himnum gaman.
Horfinn ertu, hrifinn brott
harmi slegin eftir sitjum.
Að kveðja vin er aldrei gott
í okkar hjörtum þín við vitjum.
(Bjarney Grendal)
Elsku Styrmir okkar, takk fyr-
ir samstarfið, góðu stundirnar og
vináttuna. Við kveðjum þig með
sorg og söknuði. Við vottum fjöl-
skyldu Styrmis okkar innilegustu
samúð.
Fyrir hönd eigenda og starfs-
fólks á Búálfinum,
Bjarney.
Styrmir Jónsson
✝ Styrmir Jóns-son fæddist
4. maí 1974.
Hann lést 22.
nóvember 2015.
Útför Styrmis
fór fram 4. desem-
ber 2015.
Elsku Styrmir
bróðir minn, þér var
kippt úr lífi okkar
svo snögglega. Við
erum varla búin að
meðtaka það að þú
sért að eilífu farinn
og verðir ekki með í
lífi okkar nema í
anda og hugsunum.
Jólin sem við vorum
búin að skipuleggja
með þér og litlu
strákunum þínum, hér í sveitinni,
verða ekki að veruleika. Við sökn-
um þín svo mikið, þú varst góð-
menni, traustur og hjarthlýr.
Börnin þín fimm voru þér allt og
allt vildir þú fyrir þau gera.
Þegar ég var 6 ára komst þú í
heiminn, það var 4. maí 1974, þú
varst svo fallegt barn með him-
inblá augu.
Blendnar tilfinningar bærðust
með mér þegar þú komst heim af
fæðingardeildinni, bæði stolt og
afbrýðisemi en stoltið og vænt-
umþykjan um litla bróður varð
fljótt ofan á.
Þremur árum síðar bættist svo
einn bróðirinn við og bernska
okkar var góð. Við ferðuðumst
mikið innanlands með foreldrum
okkar og nutum tónlistargáfu
pabba, því alltaf þegar því varð
komið við var spilað á gítar eða
píanó og sungið.
Elsku Styrmir, það var svo
margt sem þú áttir eftir að gera
og upplifa, 41 ár er bara of stutt á
þessari jörð.
Guð og góðir englar varðveiti
þig og gefi þér hamingjuríka vist
á himni sem þú átt svo skilið.
Þín stóra systir ,
Berglind og fjölskylda.
Elsku mamma
mín, nú þegar ég
kveð þig er efst í
huga mér þakklæti. Fyrst og
fremst fyrir að eiga vináttu þína,
það er ekki sjálfgefið að mæðgur
nái svo vel saman að þær njóti sam-
vistanna. Þér var einkar lagið að
umgangast fólk og varst ekki ein-
ungis vinur minn heldur allra af-
komenda þinna. Við áttum sameig-
inlega áhuga á sveitinni, rækt-
uninni og dýrunum sem ég á. Þú og
Guðrún deilduð svo sameiginlega
áhuga á menningu og listum en þar
var ég úti á túni. Svona náðir þú til
hvers og eins á þinn hátt. Hvar sem
ég fer hitti ég fólk sem dásamar
vináttu þína. Þú hafðir áhuga á að
rækta líkama og sál, þar kom
sterkt inn sund, jóga, bókmennta-
klúbbur, félagsvist og krossgátur.
Nú síðari ár fórstu oft í bingó í
Hæðargarðinum og komst ósjald-
an með vinninga þaðan sem og úr
félagsvistinni. Handavinna hvers
Sigrún
Guðmundsdóttir
✝ Sigrún Guð-mundsdóttir
fæddist 12. nóv-
ember 1931. Hún
lést 20. nóvember
2015.
Útför Sigrúnar
fór fram 4. desem-
ber 2015.
kyns, en þó aðallega
prjónaskapur, var
þér að skapi og hafðir
þú nýlokið við að
prjóna eina sokka og
varst búin að kaupa í
aðra. Heimili ykkar
pabba var alltaf opið
fyrir fjölskylduna og
þið alltaf boðin og bú-
in að hjálpa. Það er
ekki gleymt hvað þið
voruð alltaf tilbúin að
passa dætur mínar og alltaf kom-
um við of snemma að sækja þær að
ykkar sögn. Þið voruð bæði tvö
mjög dugleg og sjálfbjarga, eitt-
hvað sem ég vil reyna að tileinka
mér. Alla tíð komstu ekki svo í
heimsókn að þú tækir ekki þátt í
heimilishaldinu, braust saman
þvott, gekkst frá í eldhúsinu eða
hvað það var sem þurfti að gera. Þú
varst aldrei gestur sem þurfti að
stjana við sama hvað ég bað þig um
að slaka á, ég væri fullfær um
þetta. Það reyndi á þig að búa ein
eftir að pabbi dó en samt vildir þú
hvergi annars staðar búa en í Gaut-
landinu. Við fjölskyldan gerðum
okkar besta til að hlúa að þér en að
öllum ólöstuðum verðum við að
þakka Valdísi, vinkonu þinni,
ómælda umhyggju og aðstoð. Þín
dóttir,
Hallfríður (Fríða).
Harpa Heimisdóttir
Útfararstjóri
Hrafnhildur Scheving
Útfararþjónusta
Kirkjulundur 19 210 Garðabær
sími 842 0204 www.harpautfor.is
Elskuleg móðir mín,
HALLFRÍÐUR KRISTÍN
FREYSTEINSDÓTTIR,
lést á Droplaugarstöðum
22. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
samkvæmt ósk hinnar látnu.
Við þökkum auðsýndan hlýhug og samúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Guðbjörg Kristín Arnardóttir.
SKÚLI GUÐJÓNSSON,
Dælengi 1, Selfossi,
lést mánudaginn 30. nóvember. Útförin fer
fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn
16. desember klukkan 14.
.
Magnús Skúlason, Sigríður Sigurjónsdóttir,
Kolbrún Skúladóttir, Sigurbergur Brynjólfsson,
Aðalbjörg Skúladóttir, Bárður Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns og
föður okkar,
SIGURÐAR G. SIGURÐSSONAR,
sem lést 19. nóvember.
.
Oddhildur Guðbjörnsdóttir,
Dýrfinna Hrönn Sigurðardóttir,
Guðrún Birna Sigurðardóttir,
Ingibjörg Erla Sigurðardóttir.
Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
okkar ástkæra föður, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR EYJÓLFSSONAR,
Árbakka 9, Seyðisfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks HSA fyrir
góða umönnun og hlýlegt viðmót á
erfiðum stundum.
.
Sigríður Þ. Sigurðardóttir, Smári Magnússon,
Guðjón Sigurðsson, Þrúður Guðmannsdóttir,
Eydís Dögg Sigurðardóttir, Óli Már Eggertsson
og barnabörn.
Við þökkum innilega hlýhug og vináttu
vegna andláts og útfarar
ÞÓRS HEIMIS VILHJÁLMSSONAR.
.
Ragnhildur Helgadóttir, Þórunn Þórsdóttir,
Kristín Þórsdóttir, Þórir Óskarsson,
Inga Þórsdóttir, Stefán Einarsson,
Helgi Þórsson, Guðrún Eyjólfsdóttir.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800