Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 9

Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 9
Sýrlensku börnin í Líbanon hafa mörg hver ekki gengið í skóla. Í vetur hafa um 200 þúsund þeirra fengið aðgang að almenningsskólum í landinu. Morgunblaðið/Sunna Ósk ópu eru um 740 milljónir talsins og íbúar innan Evrópusambandsins um 508 milljónir. Innviðir flestra landanna eru líka mun sterkari en Líb- anons. Í Líbanon er opinbera heilbrigðiskerfið í molum. Stærstur hluti þess er einkarekinn. Á slíkri þjónustu hefur flóttafólk ekki efni. Þar koma samtök á borð við UNICEF og Rauða krossinn sterk inn. En neyðin er engu að síður mikil. Shama er ein af þeim sem eru enn ákveðin í því að bíða af sér stríðið í nágrenni Sýrlands. Hún vill ekki fara til Evrópu, frekar kýs hún Líbanon þar sem allt er kunnuglegt. En napur veruleikinn blasir þó við. „Ef stríðinu í Sýr- landi lýkur ekki fljótlega verður þetta land ekki lengur til eins og við þekkjum það,“ segir António Guterres, yfirmaður Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Shama gæti því hreinlega neyðst til að fara alla leið til Evrópu, þar sem heimalandið er hreinlega að þurrkast út. Fátæktin stigmagnast En fleira kemur til. Níu af hverjum tíu sýr- lenskum flóttamönnum sem eru í Líbanon eru undir fátæktarmörkum, þ.e. þeir hafa hvorki í sig né á. Þeir hafa klárað allt sitt sparifé, fá ekki atvinnuleyfi og geta engan veginn lifað af styrkjum frá hjálparsamtökum og stofnunum. Og þar sem stríðið hefur staðið svo lengi og ekki er útlit fyrir að því ljúki í bráð hafa marg- ir flóttamenn gripið til þess örþrifaráðs að flýja til Evrópu í leit að betra lífi. Flestir, eða um 972.500, hafa lagt í hættuför yfir Miðjarð- arhafið í þeim tilgangi á þessu ári. Helmingur þeirra er Sýrlendingar. Um 4.000 hafa drukknað á leiðinni eða er enn saknað. Enginn flýr heimili sitt og fer út í óvissuna án þess að neyðast til þess. „Mig dreymir um að komast aftur til Sýrlands, heim,“ segir Shama. „Ég sakna mest fjölskyldunnar, húss- ins míns, landsins míns. Útsýnið úr húsinu mínu er einstaklega fallegt,“ segir hún dreym- in og blik kemur í augun. En þessi draumur er fjarlægur. Og ef að- stæður flóttafólks í nágrannaríkjum Sýrlands fara ekki að batna er víst að straumurinn mun áfram liggja til Evrópu. „Sumstaðar hefur útlendingahatur magn- ast,“ segir Guterres, yfirmaður Flóttamanna- stofnunarinnar. „Þá er það svo mikilvægt að átta sig á öllu því jákvæða sem flóttamenn og farandverkamenn hafa fram að færa í sam- félögum og einnig að halda í heiðri evrópsk gildi: Að vernda líf, standa vörð um mannrétt- indi, hvetja til umburðarlyndis og fagna fjöl- breytileikanum.“ Shama, sem býr í tjaldi þennan kalda vetur í Bekaa-dalnum í Líbanon, hugsar á sömu nót- um. Hún dvelur ekki við fortíðina heldur hugs- ar til framtíðar. „Það er ekki bara í Sýrlandi sem þarf að komast á friður, heldur í öllum heiminum. Allir þurfa að finna frið í hjartanu. Þess óska ég mest af öllu.“ Þá er það svo mikilvægt að átta sig á öllu því já- kvæða sem flóttamenn og far- andverkamenn hafa fram að færa í samfélögum og einnig að halda í heiðri evrópsk gildi: Að vernda líf, standa vörð um mannréttindi, hvetja til um- burðarlyndis og fagna fjöl- breytileikanum. ” MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.