Morgunblaðið - 02.01.2016, Side 30

Morgunblaðið - 02.01.2016, Side 30
Mikið eignatjón varð í óveðri sem gekk yfir landið í byrjun desember. Engin alvarleg slys urðu á fólki. Viðbragðsaðilar voru með mikinn viðbúnað og sinntu fjölda hjálp- arbeiðna. Skemmdir urðu á mörgum húsum vegna foks og vatns um meginhluta lands- ins. Þá urðu skemmdir á rafmagnslínum um allt land. Einnig á bátum, bílum og tækj- um. Sem dæmi um tjón má nefna að hluti þaks fauk af íbúðarhúsi í Vestmannaeyjum og fauk á önnur hús. Mannlaust hús á Patreksfirði eyðilagðist. Þakplötur losnuðu af þökum í Vestmannaeyjum, víða á Suðurlandi og í Skagafirði. Þá sukku tveir smábátar í gömlu höfninni í Reykjavík. Morgunblaðið/Eggert HÚS SKEMMDUST OG BÁTAR SUKKU Í ÓVEÐRI 30 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 FRÉTTAMYNDIR AF INNLENDUM VETTVANGI Sólmyrkvinn sem varð að morgni 20. mars fór ekki framhjá nokkrum Íslendingi en slíkt gerist þegar tunglið gengur milli sólar og jarðar og myrkvar sólina að hluta til eða í heild frá jörðu séð. Góð skilyrði voru til að fylgjast með sól- myrkvanum hér á landi enda flykktust hingað ferðamenn með skemmtiferðaskiptum og þotur hófu sig á loft með áhugafólk. Skemmtileg stemning myndaðist víða á landinu og brutust meðal annars út fagnaðarlæti þegar sólmyrkvinn náði hámarki hjá þeim þúsundum sem safnast höfðu sam- an fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands en þar var haldin sólmyrkvahátíð í tilefni dagsins. MARGIR FYLGDUST MEÐ SÓLMYRKVANUM Morgunblaðið/Kristinn Gjörningur Almars Atlasonar, myndlistarnema í Listaháskóla Íslands, virtist vera eitt helsta umræðuefni landsmanna í byrjun desember. Hann var nakinn inni í lokuðum plexí- glerskassa í heila viku. Fólk gat fylgst með honum dag og nótt í beinni útsendingu á net- inu. Margir nýttu sér þann möguleika að „njósna“ um manninn og sumir spurðu hvort þetta væri virkilega list. Vakti gjörningurinn athygli út fyrir landsteinana. Morgunblaðið/Styrmir Kári LISTNEMI Í SVIÐSLJÓSINU Í HEILA VIKU François Hollande, forseti Frakklands, hélt aðalræðuna á ráðstefnunni Hringborð norð- urslóða sem haldin var í Hörpu um miðjan október. Frakklandsforseti kynnti sér áhrif hlýnunar andrúmsloftsins á jökla með skoðunarferð með Ólafi Ragnari Grímssyni, for- seta Íslands, að Sólheimajökli. Þar afhenti Dorrit Moussaieff forsetafrú Frakklandsforseta brot úr Sólheimajökli. Morgunblaðið/RAX FRAKKLANDSFORSETA AFHENT BROT ÚR SÓLHEIMAJÖKLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.