Morgunblaðið - 02.01.2016, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
„Ég hef verið hér í rúmlega þrjú ár. Þrjú ár og
einn mánuð,“ segir Shama og sléttir úr pilsinu
sínu er hún sest við hlið mér í tjaldi á barn-
vænu svæði UNICEF í Bekaa-dalnum í Líb-
anon. Hún segir mér frá lífinu í Sýrlandi eins
og það var áður en hún og eiginmaðurinn lögðu
á flótta ásamt tveimur börnum sínum. Frið-
sæld ríkti. Eiginmaðurinn hafði góða vinnu.
Þau voru hamingjusöm. „Okkur vegnaði vel,
börnin okkar voru bæði í skóla. En svo kom
stríðið.“
Þetta stríð, sem nú hefur staðið í tæplega
fimm ár, hefur orðið til þess að um 4,4 milljónir
Sýrlendinga hafa flúið land og um 7 milljónir
eru á flótta innan heimalandsins. Um 1,1 millj-
ón hefur farið til Líbanons, rétt eins og Shama
og hennar fjölskylda. Þetta litla nágrannaríki
Sýrlands hefur því tekið hlutfallslega við flest-
um sýrlenskum flóttamönnum allra ríkja.
1.125 dagar í tjaldi
Þessar endalausu tölur sem dynja á okkur í
fréttum af stríðinu í Sýrlandi og áhrifum þess
er erfitt, næstum ómögulegt að skilja. Þær eru
svo háar að við áttum okkur varla á hvað þær
fela í sér. Milljón hér. Þúsundir þar. Með tím-
anum gleymum við svo jafnvel að á bak við
þær er raunverulegt fólk af holdi og blóði.
Shama man upp á hár hvenær hún flúði frá
landinu sínu, Sýrlandi. Hún hefur nú verið í
Líbanon í 1.125 daga. Hún hefur sofnað í tjaldi
allar þessar nætur, ekki húsi líku því sem hún
átti í heimalandinu. Nú veit hún ekki einu sinni
hvort það stendur enn, því miklar líkur eru á
því að það hafi verið sprengt í loft upp. Ef ekki
er eins líklegt að uppreisnarmenn eða sýr-
lenskir hermenn hafi hreiðrað þar um sig. Noti
leirtauið hennar, sofi í rúmum barnanna, noti
garðinn hennar, sem eitt sinn var blómlegur,
til að telja skotfærin og hlaða byssurnar.
Shama hefur engar spurnir haft af mörgum
ættingjum og vinum. Mögulega eru þeir á
meðal þeirra um 220 þúsund manna sem stað-
fest er að hafi farist í átökum síðustu fimm ár.
Töluverðar líkur eru á að þeir hafi verið skotn-
ir til bana, jafnvel í fjöldaárás. Dæmi eru um
að börn hafi verið skotin af stuttu færi, beint í
höfuðið. Þá eru ákveðnar líkur á því að vinir og
ættingjar Shamu hafi dáið í eldflaugaárásum,
loftárásum eða sjálfsvígssprengjuárásum. Um
fjórðungur þeirra sem fallið hafa í slíkum árás-
um er börn.
Það er ennfremur möguleiki að fólkinu
hennar Shamu hafi verið rænt og það pyntað
til dauða. Vitað er að um 9.000 Sýrlendingar
hafi látist með þeim hætti. Það er heldur ekki
útilokað að frændur hennar og frænkur hafi
orðið fórnarlömb efnavopnaárása. Kannski lét
svo einhver vinur hennar lífið í einni af þeim
rúmlega 300 árásum sem gerðar hafa verið á
sjúkrahús í landinu.
Að hætta sér út
Hætturnar í Sýrlandi voru og eru alls staðar.
Eftir að stríðið hófst og Shama bjó enn í Sýr-
landi gat hver hversdagsleg ákvörðun leitt til
dauða hennar og barnanna. Átti hún að fara út
í búð? Eða heimsækja nágranna sinn? Konur
og börn í Sýrlandi eru nefnilega í meiri hættu
en karlar á að verða fórnarlömb sjálfsvígs- og
loftárása. Að búa við svona stöðuga hættu
verður óumflýjanlega til þess að það kemur að
því að fólk gefst upp, það þráir að losna við ótt-
ann sem rífur í hverja taug.
„Ástandið var orðið mjög slæmt í Sýrlandi.
Börnin voru í miklu áfalli,“ segir hún. „Við
fluttum stöðugt á milli staða í leit að öryggi.
Við vildum ekki að börnin okkar væru hrædd.“
Loks kom að því að þau neyddust til að flýja.
Hún segir að fyrstu mánuðirnir í Líbanon hafi
verið mjög erfiðir. „Við vorum mjög hrædd.
En svo fórum við smám saman að aðlagast.“
Þau hafa aðlagast því að búa í tjaldi, eiga lít-
ið sem ekkert, vera atvinnulaus og reiða sig
nær alfarið á hjálp annarra. Þau hafa aðlagast
því að eiga hvergi heima. Að bíða. Og vona.
80 þúsund flóttamenn á Íslandi?
Líbanska þjóðin sem var 4,4 milljónir fyrir
stríð tók flóttafólkinu nokkuð vel alveg frá
upphafi. En nú er svo komið að 1/5 hluti mann-
fjöldans er flóttamenn. Það jafngildir því að
um 80.000 flóttamenn kæmu til Íslands á innan
við fimm árum. Og ólíkt Íslandi er ekki mikið
landrými í Líbanon. Líbanon er litlu stærra en
Vatnajökull. Landið er aðeins 10.400 ferkíló-
metrar að stærð eða um 10% af stærð Íslands.
Í ár hefur yfir 1 milljón manna flúið til Evr-
ópu. Það eru jafnmargir og þeir Sýrlendingar
sem flúið hafa til Líbanons síðustu misseri.
Munurinn er hins vegar t.d. sá að íbúar Evr-
„EN SVO KOM STRÍÐIГ
Nauðsyn hefur knúið milljón
manns til að flýja í faðm Evr-
ópu í ár. Um helmingur þeirra
er frá Sýrlandi. Í stað þess að
loka öllu með gaddavír og
múrsteinsveggjum, eða
stinga höfðinu í sandinn og
láta sem líf þeirra komi okkur
ekki við, þurfum við að bretta
upp ermarnar og hjálpa.
SUNNA ÓSK
LOGADÓTTIR
er fréttastjóri mbl.is. Hún
kynnti sér aðstæður sýr-
lensks flóttafólks í Líbanon í
vetur.
UM 12 MILLJÓNIR SÝRLENDINGA ERU Á FLÓTTA
ıTU
RN
IN TS ı 2014ı TU
P
O
INTSı20RNIN
G
PO
IN
14
TU
RNIN
G POINTS|TÍM
AM
Ó
T|2016|TURNINGPOI
TS
|T
ÍM
AM
Ó
T|
20
16
|
Shama er tveggja barna móðir og eiginkona. Hún flúði undan
stríðinu í Sýrlandi og býr nú í tjaldi í Bekaa-dalnum í Líbanon.
Morgunblaðið/Dal Al Mussawir
Hálf milljón sýrlenskra barna flúði stríðið og til Líbanons. Börnin fá skjól á barnvænum svæðum UNICEF en lífsbaráttan er erfið.
Þau búa í tjöldum, bílskúrum eða skemmum og þurfa sum að vinna þar sem flóttafólkið er skuldum vafið eftir mörg ár á flótta.
Morgunblaðið/Dal Al Mussawir
Hiba Shaaban frá UNICEF (t.v.) og greinarhöfundur ræða við Walid, átta ára, í Bekaa-dalnum.
Morgunblaðið/Dal Al Mussawir