Morgunblaðið - 02.01.2016, Side 64
64 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016
AFP
ER ÞAÐ BESTA Í LÍFINU FRÍTT?
HÓPUR HUGSUÐA VÍÐA AÐ ÚR HEIMINUM SVARAR STÓRU SPURNINGUNNI: ER ÞAÐ BESTA Í LÍFINU FRÍTT?
ıTU
RN
IN TS ı 2014ı TU
P
O
INTSı20RNIN
G
PO
IN
14
TU
RNIN
G POINTS|TÍM
AM
Ó
T|2016|TURNINGPOI
TS
|T
ÍM
AM
Ó
T|
20
16
| Allir segja að það besta í lífinu sé frítt. En sé svo, hvers vegna erum við svo sjaldan
ánægð með nauðsynjar lífsins – ásamt sólskini, ást og stjörnum himinhvolfsins?
Hönnuðurinn Coco Chanel á að hafa sagt þegar hún velti þessari mótsögn fyrir sér:
„Það besta í lífinu er frítt. Það næstbesta er mjög, mjög dýrt.“
Ert þú sammála? Hverjir eru samkvæmt þinni reynslu bestu og næstbestu hlutirnir
og hvað hafa þeir fært þér í lífi þínu?
STÓRA SPURNINGIN
Coco Chanel hafði rétt fyrir sér. Það besta í lífinu er frítt vegna þess að mannleg
samskipti eru grunnur hamingju – sú tilfinning að þú ásamt öðrum mönnum átt
þátt í athöfnum, sem gagnast heiminum og mannkyni með einum eða öðrum
hætti.
Í okkar samfélagi er félagslegt samband manna á milli undirokað af hinu við-
skiptalega sambandi milli vara og þjónustu. Það leiðir ekki aðeins til firrts sam-
bands fólks við það sem það framleiðir heldur hvers við annað. Hið hug-
myndafræðilega vægi sem lagt er í varning gefur til kynna að eftir því sem við
eignumst meira verðum við hamingjusamari. En allir, sem hafa reynslu af hinni
takmörkuðu og skammvinnu fullnægju af að kaupa eftirsóttan hlut, vita að sú er
einfaldlega ekki raunin. Staðreyndin er sú að eftir því sem við eigum fleiri hluti,
þeim mun erfiðara eigum við með að finna fyrir samstundis fullnægju.
Það er ekki fyrr en við höfum náð að uppfylla það besta í lífinu að við getum
einbeitt okkur að því næstbesta – hlutum, þekkingu og reynslu, sem veitir létt-
leika, fegurð, sköpunarkraft og upplýsingu. Því miður eru slíkir hlutir mjög
dýrir og aðeins minnihluti fær notið þeirra og hann býst almennt við því að
næstbestu hlutirnir bæti upp fyrir þá bestu.
© 2015 Andreja Pejic
Andreja Pejic
fyrirsæta frá Ástralíu og fyrsta opinberlega
transgender-konan til að verða andlit stórs
framleiðanda snyrtivara.
Andreja Pejic
Fyrstu viðbrögð mín við þessari spurningu voru að ekkert væri frítt. Meira að
segja sólin veldur krabbameini. Vatn er að verða dýrara og dýrara. Allir segja
þér að hjónaband sé vinna. Mér finnst ég vera heppinn að þarfir mínar eru fá-
ar. Það er frábært að finna fyrir því að vera elskaður og elska og að það kosti
ekki neitt. Mér líkar líka list, þá á ég við bækur og kvikmyndir og málverk –
söfn – og tónlist og það er heldur ekki svo dýrt.
Ég hef fordóma gagnvart dýrum hlutum. Venjulega snúast þeir um stöðu
eða snobb – ég held að Coco Chanel sé í raun að tala um það, jafnvel þótt hún
myndi neita því. Fyrsta flokks eintök af flestum góðum hlutum er hægt að fá
fyrir mjög lítið ef maður treystir eigin tilfinningu. (Þó er ástæðulaust að vera
of harður við Coco – hún var góður kaupsýslumaður, sem setti hátt verð á
ávexti hæfileika sinna; það var hennar hagur að auglýsa hið dýra).
Ég hef einnig lært að þegar maður fær það sem maður vill vill maður ann-
aðhvort meira af því, eða eitthvað annað. Besti hluturinn til að eiga er köllun –
að líka að gera eitthvað frekar en að eiga eitthvað. Vegna þess að þá snýst
löngunin meira um að langa til að gera eitthvað betur, og það reyndar borgar
sig.
© 2015 Richard Hell
Richard Hell
bandarískur söngvari, lagahöfundur og
rithöfundur. Nýjasta bók hans heitir Massive
Pissed Love: Nonfiction 2001-2014.
Richard Hell