Morgunblaðið - 12.12.2015, Síða 92
92 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015
Alltaf feti framar
gómsætur feti í salatið ogmeðmatnum
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það verður ekki gott að sjá hverjum
er treystandi næstu sólarhringana, svo þú
skalt undirbúa þig vel. Ekki bera þig saman
við aðra.
20. apríl - 20. maí
Naut Það reynir á trúnaðinn og ákveðnina,
þegar taka þarf ákvarðanir í viðkvæmum
málum. Vertu andlit þolinmæði, samúðar og
ástar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Leit þín að lífssannindum kann að
leiða þig á skrítnar brautir. Taktu þér tíma
til þess að íhuga stöðu þína í tilverunni.
Fáðu fólk með þér í heilsuátak þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver utanaðkomandi öfl eru að
rugla með skipulag þitt. Taktu hugmyndum
vinar opnum huga því þær gætu verið hið
eina rétta svar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt það á hættu að dragast inn í
valdabaráttu á vinnustað þínum. Fyrsta
skrefið í átt að heimsfriði er að skapa frið
innra með þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að eyða eins miklum tíma til
útivistar og þú mögulega getur. Reyndu að
veita vini stuðning, því samúð og skilningur
hjálpar í amstri dagsins.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur enginn beðið um meira en
að þú gerir þitt besta. Það er engum blöð-
um um það að fletta að þú átt aðdáanda.
Sá vægir sem vitið hefur meira segir mál-
tækið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Eitthvað óvænt og ánægjulegt
gæti komið í þinn hlut á leiðinni í vinnuna í
dag. Sendu þakkarbréf, hringdu eða hugs-
aðu til fólks með þakklæti í hjarta.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú verður að skipuleggja starf
þitt betur ef þú átt að koma einhverju í
verk. Þú brýtur heilann um kjaftasögur sem
ganga um vin þinn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú ert í vafa um hvaða leið þú
eigir að velja þá skaltu staldra við og velta
hlutunum betur fyrir þér. Láttu aðra vita af
því sem þú hyggst gera á nýju ári.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú verður ekki lengur undan því
vikist að ganga frá þeim leiðindamálum,
sem þú hefur verið að humma fram af þér.
Að hika er sama og tapa.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt rödd hjartans eigi enginn að
hunsa getur verið gott að láta höfuðið ráða
endrum og sinnum. Ekki gefa höggstað á
þér.
Síðasta laugardagsgáta var eftirGuðmund Arnfinnsson og
„gerð í fljótheitum“:
Nafnið margur maður ber.
Mun á orfi vera.
Skelfilegur skröggur er.
Í skilvindu í hringi fer.
Harpa á Hjarðarfelli á þessa
lausn:
Margur halur heitir Karl.
Hæll á orfi nefnist karl.
Gerist maður gamall karl.
Geysist hringina skilkarl.
Árni Blöndal leysir gátuna
þannig:
Margan Karl – ég kenni hér
Karl á orfi – neðri hæll.
Skröggur – Grýlu sonur er.
Skilkarl – rjóma gefur mér.
Helgi Seljan svarar:
Karlsheitið okkur kunnugt er,
karlinn á orfi mínu fann.
Skröggurinn gamall skrönglast hér,
skilvindu mun knýja hann.
Og bætir síðan við: „Svo var séra
Hjálmar hjá okkur eldri borgurum
á aðventustund og fór auðvitað á
kostum:“
Með höfuðstöfum hérna skálmar,
honum lúta orðsins pálmar.
Andríkinu ekkert tálmar,
er yrkingunum sinnir Hjálmar.
„Vonandi dugar þetta svar,“
segir Helgi R. Einarsson.
Þó mig skorti dáð og dug
og drífandi því teljist varla,
datt mér einna helst í hug
að hérna væri átt við karla.
Síðan bætir hann við: „Nú gnauð-
ar hressilega á glugga, en inni ríkir
bjartsýnin:
Ég ei á mínu liði ligg
er laufabrauð er skorið.
Súrmetið á þorra þigg,
því næst kemur vorið.“
Svar Guðmundar er:
Nafnið Karl hér algengt er.
Á orfi karl þú finnur víst
Karl afgamall kveðja fer.
Karl í skilvindunni snýst.
Síðan er limra:
Limruna listfengi meður
á labbi þá gott er veður
kerlingar til
að taka í spil –
Laugavegskarlinn kveður.
Og enn sem fyrr sendir Guð-
mundur þættinum gátu:
Milli fjalla finna má hann.
Flötum lófa ýmsir slá hann.
Margir vilja í veskið fá hann.
Vafra í skógi oft má sjá hann.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Saman fer karl og kýll
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ÁKVAÐ AÐ MÆTA Í DAG.
BILLJARDSTOFAN ER FULL.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... betri en rafmagns-
teppi.
KÆRA „SPYRJUM
HUND“…
„HVER ER GÓÐUR
LÍTILL HUNDUR?!
ESSASÚ?! HA?! HA?!“
ÉG GET EKKI LESIÐ
MEIRA AF ÞESSU
HELGA, ÞAÐ ER EKKI AÐ
ÉG NJÓTI EKKI SAM-
VERUSTUNDA OKKAR EN…
USSS!
EKKI
LÁTA ORÐ
STANDA Í
VEGINUM!
SÉRSTAKLEGA ÞEGAR ÉG ER AÐ
REYNA AÐ EINBEITA MÉR!
MEGRUNAR-
MIÐSTÖÐ
Í hádegis-
mat, kem
aftur eftir
150 kaloríur
Það eru engin takmörk fyrir þvíhvað hægt er að framleiða af
dóti, og þá sérstaklega af barna-
leikföngum. Kynstrin öll af hinum
ýmsu leikföngum troðfylla dótabúð-
irnar hvar sem drepið er niður fæti í
heiminum.
x x x
Víkverji brá undir sig betri fæt-inum og ferðaðist til útlanda fyrir
skemmstu. Eins og margra foreldra
er siður þá lögðu þeir sig í líma um að
kaupa eitthvað til að gleðja barnið við
heimkomuna. Það var ekki síst gert í
þeim tilgangi til að friða sína eigin
samvisku yfir því að hafa yfirgefið
barnið sem var að sjálfsögðu í vellyst-
ingum hjá ömmu og afa og kippti sér
ekki mikið upp við fjarveru þeirra.
x x x
Áður en haldið var af landi brottfékk Víkverji og betri helmingur
hans skýr fyrirmæli frá barninu um
það sem það óskaði sér helst af öllu.
Póníhestadúkka var það, heillin. Ekki
póníhestur eins og litli ormurinn á
talsvert af. Ekki póníhestabangsi eins
og litla krúttið á einnig. Heldur póní-
hestadúkka. Já, og það er til. Þrátt
fyrir að það stríði gegn öllum lög-
málum því hestur er hestur og er með
fjóra fætur þá gengur þessi svokall-
aða póníhestadúkka á tveimur upp-
réttum og minnir ekki vitund á póní-
hest, ekki nema þá helst eyrum sem
eru eins og á hesti. Annað er það
ekki.
x x x
Í fyrstu hélt Víkverji að barnið væriað bulla og efaðist um að þetta
væri til. Hann ætlaði í fyrstu að
kaupa bara venjulegan póníhest.
Þegar betur var að gáð í hillur dóta-
búðarinnar þá sá hann glitta í nokkr-
ar gerðir af þessum skrautlegu dúkk-
um.
x x x
Barnið var glatt og ánægt. Þá ermarkmiðinu náð. Þó Víkverja
finnist hann vera ofurseldur mark-
aðsbrellum leikfangaframleiðenda þá
lætur hann þetta eftir barninu.
Hversu langt ganga foreldrar ekki í
að uppfylla óskir barna sinna, þó það
þýði skrítið dót á óskalistanum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf
son sinn eingetinn til þess að hver sem
á hann trúir glatist ekki, heldur hafi
eilíft líf. (Jóh 3:16)