Morgunblaðið - 12.12.2015, Page 108
LAUGARDAGUR 12. DESEMBER 346. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 838 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. „Þú segir mér stórfréttir“
2. Kynlífsfíknin var flóttaleið
3. Ríkasti maður Kína horfinn
4. Sigmundur Davíð: Toppari þráir…
Dömukórinn Graduale Nobili held-
ur sína árlegu jólatónleika í Lang-
holtskirkju annað kvöld kl. 20 og
verður á efnisskránni verkið Cere-
mony of carols eftir Benjamin Britten
auk annarra klassískra jólalaga.
Stjórnandi tónleikanna í ár er Árni
Harðarson en hann hleypur í skarðið
fyrir Jón Stefánsson vegna veikinda.
Graduale Nobili held-
ur jólatónleika
Þjóðleikhúsið
og Héðinn Unn-
steinsson, höf-
undur bókarinnar
Vertu úlfur – war-
gus esto, hafa
gert með sér
samning um kaup
á rétti til að gera
leikgerð af verk-
inu með það að markmiði að hún
verði tekin til sýninga í leikhúsinu
veturinn 2017-18.
Þjóðleikhúsið kaupir
réttinn að Vertu úlfur
Bubbi Morthens mun flytja nokkur
valinkunn lög í Bréfamaraþoni Ís-
landsdeildar Amnesty International í
dag kl. 15 í Þingholtsstræti 27. Í
bréfamaraþoni samtakanna í ár er
hægt bregðast við vegna 12 áríðandi
mála og verður Búrkína
Fasó m.a. í brenni-
depli þar sem þús-
undir ungra stúlkna
eru þvingaðar í
hjónaband þar á
hverju ári. Bréfa-
maraþonið stendur
frá kl. 13 til 17.
Bubbi kemur fram í
þágu mannréttinda
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg átt og víða léttskýjað, en él eða dálítil snjókoma við
suður- og vesturströndina. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.
Á sunnudag Suðvestan 3-10 m/s og dálítil él vestanlands, en annars hægviðri og létt-
skýjað. Frost 2 til 12 stig.
Á mánudag Sunnan 8-13 m/s með slyddu eða rigningu á vestanverðu landinu og hita 0
til 5 stig. Hægara og úkomulítið austantil og minnkandi frost.
„Almennt er ég hlynntur því að tækn-
in sé notuð í afreksíþróttum til að
skera úr um vafaatriði. Í fótboltanum
hafa sár frá 1966 ekki enn gróið auk
þess sem hagsmunirnir eru orðnir
svo gríðarlegir í stærstu íþrótta-
greinunum. Hvort sem fólki líkar það
betur eða verr,“ skrifar Kristján Jóns-
son meðal annars í pistlinum Viðhorf
á laugardegi. »4
Valddreifing í dóm-
gæslu í hópíþróttum
Síðdegis í dag, eða upp úr
kl. 17, ræðst hverjir verða
andstæðingar íslenska
karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu þegar það keppir á
sínu fyrsta stórmóti. Hol-
lendingurinn Ruud Gullit og
Frakkinn Bixente Lizarazu
stýra drættinum og hafa
sér til fulltingis fleiri goð-
sagnir úr knattspyrnunni.
Örlög íslenska liðsins eru í
þeirra höndum. »2-3
Dregið í riðla fyrir
EM í Frakklandi
„Stephen er haldinn þráhyggju gagn-
vart markvörslu. Segja má að hann
hafi handboltamarkvörslu-ein-
hverfu,“ sagði Kári Kristján Krist-
jánsson, línumaður ÍBV
og íslenska lands-
liðsins, þegar hann
var beðinn um að
varpa ljósi á sam-
herja sinn, danska
mark-
vörðinn
Stephen
Nielsen
sem er leik-
maður umferð-
innar í Olís-deild karla
í Morgunblaðinu. »4
„Er haldinn þráhyggju
gagnvart markvörslu“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Jóhannes Már Gunnarsson, mat-
reiðslumeistari og yfirmatreiðslu-
meistari mötuneytis Grunnskóla
Seltjarnarness, fær mikið lof í nýrri
úttekt Berthu Maríu Ársælsdóttur,
matvæla- og næringarfræðings, á
mötuneyti grunn- og leikskóla Sel-
tjarnarness.
„Þessar jákvæðu niðurstöður
skipta mjög miklu máli fyrir mötu-
neytið enda staðfesta þær að hér sé
hollur og góður matur í boði fyrir
börnin á öllum skólastigum,“ segir
Jóhannes. „Við leggjum áherslu á að
vera með venjulegan mat.“
Jóhannes segir að börnin séu
skemmtileg og frjáls og heiðarleg.
„Þau láta mig vita hvort þeim finnst
eitthvað gott eða vont,“ segir hann
og bætir við að þátttaka þeirra í
matseðlinum hafi mælst vel fyrir.
Hafragrautur daglega
Hver bekkjardeild í 4., 5. og 6.
bekk fær að velja matinn tvisvar fyr-
ir áramót og tvisvar eftir áramót og
er kosið á milli rétta. „Þau kynnast
lýðræði með þessu fyrirkomulagi og
þau finna fyrir því að þau skipta
máli, því þau hafa eitthvað að gera
með mötuneytið sitt,“ segir Jóhann-
es. Í þessu sambandi má nefna að
nemendur í Valhúsaskóla kusu að
sleppa nammidegi, þar sem boðið
var upp á snúða og kökur, og fá í
staðinn salatbar, sem er í boði dag-
lega.
Boðið er upp á hafragraut alla
morgna og hefur það mælst vel fyrir
hjá börnum og starfsfólki. Jóhannes
segir að foreldrum nemenda í Mýr-
arhúsaskóla sé velkomið að koma og
borða hafragraut með börnum sín-
um og margir geri það.
Jóhannes segir að eftir því sem
börnin verði eldri sé erfiðara að fá
þau til þess að borða soðinn fisk.
„Andinn er þannig,“ segir hann og
bætir við að þá bregðist hann til
dæmis við með því að baka fiskinn í
ofni. Grænmetisréttir hafi áður oft
endað í ruslinu og því hafi hann farið
þá leið að búa til grænmetissúpu
með maukuðu grænmeti. „Ég gef
þeim gróft brauð með og þetta flýg-
ur ofan í þau.“ Eins segir hann að
gott sé að bera fram aðskilið græn-
meti og ávexti í skálum, því börnin
narti í það á meðan þau spjalli. „Þau
velja sjálf hvað þau vilja og það fer
dágóður slatti af ávöxtum og græn-
meti hjá okkur.“
Jóhannes segir skýrsluna mikil-
vægt aðhald. „Það skiptir miklu máli
að sofna ekki á verðinum auk þess
sem það er mikill akkur fyrir for-
eldrana að fá upplýsingar um hvað
börnin fá að borða.“
Áhersla á hollan og góðan mat
Matreiðslu-
meistarinn lofaður
í nýrri skýrslu
Skólamatur Jóhannes Már Gunnarsson gætir þess að framreiða hollan og góðan mat fyrir börnin.
Í skýrslunni segir að Jóhannes Már
Gunnarsson sé áhugasamur í starfi
og metnaðarfullur í eldamennsk-
unni. Nánast alltaf sé farið eftir op-
inberum ráðleggingum varðandi
hráefnisval og matreiðslu og mat-
seðillinn, sem sé í stöðugri þróun,
sé mjög vel samsettur með tilliti til
leiðbeininga Embættis landlæknis.
„Niðurstaðan er því sú að það hljóti
að vera vandfundinn betri skóla-
matur og þótt smekkur manna geti
að sjálfsögðu verið misjafn þá eru
gæði matarins til fyrirmyndar.“
Jóhannes eldar fyrir börn, kenn-
ara og aðra starfsmenn bæjarins,
um 700 manns. Aðaleldhúsið er í
Mýrarhúsaskóla og þaðan er matur
sendur í Valhúsaskóla og leik-
skóladeildina Holt. Jóhann Rún-
arsson matsveinn eldar í leikskól-
anum Mánabrekku fyrir börn og
starfsmenn Mánabrekku og Sól-
brekku undir stjórn Jóhannesar, en
samtals vinna 12 manns í mötu-
neytinu.
Vandfundinn betri skólamatur
MÖTUNEYTI GRUNN- OG LEIKSKÓLA SELTJARNARNESS