Morgunblaðið - 02.01.2016, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
Stjórn Obama telur að hernaður hennar úr
lofti sé aðferð, sem virki, og eftir Írak væri
glapræði að senda hersveitir til að berjast á
jörðu niðri. Þetta tengist stefnunni um að
blása ekki til íhlutunar sem nú hefur verið
fylgt í næstum fimm ár með skelfilegum af-
leiðingum. Sýrland er gjöf sem heldur áfram
að gefa – blóðsúthellingar, upplausn, flótta-
menn og róttæknivæðing. Landið er helsti
grafreitur arabísku vakningarinnar.
Eitthvað hefur gerst á þeim 14 árum, sem
liðin eru frá 11. september. Löng stríð án nið-
urstöðu í Afganistan og Írak hafa gengið á
vald og sjálfstraust Bandaríkjanna. Sýrland
er nú leikvöllur allra velda. Landið er líka
grafreitur yfirburðanna, sem Bandaríkin hafa
notið frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Rússar
spígspora keikir um, nánast óáreittir, rétt
eins og í Úkraínu.
Raqqa, höfuðborg Ríkis íslams, er mun nær
Evrópu en Tora Bora-fjöllin í Afganistan.
Látið er viðgangast að borgin sé griðastaður
hryðjuverkamanna, en vígi al-Qaeda var lokað
með hervaldi eftir árásirnar á New York og
Washington. Það er eins og djíhad-hug-
myndafræðin, sem á sína nýjustu og öflugustu
birtingarmynd í Ríki íslams og breiðist út eins
og meinvarp, hafi sligað vilja vestursins. Djí-
hadistar úr röðum súnníta spila á reiði músl-
ima út af stríðum Bandaríkjanna eftir 11.
september, vegna Abu Ghraib og Guant-
anamo og út af meintum stuðningi Banda-
ríkjamanna við uppgang sjíta í Mið-Aust-
urlöndum og fyrir vikið réttlætist
aðgerðaleysi af sjálfu sér.
Ég sé ekki hvernig hægt er að líta á Ríki
íslams sem neitt annað en tilvistarógn við
vestræn samfélög. Það er ástæðan fyrir tilvist
þess. Samtökin standa fyrir eyðileggingu
vestræns frelsis í öllum sínum myndum – frá
kjörkassanum til svefnherbergisins – eins og
það spratt upp úr upplýsingunni og höfnun
þess að trúarbrögðin séu viðmið skipanar
þjóðfélaga okkar. Þau vilja fara með mannkyn
aftur til miðalda og uppræta hvern þann sem
afneitar trúnni. Afstæðisskólinn, sem vill taka
þá með þolinmæðinni, þarf í það minnsta að
skýra á hverju sannfæring hans byggist um
að vígamennirnir muni ekki nota landið á
valdi þeirra og olíutekjurnar til að búa til ger-
eyðingarvopn, þar á meðal efnavopn, eða gera
hrikalega tölvuárás á vestrið. Talsmenn þessa
viðhorfs þurfa líka að leggja fram mun betri
skýringar á því af hverju þeir trúa að tíminn
vinni með hinu sundraða liði, sem í besta falli
hefur lýst yfir hálfstríði, frekar en hinu sam-
einaða öfgaliði, sem hefur lýst yfir allsherj-
arstríði.
Frelsi er ekki fyrir alla. Leiðin til Raqqa
var á ýmsa vegu leiðin frá byrði frelsisins –
frá valfrelsi einstaklingsins og sjálfheldum
þess til alltumvefjandi hugmyndafræði ísl-
amista. Ef hinn frjálsi heimur og hugsanlegir
bandamenn á svæðinu eiga að berjast gegn
aðdráttarafli þess verða þeir að rífa sig upp úr
neytendavímu frelsisins.
Verði Ríki íslams leyft að treysta ítök sín á
því landi, sem þau hafa á valdi sínu, næsta ár-
ið jafngildir það því að bjóða heim, eða í það
minnsta sætta sig við, að fjöldamorðin í París
verði endurtekin í borg í Evrópu eða Banda-
ríkjunum. Þá er einnig verið að sætta sig við
að ástandið í Sýrlandi versni enn eitt árið. Hið
illa breiðist út ef ekki er tekið á móti. Það
kennir sagan. Að berjast á jörðu niðri og sigra
vígamennina í vígi þeirra, sem nær yfir landa-
mæri tveggja ríkja, myndi ekki binda enda á
ógn hryðjuverka og í framhaldinu myndi
vestrið og bandamenn þess standa frammi
fyrir erfiðum kostum. Allt bendir til þess að
þessir djíhadistar séu góðir hryðjuverkamenn
en áhugalausir hermenn. Hið fullkomna getur
í þessu tilfelli ekki verið óvinur hins góða.
Þegar ég var í flóttamannabúðum jasídanna
sagði Anter Halef við mig: „Við eigum ekki
lengur líf í þessum heimi. Hann er tómur.“
Hann var brotinn, en hafði þó, öfugt við börn-
in, lifað sínu lífi. „ISIS hefur enga trú,“ hélt
hann áfram. „Enginn viti borinn maður myndi
slátra barni. Á einni nóttu myrtu þeir 1.800
manns.“
Rannsaka fjöldagröf
Síðan við töluðum saman hafa liðsmenn
Kúrda og jasída tekið bæinn Sinjar að nýju.
Halef-fjölskyldan er frá þeim slóðum. Kúrd-
arnir eru að rannsaka fjöldagröf, sem sagt er
að í liggi eldri konur, sem Ríki íslams, sem
hafði haft svæðið á valdi sínu síðan í ágúst
2014, vildi ekki nota sem kynlífsþræla.
Kannski mun Halef-fjölskyldan dag einn geta
flutt aftur til Sinjar þar sem þessi voðaverk
voru framin. Ég hafði samt á tilfinningunni að
fyrir táninginn Feryal Halef væri engin leið
til baka.
Ég veit ekki nákvæmlega hvað kom fyrir
hana, en líf hennar hafði verið eyðilagt, rétt
eins og líf blaðamannsins James Foleys, sem
var afhöfðaður í ágúst 2014. Ég mun aldrei
gleyma augum þessarar ungu jasídakonu, sem
voru eins og tóm keröld. Þau eru ákall til
mannkyns um að rumska. Stríðið í Írak var
mistök, en stærstu mistökin væru að draga af
þeim þá ályktun að Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra eigi ekki annars kost en að
lúta hinu illa á fjarlægum slóðum, sem við vit-
um lítið um og vildum helst ekki vita neitt.
Ríkis íslams hefur komið á þrælahaldi. 25 ára Líbíumaður veitti jasídakonu, sem hafði verið þræll hans, skjalfest frelsi. Hann sagðist ætla að fremja sjálfsmorðsárás og því fengi hún frelsi sitt.
Mauricio Lima/The New York Times
Verði Ríki íslams
leyft að treysta ítök
sín á því landi, sem
þau hafa á valdi sínu, næsta
árið jafngildir það því að bjóða
heim, eða í það minnsta
sætta sig við, að fjöldamorðin
í París verði endurtekin í borg í
Evrópu eða Bandaríkjunum.
”
TÍMAMÓT: ISIS LÆTUR TIL SKARAR SKRÍÐA Í PARÍS OG FÆRIR HERNAÐ SINN TIL VESTURLANDA