Morgunblaðið - 12.12.2015, Blaðsíða 90
90 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Ragnar Ingi Sigurðsson endurheimti Íslandsmeistaratitilinnsinn í skylmingum fyrir mánuði eftir að hafa tekið sér hlé fráÍslandsmótinu í fimm ár. Alls hefur hann unnið titilinn 14
sinnum. „Það blundaði alltaf í mér að byrja aftur og þetta er svo rosa-
lega skemmtilegt að ég hugsa að ég hætti aldrei í þessu. Á næsta ári
get ég líka farið að keppa í öldungaflokki.“ Ragnar Ingi hefur orðið
Norðurlandameistari átta sinnum. „Ég ætla að setja stefnuna á að
verða Norðurlandameistari bæði í opnum flokki og öldungaflokki á
næsta ári. Það hefur, held ég, aldrei gerst áður. Svo ætla ég líka að
keppa á Evrópumótinu í öldungaflokki.“
Ragnar Ingi hefur verið yfirþjálfari hjá skylmingadeild FH síðan
2003 en FH hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn í liðakeppni í tíu ár í
röð auk þess að hafa orðið Norðurlandameistari í liðakeppni.
„Ég byrjaði í skylmingum 1992 þegar eldri systir mín ákvað að
prófa þær og við tvíburasystir mín fórum með henni. Þær voru í viku
en ég hef verið hér síðan. Ég fór líka snemma að þjálfa, byrjaði að að-
stoða Nikolay Mateev hjá Skylmingafélagi Reykjavíkur árið 1995. Ég
lærði mikið af Nikolay; hann byggði upp íþróttina hér á landi en hann
er frá Búlgaríu. Svo hef ég tekið ýmis námskeið.“ Ragnar Ingi er
íþróttakennari í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði og segir fátt annað en
íþróttir komast að hjá sér.
Börn Ragnars Inga eru Viktoría Huld 13 ára og Jörundur Ingi 10
ára. Tvíburasystir hans heitir Helga Rut og eldri systirin er Erla
Björg. Svo á hann eina yngri systur sem heitir Hrefna.
„Það verður fjölskylduhittingur í kvöld, þakkargjörðarstemning
því það verður kalkúnn í matinn með öllu tilheyrandi.“
Morgunblaðið/Golli
Skylmingameistarinn Ragnar Ingi hefur fjórtán sinnum orðið
Íslandsmeistari og átta sinnum Norðurlandameistari.
Endurheimti titilinn
Ragnar Ingi Sigurðsson er 39 ára í dag
G
ísli fæddist í Súðavík
12.12. 1945 og ólst þar
upp fyrstu árin en flutti
á Akranes 1951.
Gísli lauk gagnfræða-
skólaprófi á Akranesi 1962, vélvirkja-
prófi frá Iðnskóla Akraness 1968,
stundaði nám í sementsvélaviðhaldi
hjá Ålborg Portland í Danmörku
1976-77, lauk vélstjóraprófi frá FV
1982 og öðlaðist skipstjórnarréttindi
fyrir 30 tonna báta 1989. Hann tók
steypustjóraréttindi hjá Ístaki 2011.
Gísli fór háseti á síldarbát er hann
var 13 ára og var á síld fyrir Norður-
landi í fjögur sumur: „Ég náði í skott-
ið á síldarstemningunni á Siglufirði,
var t.d. á táragasballinu fræga 1959,
þegar lögreglan varð að nota gas til
að skakka leikinn. Ég var of ungur til
að smakka vín en var „flöskupassari“
fyrir skipsfélaga mína meðan þeir
stigu dans og slógust.“
Gísli var verkamaður hjá Sements-
verksmiðju ríkisins frá 1963, vél-
Gísli S. Einarsson, fyrrv. bæjarstjóri og alþingismaður – 70 ára
Í vinahópi Gísli á fundi Alþjóðaþingmannasamtaka með Magnúsi Stefánssyni, Einar K. Guðfinnssyni og Geir Haarde.
Fyrrverandi bæjarstjóri
er nú alsæll við beitningu
Glæsileg brúðhjón Brúðkaupsmynd af Gísla og Ólöfu Eddu fyrir 51 ári.
Sunnudaginn 13.
des. nk. verður frú
Kristín Erla Guð-
mundsdóttir
kaupmaður,
Sunnubraut 8,
Garði, 70 ára.
Eiginmaður Krist-
ínar er Sigurður Ingvarsson raf-
verktaki.
Í tilefni afmælisins ætla Kristín Erla og
fjölskylda hennar að taka á móti gest-
um í Miðgarði, Gerðaskóla, þann sama
dag frá kl. 15.00-17.00.
Gjafir eru afþakkaðar, en söfnunar-
baukur verður á staðnum og allur
ágóði mun renna til NES, íþróttafélags
fatlaðra á Suðurnesjum.
Árnað heilla
70 ára
Reykjavík Katla
Sif Ketilsdóttir
fæddist 16.
september 2015
kl. 4.17. Hún vó
3.456 g og var
48 cm löng. For-
eldrar hennar
eru Birna Sif
Sigurðardóttir
og Ketill V.
Björnsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Kringlunni - 103 Reykjavík - Sími 578 8989 - www.myrinstore.is