Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
ıTU
RN
IN TS ı 2014ı TU
P
O
INTSı20RNIN
G
PO
IN
14
TU
RNIN
G POINTS|TÍM
AM
Ó
T|2016|TURNINGPOI
TS
|T
ÍM
AM
Ó
T|
20
16
|NÝTT UNDIR
SÓLINNI 2015
Óvæntir, alvarlegir og stundum kjánalegir atburðir eða þróun sem sást í
fyrsta sinn á árinu 2015. Rithöfundurinn Tricia Tisak tók saman.
FYRSTA SKIPTI Í SÖGUNNI
NASA/The New York Times
HALLÓ, PLÚTÓ
Níu árum og 4,8 milljörðum kílómetra eftir
að það lagði af stað út í geiminn, gaf New
Horizons geimfarið jarðarbúum fyrstu ná-
kvæmu myndina í júlí af hinni einmana
dvergplánetu við endajaðar sólkerfisins.
Þetta er því fyrsta geimferðin þar sem Plútó
er kannaður ásamt fimm fylgitunglum hans,
sem vitað er um. Geimfarið — sem ber inn-
anborðs ösku Clyde Tombaughs heitins,
sem uppgötvaði hnöttinn árið 1930 — tók
myndir af Plútó og stærsta tungli hans, Kar-
on, áður en það skaust inn í Kuiper-beltið.
Gögnin sem New Horizons sendi til baka
hafa þegar breytt hugmyndum vísinda-
manna um Plútó og umhverfi hans.
Transfólk hefur náð að koma sér fyrir í almannavitundinni meir en nokkru sinni fyrr. Barack Obama, Bandaríkja-
forseti, notaði árlega stefnuræðu sína til þess að kalla eftir jöfnum réttindum og virðingu fyrir LGBT-samfélaginu —
og notaði orðið transgender í fyrsta sinn í ávarpi forseta Bandaríkjanna. Caitlyn Jenner, sem áður hét Bruce Jen-
ner, fyrrverandi íþróttakappi sem hlaut gull í tugþrautarkeppni á sumarólympíuleikunum 1976, er að skrásetja í
raunveruleikasjónvarpsþáttum umbreytingu sína úr óheppnum fjölskylduföður yfir í glæsilegan frumkvöðul fyrir
réttindum transfólks. Bandaríska leikkonan Laverne Cox, sem þekkt er fyrir hlutverk sitt í þáttunum „Orange is the
New Black“ er fyrsta viðurkennda transmanneskjan sem fær af sér vaxstyttu hjá Madame Tussaud. Og Andreja Pe-
jic er fyrsta viðurkennda transmanneskjan og fyrirsæta sem verður að andliti stórrar snyrtivörulínu eftir að hún
náði samningum við Make Up For Ever.
TRANSFÓLK Í FYRIRRÚMI
Mladen Antonov/Agence France-Presse/Getty Images
Vísindamenn við tækniháskólann École Polytechnique
Fédérale de Lausanne í Sviss náðu í mars fyrstu ljósmynd-
inni af ljósi sem bæði ögn og bylgju. Ljós getur hegðað sér
bæði eins og bylgja og sem straumur efnisagna, en þó að
fyrri tilraunir hafi sýnt fram á það, hefur aldrei tekist að
festa á filmu þegar það gerist samtímis. Tilraunin gæti að-
stoðað vísindamenn við að gera fleiri uppgötvanir á sviði
skammta- og tölvunarfræði.
TVÖFÖLD NÁTTÚRA
Fabrizio Carbone/EPRLU
Paul Faith/Agence France-Presse/Getty Images
Írland var fyrsta ríkið til þess að samþykkja hjónabönd hin-
segin fólks í þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem afgerandi
meirihluti, 62%, sagði já. Atkvæðagreiðslan í maí breytti
stjórnarskrá landsins og leyfði hjónaband tveggja ein-
staklinga „án tillits til kynferðis þeirra“, og fór fyrsta hjóna-
vígslan fram í nóvember. Litið var á samkynhneigð sem
glæp í hinu rammtrúaða kaþólska ríki fram til ársins 1993,
en viðhorf almennings hafa mildast á síðari árum. Stuðn-
ingur við réttindi hinsegin fólks hefur einnig aukist hinum
megin Atlantsála, þar sem Hæstiréttur Bandaríkjanna sam-
þykkti í júní með 5 atkvæðum gegn 4 að hjónabönd hin-
segin fólks væru stjórnarskrárvarin réttindi, sem bæri að
framfylgja um öll Bandaríkin.
RÉTTINDI HINSEGIN
FÓLKS AUKAST