Morgunblaðið - 12.12.2015, Qupperneq 98

Morgunblaðið - 12.12.2015, Qupperneq 98
98 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 2015 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Hagnýtar jólagjafir Öflugur tjakkur 2.25 T lyftihæð 52 cm 19.995 Viðgerðarkollur hækkanlegur 7.995 Vönduð útskurðarjárn í trékassa 12 stk. Multi Socket 9-21 mm, komið aftur 19.995 Mössunarvél 1200W 16.895 3.995 Vinnuljós LED, hleðslu Útvarps- heyrnahlífar Fjölsög Höfftech 7.995 3.895 8.495 Viðgerðarbretti Verkfærasett 82 stk. 4.995 Gaman að láta hræða sig Grimmi tannlæknirinn bbbbn Texti: David Walliams. Myndskreytingar: Tony Ross. Íslensk þýðing: Guðni Kolbeinsson. Bókafélagið, 2015. 443 bls. Grimmi tannlæknirinn eftir David Walliams er besta bók höfundar sem undirrituð hefur lesið. Walliams daðraði við ákveðna viður- styggð í skáldsögu sinni Rottuborgari en í tannlæknabókinni dembir hann sér af fullum krafti út í hryllinginn með afar skemmtilegum hætti. Til að lesendur velkist ekki í neinum vafa um við hverju megi búast er áberandi viðvörum með hástöfum fremst í bókinni – og ekki vanþörf á. En hver vill ekki láta hræða sig smávegis? Sagan hverfist um hinn 12 ára Álf sem býr hjá einstæðum og heilsu- veilum föður sínum sem hann elskar út af líf- inu. Álfur er sjúklega hræddur við tannlækna og bera tennur hans þess merkis. Dag einn fara undirlegir atburðir að gerast í bænum þeirra. Börn sem leggja barnatennur sínar undir koddann í von um glaðning frá tannálf- inum finna þess í staðinn ógeðslega hluti á borð við dauða snigla, kattaskít og iðandi leðurblökuvængi. Um leið og tannlæknir bæj- arins deyr með voveiflegum hætti birtist frök- en Rót og er tilbúin að taka við keflinu. Hún er hins vegar ekki öll þar sem hún er séð. Álf- ur og Gabríella vinkona hans gruna fröken Rót um græsku og reynast hafa rétt fyrir sér. Við tekur æsispennandi atburðarás þar sem allar tennurnar eru dregnar úr barni og önnur lykilpersóna lætur lífið. Walliams er afar flinkur penni og kann að byggja upp spennandi fléttu. Stíllinn og per- sónur bókarinnar eru ýkt, en virka vel í öllum hryllingnum. Teikningar Tonys Ross eru sér- deilis vel heppnaðar sem og ýmsar þær letur- breytingar sem notaðar eru til að undirstrika bæði hljóð og óhljóð. Gaman er að sjá sjoppu- eigandanum Bótólfi bregða fyrir, en hann hef- ur verið aukapersóna í öllum fyrri skáldsögum Walliams, en fær aukið vægi í Grimma tann- lækninum. Kunnuglegt stef Gummi og huldufólkið bbbnn Texti: Dagbjört Ásgeirsdóttir. Myndir: Karl Jóhann Jónsson. Óðinsauga, 2015. 32 bls. Gummi og huldufólkið er fimmta bókin í bókaröð Dagbjartar Ásgeirsdóttur um Gumma og Rebba sem út kemur frá árinu 2012. Sem fyrr er Gummi staddur í sveitinni hjá ömmu sinni og afa og lendir þar í ógöng- um. Að þessu sinni álpast Gummi inn í álfa- klett við litla hrifningu álfakóngsins Tístrams sem lætur hneppa hann í varðhald með hót- unum um að hann sleppi aldrei út aftur. Þar kynnist hann velviljuðum húsálfi sem sendur er af Eyðfríði álfa- drottningu sem hyggst hjálpa honum út. Honum til hjálpar kemur einnig Sól- birta, móðir Tístrams, sem stendur í þakkar- skuld við fjölskyldu Gumma og vill launa góðvildina. Athygli vekur hversu ólík við- brögð kynjanna eru í álfheimum. Karlarnir eru, að húsálfinum einum undanskildum, refsiglaðir og reiðir meðan konurnar eru skilningsríkar og góðar. Sem fyrr eru myndir Karls Jóhanns Jóns- sonar afar tjáningarríkar, líflegar og litskrúð- ugar. Dagbjört skrifar lipran texta og leitast við að nota blæbrigðaríkt tungumál. Fram- vindan er hins vegar aðeins of kunnugleg í nýjustu bókinni, en þetta er þriðja bókin í röð um Gumma þar sem hann lokast inni og þarf að láta bjarga sér, og jafnframt þriðja bókin þar sem góðhjörtuð kona kemur til hjálpar. Vel heppnuð léttlestrarbók Skúli skelfir og múmían bbbnn Texti: Francesca Simon. Myndir: Tony Ross. Íslensk þýðing: Guðni Kolbeinsson. JPV útgáfa, 2015. 76 bls. Skúli skelfir og múmían eftir Francescu Simon er með betur heppnuðum bókum um hrekkjalóminn skelfilega sem greinarhöf- undur hefur lesið. Bókin geymir aðeins eina langa sögu í stað fjögurra styttri eins og venj- an hefur verið hingað til og er það til bóta. Að þessu sinni langar Skúla til að leika sér með ónotað leikfang sem Finnur litli bróðir hans á. Um er að ræða plastlíkama til að gera múmíu úr og bók með galdraþulum. Skúli stelst í dótið og þegar Finnur stendur hann að verki grípur Skúli til þess óyndisráðs að ljúga sig út úr klípunni. En auðvitað fær Skúli makleg málagjöld að lokum eins og vera ber. Bókin er ætluð byrj- endum í lestri og vel heppnuð sem slík. Letrið er stórt, setn- ingar stuttar, ekki of mikill texti á hverri síðu og nóg af mynd- um. Teikningar Tonys Ross njóta sín óvenjuvel í þessari bók, en það gerir mikið fyrir þær að vera birtar í lit. Þýð- ing Guðna Kolbeinssonar er að vanda vönduð. Metnaðarfullt verkefni Björt í sumarhúsi bbbbm Texti: Þórarinn Eldjárn. Tónlist: Elín Gunnlaugsdóttir. Myndir: Sigrún Eldjárn. Töfrahurð, 2015, 50 bls. bók og 37 mínútna hljómdiskur. Snemma árs var barnasöngleikurinn Björt í sumarhúsi sem tónskáldið Elín Gunnlaugs- dóttir samdi við texta Þórarins Eldjárn frum- sýndur við góðar viðtökur, en leikstjóri sýn- ingarinnar var Ágústa Skúladóttir. Söngtextanir voru allir fengnir úr ljóðabók Þórarins Gælur, fælur og þvælur, en hann raðaði ljóðunum saman þannig að þau segja heilsteypta sögu auk þess sem hann skrifaði samtölin á milli laganna. Hér er sögð sagan af því hvernig afi og amma reyna að létta Björt lundina, en henni líst ekkert á að þurfa að dvelja í sumarbústað með þeim. Í bókinni er textinn settur upp sem handrit að leikriti þannig að hann kallist algjörlega á við innihald hljómdisksins sem fylgir með. Þetta er óvenjuleg uppsetning á barnabók, en gæti stuðlað að því að lesendur venjist því að lesa leikhandrit. Bókin er ríkulega mynd- skreytt með nýjum litmyndum eftir Sigrúnu Eldjárn. Þeir sem sáu sýn- inguna á sínum tíma ættu að kann- ast við leikendur og leikmyndina í myndum Sigrúnar, því henni tekst af- bragðsvel að fanga útlit sýningarinnar og andlitsdrætti. Gaman er að sjá að lítil mús hefur fengið að lauma sér inn í bókina og tek- ur virkan þátt í sögunni, eins og þegar hún gluggar í bók meðan allir lesa. Eins og vera ber í söngleik er tónlistin í fyr- irrúmi. Raunar má segja að bókin og hljóm- diskurinn myndi órjúfanlega heild. Lög Elínar eru sérlega skemmtileg og útsetningar flottar. Hvert lag hefur sinn stíl sem kallast ein- staklega vel á við það sem sungið er um hverju sinni. Upptakan er mjög vel heppnuð, en upptökustjóri var Þorkell Máni Þorkels- son. Sem fyrr glansa Valgerður Guðnadóttir og Jón Svavar Jósefsson í hlutverkum sínum sem amman og afinn. Bragi Bergþórsson bregður sér léttilega bæði í hlutverk hlaupa- gikks og ókindar. Una Ragnarsdóttir syngur Björt eins og engill. Bókaútgáfan Töfrahurð á hrós skilið fyrir að ráðast í jafn metnaðarfullt verkefni og uppsetning og útgáfa Bjartar í sumarhúsi er. Hryllingur og pína Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar og þýddar barnabækur Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Flótti Álfur á flótta undan félagsráðgjafa sín- um sem ætlar að koma honum til tannlæknis. Kommóða Björt í sumarhúsi kynnist komm- óðu sem amma hennar kallar Jóhönnu. Úrslit í Jólalagakeppni Rásar 2 voru kynnt í þættinum Popplandi í gær og var sigurlagið „Morgunn í desember“, samið af Emil Hreiðari Björnssyni við texta Guðmundar Karls Brynjarssonar. Lagið flutti Íris Lind Verudóttir. Í öðru sæti varð „Það er jólalegt að vera leiður“ eftir Pál Ivan frá Eiðum sem samdi lagið, textann og flutti það. Í þriðja sæti varð „Gömlu jólin“ eftir Hilmar Karlsson og Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur, í flutningi Guðrúnar og Arnars Jónssonar. Tæplega 50 frumsamin jólalög bárust í Jólalagakeppni Rásar 2 í ár og tíu komust í úrslit. Kosning um besta lagið fór fram á vef RÚV. Jólalagakeppni Rásar 2 hefur nú verið haldin 13 sinnum og hefur hún vaxið og dafnað ár frá ári og er orðin fastur liður í jólaundirbúningi Rásar 2, að því er segir á vef RÚV. „Morgunn í desember“ besta jólalagið Emil Hreiðar Björnsson Í fordyri Hallgrímskirkju gefur nú að líta sýningu á verkum Erlu Þórarinsdóttur myndlistarkonu og kallar hún sýninguna „Kvenleikar / Genetrix“. Á sýningunni eru málverk lögð blaðsilfri. Á morgun, sunnudag klukkan 12.15, mun Erla leiða gesti um sýninguna og segja frá verkunum. Ásamt Erlu ræða við gesti þau Ólafur Gíslason listfræðingur, séra Sigurður Árni Þórðarson og Rósa Gísladóttir mynd- listarkona. Í verkunum í Hallgrímskirkju vinnur Erla með kvenleg form og veltir fyrir sér tengslum gyðja allt frá steinöld, þegar guðsmyndin var kvenkyns, til forn-Egyptalands og loks til Maríu meyjar. Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur að sýningunni og býður til leið- sagnarinnar. Sýning Erlu stendur fram á föstu. Erla Þórarinsdóttir ræðir við gesti á sýningu sinni í fordyri Hallgrímskirkju Erla Þórarinsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.