Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 82
82 INNINGAR Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Í
dag, laugardag: Biblíufræðsla kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður er
Eric Guðmundsson. Barna- og ung-
lingastarf.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyj-
um | Í dag, laugardag: Guðsþjónusta
kl. 12.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akur-
eyri | Í dag, laugardag: Biblíurannsókn
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Barna-
starf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suður-
nesjum | Í dag, laugardag: Biblíu-
fræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12.
Ræðumaður: Stefán Rafn Stefáns-
son.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Í
dag, laugardag: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður er
Birgir Óskarsson. Barna- og unglinga-
starf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnar-
firði | Í dag, laugardag: Guðsþjónusta
kl. 11. Ræðumaður er Lilja Ármanns-
dóttir. Biblíufræðsla kl. 11.50. Barna-
og unglingastarf. Umræðuhópur á
ensku. Súpa og brauð eftir samkomu.
AKRANESKIRKJA | Jólaball sunnu-
dagaskólans kl. 11 í Vinaminni. Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14.
AKUREYRARKIRKJA | Aðventu-
hátíð barnanna kl. 11. Umsjón sr.
Sunna Dóra Möller, Sigríður Hulda Arn-
ardóttir og Sigrún Magna Þórsteins-
dóttir. Yngri barnakór Akureyrarkirkju
syngur og strengjasveit frá Tónlistar-
skóla Akureyrar leikur. Jólasagan og
jólasöngvar.
AKURINN kristið samfélag | Sam-
koma í Núpalind 1 kl. 14. Biblíu-
fræðsla, söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta og jólaball kl. 11. Prestur Þór
Hauksson ásamt Ingunni Björk Jóns-
dóttur djákna. Cecilía Rán Rúnarsdótt-
ir les frumsamda jólasögu. Helga
Hrund Ólafsdóttir kveikir á hirðakert-
inu. Undirleikur Kjartan Jósefsson
Ognibene. Sameiginlegt jólaball Ár-
bæjarkirkju og Fylkis að lokinni guðs-
þjónustu í safnaðarheimili kirkjunnar.
Jólasveinar líta inn með glaðning fyrir
börnin.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. María Ágústsdóttir héraðsprestur
prédikar og þjónar fyrir altari. Kristný
Rós Gústafsdóttir djákni annast sam-
verustund sunnudagaskólans ásamt
Jarþrúði Árnadóttur guðfræðinema.
Hljómfélagið syngur undir stjórn Fjólu
Kristínar Nikulásdóttur. Organisti
Magnús Ragnarsson. Kaffi eftir
messu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Stefán Már
Gunnlaugsson, sóknarprestur að Hofi
í Vopnafirði, prédikar. Sr. Kjartan Jóns-
son þjónar fyrir altari. Kór Ástjarnar-
kirkju syngur undir stjórn Matthíasar V.
Baldurssonar. Meðhjálpari er Sigurður
Þórisson. Sunnudagaskóli á sama
tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jóns-
dóttur.
BESSASTAÐAKIRKJA | Jóla- og að-
ventuhátíð barnanna kl. 11. Settur
verður upp helgileikur. Umsjón með
stundinni hafa Fjóla, Sigrún Ósk og sr.
Hans Guðberg. Hljómsveitin Læri-
sveinar Hans leikur undir stjórn Bjarts
Loga organista.
BORGARPRESTAKALL | Aðventu-
hátíð barnanna í Borgarneskirkju kl.
11. Messa í Borgarkirkju kl. 14.
Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur
Þorbjörn Hlynur Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur Gísli Jónasson. Félagar úr
kór Breiðholtskirkju leiða safnaðar-
söng, organisti er Örn Magnússon.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá
Steinunnar Leifsdóttur. Kirkjukaffi á
eftir. Ensk messa kl. 14. Prestur
Toshiki Toma, organisti er Örn
Magnússon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Jólasöngvar fjöl-
skyldunnar í fjölskyldusamveru í Bú-
staðakirkju kl. 11. Samvera fyrir alla
fjölskylduna, þar sem jólalögin eru
sungin. Börn úr Fossvogskóla flytja
jólaguðspjallið í helgileik. Þennan
sunnudag er ein messa kl. 11.
DIGRANESKIRKJA | Jólaball sunnu-
dagaskólans hefst kl. 11 með helgi-
stund í kirkjunni en síðan verður geng-
ið til kapellu þar sem dansað verður í
kringum jólatréð. Eftir samveruna
verður kakó og smákökur í safnaðar-
sal. Tónleikar Söngvina kl. 16 í kirkj-
unni.
Dómkirkja Krists konungs, Landa-
koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á
pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á
pólsku, kl. 15 á litháísku, kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18 og má., mi.
og fö. kl. 8, laug. kl. 16 á spænsku og
kl. 18 er sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, séra
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Dómkórinn syngur undir
stjórn Kára Þormars organista. Barna-
starf á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs
Jóns og Sigga Jóns. Norsk messa kl.
14, séra Þorvaldur Víðisson þjónar,
organisti er Kári Þormar og Dómkórinn
syngur.
FELLA- og Hólakirkja | Jólahátíð
sunnudagaskólans kl. 11. Dansað
kringum jólatré, jólalög sungin og jóla-
sveinn mætir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11.Aðventukvöldvaka kl.
20. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða
sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudaga-
skólanum lýkur með hátíðarstund kl.
11. Biblíufræðsla og brúðuleikrit í
kirkjusalnum, síðan dansað í kringum
jólatré og sungið í kaffisalnum. Síðan
hressing og föndur. Almenn samkoma
kl. 13 þar sem Pétur Erlendsson pré-
dikar og tónlistarhópur kirkjunnar leið-
ir lofgjörð. Gæsla fyrir börn, kaffi og
samvera í lokin og verslun kirkjunnar
verður opin.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Jólastund
barnanna hefst kl. 14 með stuttri
helgistund. Aðventukvöld kl. 20. Fjöl-
breytt tónlist. Ræðu flytur Guðrún
Jónsdóttir, talskona Stígamóta. Séra
Hjörtur Magni stýrir stundinni. Fram
koma Guðrún Gunnarsóttir söngkona,
Sönghópurinn við Tjörnina, Gunnar
Hrafnsson kontrabassi, Snorri Sigurð-
arson, trompet, Matthías Hemstock,
slagverk, og Gunnar Gunnarsson,
píanó.
FÆREYSKA sjómannaheimilið |
Leygardagin kl. 14 verður familjumøti
við Kristiannu og Torleif Johannesen
av Nesi. Sunnudagin kl. 16 verður
møti við Torleif Johannesen, sjómans-
trúboðara. Eftir møtini er drekkamuður
at fáa.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11.
Sameiginlegt upphaf í barnastarfi.
Prestur Jón Ómar Gunnarsson. Kór
Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Val-
mars Väljaots. Tónleikar kórs Glerár-
kirkju kl. 16.
GRAFARVOGSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Jólasveinar og
jólaball. Séra Guðrún Karls Helgudótt-
ir og Þóra Björg Sigurðardóttir sjá um
stundina. Undirleikari er Stefán Birki-
sson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í
SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra Sig-
urður Helgason prédikar og þjónar fyrir
altari. Vox Populi syngur. Organisti:
Hilmar Örn Agnarsson. Sameiginlegur
sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl.
11 með jólasveinum og jólaballi.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barna-
starf kl. 11, í umsjá Silvíu, Ástu Lóu
o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga. Sam-
skot til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Messuhópur þjónar. Kór frá Domus
vox syngur, skólastjóri Margrét J.
Pálmadóttir. Organisti Ásta Haralds-
dóttir. Prestur Ólafur Jóhannsson.
Kaffi eftir messu. Hversdagsmessa á
fimmtudag kl. 18.10-18.50. Þorvaldur
Halldórsson sér um tónlist.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheim-
ili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrr-
um þjónandi presta í hátíðasal Grund-
ar kl. 14. Séra Sigfús J. Árnason
þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir
stjórn Kristínar Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11.
Prestur Sigurjón Árni Eyjólfsson, org-
anisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð-
arkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Ás-
bjargar Jónsdóttur og Valbjörns S.
Lilliendahl. Meðhjálpari Kristbjörn
Árnason. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir. Kaffi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Jóla-
ball kl. 11. Gengið í kringum jólatréð,
Sveinki lítur inn. Jólavaka við kertaljós
kl. 20. Ólöf Nordal innanríkisráðherra
flytur ræðu. Barbörukórinn og ung-
lingakór kirkjunnar syngja. Hljóðfæra-
leikur. Í lok stundarinnar er kirkjan
myrkvuð og kveikt verður á kertum við-
staddra. Kakó og piparkökur í safnað-
arheimilinu á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt sr. Leonard F. Ashford, hópi
messuþjóna og fermingarungmenn-
um. Kvennakór Háskóla Íslands syng-
ur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.
Organisti er Björn Steinar Sólbergs-
son. Umsjón með barnastarfi hafa
Inga Harðardóttir, Rósa Árnadóttir og
Sólveig Anna Aradóttir. Bænastund
mánud. kl. 12.15, fyrirbænaguðsþjón-
usta þriðjud. kl. 10.30, kyrrðarstund
fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11 á
50 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Bisk-
up Íslands, frú Agnes M. Sigurðardótt-
ir, prédikar. Kór Háteigskirkju syngur.
Organisti Kári Allansson. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir og sr. Eiríkur Jó-
hannsson þjóna fyrir altari. Aðventu-
söngvar við kertaljós kl. 20. Minnst 50
ára vígsluafmælis kirkjunnar. Tómas
Sveinsson, fv. sóknarprestur, flytur há-
tíðarræðu. Fermingarbörn lesa ritning-
arlestra. Karlakórinn Esja syngur. Org-
anisti Kári Allansson. Veitingar í
safnaðarheimilinu að athöfn lokinni.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjáns-
son þjónar. Organisti Guðný Einars-
dóttir. Félagar úr kór kirkjunnar leiða
söng og messusvör. Sunnudagaskóli
kl. 11 á neðri hæð. Jólaball að sunnu-
dagaskóla loknum. hjallakirkja.is
HJÚKRUNARHEIMILIÐ EIR | Aðven-
tuguðsþjónusta kl. 15.30. Séra Vigfús
Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir
altari. Þorvaldur Halldórsson spilar og
syngur frá kl. 15.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13. Edda M. Swan prédikar.
Barnastarf á sama tíma. UNIK verður
með basar. Samvera og kaffi eftir
stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Jólaball kl.
11 í Keflavíkurkirkju. Félagar úr kirkju-
kórnum halda uppi stemningu á árlegu
jólaballi Keflavíkurkirkju. Nokkrir
sveinar koma með hollt góðgæti.
Sunnudagskvöld kl. 20. Aðventukvöld
- Kór Keflavíkurkirkju syngur jólalög
ásamt börnum í skapandi söng- og
leiklistarstarfi kirkjunnar. Stundin er í
umsjón Arnórs organista, sr. Erlu og
sr. Evu Bjarkar. Kirkjulundur fimmtu-
daginn 17.12. Kl. 9-12 verður úthlut-
un á jólaaðstoð til umsækjenda.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Börn frá
leikskólanum Kópasteini flytja helgi-
leik. Sunnudagaskólinn tekur þátt í
stundinni, sem er leidd af sr. Sigurði
Arnarsyni og Þóru Marteinsdóttur.
Lenka Mátéová annast undirleik.
LANGHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jóhanna
Gísladóttir þjónar og prédikar. Kór
Vogaskóla undir stjórn Jóhönnu Hall-
dórsdóttur syngur fyrir kirkjugesti.
Birna Kristín Ásbjörnsdóttir spilar und-
ir. Ingbjörg Hrönn Jónsdóttir tekur á
móti börnum í sunnudagaskólanum.
Messuþjónar og fermingarbörn að-
stoða við messuhald. Kaffi, djús og
piparkökur eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA | Jólaball kl.
11. Stutt helgistund í upphafi og síðan
dansað í kringum jólatré. Jólasveinar
mæta. Styrktartónleikar Kvenfélags
Laugarneskirkju kl. 17. Allur ágóði fer
til bágstaddra í hverfinu.
LÁGAFELLSKIRKJA | Jólastund
barnastarfsins verður í Lágafellskirkju
kl. 11. Sr. Kristín Pálsdóttir, sr. Arndís
Linn og Hreiðar Örn leiða stundina.
Organisti er Keith Reed. Jólasveinn
heimsækir kirkjuna í lok athafnar.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Aðventuhátíð kl. 20.
Kór Lindakirkju, stjórnandi Óskar Ein-
arsson, við undirleik hljómsveitar skip-
aðrar Friðriki Karlssyni, Jóhanni Ás-
mundssyni og Sigfúsi Óttarssyni.
Unglingagospelkór Lindakirkju, stjórn-
andi Áslaug Helga Hálfdánardóttir.
Gestasöngvarar eru Eyþór Ingi, Hera
Björk og Regína Ósk auk Hálfdáns
Helga og söngtríósins Harmony. Að-
gangur er ókeypis. Húsið opnað kl.
18.30.
NESKIRKJA | Ljósamessa og barna-
starf kl. 11. Sameiginlegt upphaf.
Fermingarbörn lesa, leiða bænagjörð
og tendra ljós. Félagar úr Kór Nes-
kirkju leiða safnaðarsöng. Organisti
Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli
S. Ólafsson. Söngur og sögur í barna-
starfinu. Umsjón Sigurvin, Andrea,
Katrín, Oddur og Ari. Seld verða kerti
fyrir Hjálparstarf kirkjunnar eftir
messu. Samfélag og kaffi á Torginu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarð-
vík | Sunnudagaskóli kl. 11 í Ytri-
Njarðvíkurkirkju. Umsjón hafa María
og Heiðar.
Reykhólakirkja | Aðventukvöld kl.
20.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni | Að-
ventuguðsþjónusta kl. 14. Sigrún
Steingrímsdóttir organisti leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Í lokin verður
talað sérstaklega við börnin og sung-
ið. Prestur Kristinn Ágúst Friðfinns-
son.
SALT kristið samfélag | Samkoma
kl. 14. Hvernig notum við tímann?
Ræðumaður sr. Kjartan Jónsson. Túlk-
að á ensku. Barnastarf.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Biblíusaga og jólasöngvar.
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
spilar. Nýr límmiði og mandarínur í lok-
in. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bryndís
Malla Elídóttir þjónar, Tómas Guðni
Eggertsson leikur á orgel, Kór Selja-
kirkju syngur. Kaffi að guðsþjónustu
lokinni. Tónleikar Karlakórsins Fóst-
bræðra kl. 17. Auður Gunnarsdóttir
syngur einsöng, stjórnandi er Árni
Harðarson. Enginn aðgangseyrir.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Pálína
Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi ásamt
leiðtogum. Sóknarprestur þjónar. Org-
anisti kirkjunnar leikur á orgelið. Jóla-
sveinninn færir börnunum gjafir. Kaffi-
veitingar. Flóamarkaður á neðri hæð
kirkjunnar.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Að-
ventukvöld kl. 18. Kór Seyðisfjarðar-
kirkju syngur og leiðir almennan safn-
aðarsöng. Kórstjóri er Sigurbjörg
Kristínardóttir, organisti er Sigurður
Jónsson og flautuleikari Berglind Hall-
dórsdóttir. Ljósaþáttur í flutningi ferm-
ingarbarna. Börn úr TTT-starfi flytja
helgileik. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir
hefur umsjón með stundinni og með-
hjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Prestur Egill Hallgrímsson. Org-
anisti Jón Bjarnason. Aðventukvöld kl.
20. Ræðumaður er Jóhanna Magnús-
dótir, prestur á Sólheimum. Skálholts-
kórinn syngur. Unglingar úr Bláskóga-
skóla flytja tónlist undir stjórn Karls
Hallgrímssonar. Fermingarbörn sjá um
ljósastund. Kristján Valur Ingólfsson
Skálholtsbiskup og Egill Hallgrímsson
sóknarprestur flytja ávörp, ritningar-
orð, bænir og blessunarorð. Organisti
og kórstjóri er Jón Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli
og jólaball kl. 11. Englarnir Ketill og
Kanna segja jólaguðspjallið og Heiðar
Örn Kristjánsson stýrir söng ásamt
Helgu Björk Jónsdóttur. Síðan er jóla-
ball í safnaðarheimili.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Fjölskylduhátíð kl. 11. Börn sýna helgi-
leik í umsjá Bryndísar Svavarsdóttur.
Organisti er Helga Þórdís Svavarsdótt-
ir. Prestur er Bragi J. Ingibergsson.
Kaffi, djús og kex eftir guðsþjónustu.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Aðventu-
samkoma kl. 17. Voces Masculorum
syngur. Börn frá Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar leika á hljóðfæri og kór kirkj-
unnar leiðir almennan söng. Sunnu-
dagaskóli kl. 11 í umsjá Maríu og
Heiðars. Stefán organisti leikur undir
söng. Kaffi, djús og kökur að skóla
loknum.
ÞORLÁKSKIRKJA | Orgelstund kl.
20 þriðjudag 15. desember. Látinna
minnst.
Bægisárkirkja
Orðsending
Jóhannesar.
(Matt. 11)
✝ Ólöf (Ollý)Finns Stanleys-
dóttir Svendsen
fæddist í
Vestmannaeyjum
8. maí 1936. Hún
lést 1. desember
2015 á hjúkrunar-
heimili í Klæbu í
Noregi.
Hún var dóttir
hjónanna Stanleys
Alexanders
Guðmundssonar, f. 1901, d.
1940, og Sigrúnar Finnsdóttur,
f. 1894, d. 1973. Systkini hennar
eru Ingibjörg, f. 1924, Greta Ís-
fold, f. 1927, Perla Finnborg, f.
1929, Sigurður Heiðar, f. 1931,
d. 2010, Guðrún Ída, f. 1934.
Ólöf tók ljósmæðrapróf 1961
og vann á Fæðingarheimili
Reykjavíkur, Fyl-
kessykehuset í
Molde og fæðing-
ardeild í Þránd-
heimi. Hún giftist
Gunnari Emil
Svendsen frá
Þrándheimi, f.
11.11. 1931, d. 2014.
Dætur þeirra eru:
1) Linda Sigrún, f.
1967, börn hennar
eru Adelen, Mar-
ielle, Andeas og Emilie. Dóttir
Marielle er Martine. 2) Angelica,
f. 1970, maður hennar er Kjeld
Inge Iversen. Börn þeirra eru
tvíburarnir Alexander og Ing-
rid, f. 2004.
Útför Ólafar fór fram frá
kirkjunni í Klæbu fyrir sunnan
Þrándheim 10. desember 2015.
Þegar ég var tveggja ára
fæddist litla systir mín heima í
Vestmannaeyjum. Þegar ljós-
móðirin kom heim skildist mér
að nú ætti að afhafast eitthvað
með nýfædda barnið. Ljósmóð-
irin og mamma fóru fram í eld-
hús til að hita vatn.
Mér þótti þær vera of lengi
svo ég fór rakleiðis að vöggunni,
tók upp litlu systur mína og bar
hana fram til þeirra. Þegar þær
sáu mig koma með ungbarnið
þorðu þær varla að draga and-
ann af ótta við það að ég myndi
missa Ollý litlu og stórslasa
hana. Þessu man ég að sjálf-
sögðu ekki eftir sjálf, en mamma
sagði mér frá því þegar ég
komst til vits og ára. Allt frá
þessari stundu héldum við Ollý
saman gegnum bernskuna í Eyj-
um.
Við vorum yngstar af systk-
inahópnum og skildum hvor
aðra svo vel. Eftir að ég giftist
Smára og flutti með honum í
Kópavoginn kom hún oft til okk-
ar, þar sem við áttum góðan
tíma saman. En það kom svo að
því að hún kynntist ástinni í lífi
sínu, honum Gunnari og flutti til
hans til Noregs. Um það leyti
fæddist yngsta dóttir okkar
Smára og tók hann ekki annað í
mál en að hún fengi nafnið
hennar frænku sinnar. Svo við
fengum litla Ollý í staðinn og
héldum nafninu hennar hjá okk-
ur.
Eftir að ég missti Smára 1995
fór ég næstum árlega til Þránd-
heims í heimsókn þau 11 ár sem
ég var ekkja. Þá gátum við
ferðast saman. Alltaf var stutt í
gleðina og hláturinn. Stundum
náðum við varla andanum, við
hlógum svo mikið. Þetta var al-
veg eins og þegar við vorum
með mömmu í gamla daga. Það
var greinilegt að við fengum
hláturgenin frá henni.
Ollý var mjög trúuð kona og
gat alltaf séð björtu hliðarnar í
bland við alvöru lífsins. Hún var
mikill sáttasemjari og vildi lifa
lífinu í sátt og samlyndi við Guð
og menn.
Ég er svo fegin að við Ollý
yngri gátum farið í heimsókn til
litlu systur minnar í lok sept-
ember síðastliðins. Við gátum
bæði hlegið og grátið saman. Við
gerðum okkur grein fyrir því að
þetta yrði í síðasta skipti sem
við myndum hittast hér á jörð.
Við vorum báðar svo heppnar að
hafa þá fullvissu að við myndum
fá að sjást og vera saman aftur
þegar Jesús kemur að sækja
okkur heim til sín. Þá verður
örugglega hlegið mikið og haft
gaman.
Lífið mitt hefur verið dýr-
mætara vegna þess að ég átti
þessa ástríku systur. Ég þakka
henni fyrir allt og allt. Megi góð-
ur Guð styrkja og styðja litlu
fjölskylduna hennar í Noregi
Ída systir.
Frá sumarmóti á Klausturhól-
um í Grímsnesi varðveitist enn í
huganum 70 ára gömul mynd af
móður með barni sínu. Móðirin
hét Sigrún Finnsdóttir frá Vest-
mannaeyjum sem í sumarsólinni
greiddi síða lokka átta ára dótt-
ur sinnar, hennar Ollýjar. Móð-
urástin og umhyggjan lýsti úr
andliti hennar, og það var aug-
ljóst af svip stúlkunnar að henni
þótti mjög vænt um mömmu
sína.
Mér var sagt að Sigrún hefði
misst mann sinn frá sex börn-
um. Þegar komið var kvöld og
góðu dagsverki var lokið tók við
kvöld- og næturvinnan hjá henni
til að ná endum saman. Hún
saumaði vandaðan fatnað á eyj-
arskeggja. Börnin hennar nutu
þess líka að hún var fær með
nálina og þá saumavél sem
kaupmaðurinn lét hana hafa
gegn borgun þegar hún gat látið
hann hafa eitthvað af því sem
hún fékk fyrir saumaskapinn.
Þarna var fögur íslensk móðir til
fyrirmyndar.
Á sumarmótum sem þessum
hlupu börnin hvert innan um
annað í leikjum og sú kynning
okkar entist ævilangt. Mörgum
árum síðar varð ég ekkjumaður
og stuttu eftir það hringdi Ollý í
mig.
Með hlýjum rómi veitti hún
mér alla sína samúð. Samtalið
barst að Ídu, eldri systur henn-
ar, sem hafði þá verið ekkja í 11
ár. Henni fannst að ég ætti að
hafa samband við hana. Þess
vegna stend ég í þakkarskuld
við Ollý fyrir skilning hennar og
samúð. Nú hefur stóra systir
hennar verið styrkur minn og
hughreyst mig síðastliðin 10 ár.
Guð blessi minningu Ollýjar.
Jóhann Þorvaldsson.
Með ást og virðingu sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og þökkum fyrir þær
ánægjustundir í gegnum árin
sem elskuleg Ollý okkar hefur
veitt okkur. Minningin góða um
litlu systur hennar mömmu mun
lifa áfram í hjörtum okkar. Okk-
ur þykir leitt að geta ekki fylgt
henni síðasta spölinn, en kveikj-
um á kertum og hugsum til
elskulegu litlu fjölskyldunnar
hennar í Noregi. Angelica, Kjell
Inge, Ingrid, Alexander, Linda,
Börge, Adelen, Marielle, Thom-
as, Andreas, Emilie og litla
Martine. Guð styrki ykkur og
styðji á erfiðri sorgarstundu.
Megi gæfan þig geyma,
megi Guð þér færa sigurlag.
Megi sól lýsa þína leið,
megi ljós þitt skína sérhvern dag.
Og bænar bið ég þér,
að ávallt geymi þig
Guð í hendi sér.
(Þýð. Bjarni Stefán Konráðsson)
Írsk bæn
Perla, Lilja, Birna, Heiðar,
Ollý og Birgir, Smára og
Ídu börn á Íslandi.
Ólöf (Ollý) Finns
Stanleysdóttir
Svendsen