Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 65

Morgunblaðið - 02.01.2016, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 65 Það langbesta í lífinu, hamingja, getur aðeins verið hliðarafurð einhvers, sem í sjálfu sér er gott (til dæmis góðverk, góður nætursvefn, ást) og finnst ekki á neinum markaði. Næstbestu hlutirnir, sem við snúum okkur að vegna óþol- inmæði eða örvæntingar, eru dýrir vegna þess að enginn verðmiði kemst í ná- munda við bestu hlutina. Að reyna að láta keyptan hlut eða þjónustu koma í staðinn fyrir ekta ham- ingju er sambærilegt við að láta doða af völdum svefnpillu koma í staðinn fyr- ir góðan nætursvefn. Á nítjándu öldinni birtu nokkur bandarísk tímarit þessa skilgreiningu: „Hamingjan er eins og fiðrildi, sem þegar það er elt virðist allt- af vera rétt utan seilingar, en gæti tyllt sér á þig ef þú sest hljóðlega niður.“ Að hætta þessum eltingarleik við hið efnislega kostar ekki neitt! Ef leitin að hamingjunni er dæmd til að mistakast, hvað ætti þá að vísa okk- ur veginn? Bjartsýnismaðurinn í mér trúir því að það sé eitthvað eiginlegt í manninum, eins og gangverkið, sem fær sólblómin til að fylgja sólinni eftir á himninum, sem getur hjálpað okkur að leysa sköpunarkraft okkar úr læðingi. Til að láta skeika að sköpuðu. Án þess að það hafi verið ætlunin verður ham- ingjan hliðarafurðin, fiðrildið sem tyllir sér létt á öxl okkar. Því miður geta sírenur hins daglega strits truflað einbeitingu okkar og breytt okkur í neytendur, sem líkar það sem þeir kaupa, kaupa það, sem þeir halda að þeim líki, og verða á endanum leiðir og ófullnægðir – varanlega ófær- ir um að tilgreina eðli ófullnægju sinnar og lifandi staðfesting á athugasemd Marks Twains um „takmarkalausa fjölföldun ónauðsynlegra nauðsynja“. Á hin bóginn sagði Dorothy Parker að við ættum að „sjá um munaðinn og nauðsynjarnar munu sjá um sig sjálfar“. Auðvitað sjá nauðsynjarnar bara um sig sjálfar hjá því fólki sem tilheyrir þeim litla hluta samfélagsins þar sem for- réttindi endurnýjast af sjálfu sér. Siðmenntað samfélag sér öllum fyrir aðstæðum sem gefa þeim frelsi til að elta eigin markmið af áræði og sköpunarkrafti. En til að það gerist þarf hver og einn að vera frjáls frá ótta, hungri og arðráni – auk þess, samkvæmt Virg- iníu Woolf, að hafa „eigið herbergi“. © 2015 Yanis Varoufakis Yanis Varoufakis stjórnmálamaður, hagfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra Grikklands. Yanis Varoufakis Ég var svo lánsamur að mér var gefin rödd sem höfðar til fólks. Að geta blómstrað og fundið mér áhangendur þegar svo margir fá ekki drauma- starfið sitt var guðleg blessun. Slíka gjöf er hægt að þróa áfram, en hana er hvorki hægt að endurgjalda né kaupa. Er það ekki til marks um að það besta í lífinu sé frítt? Eitt af því besta í lífinu er þegar ég sé hamingju skína úr andliti áhorf- enda á einum af tónleikunum mínum. Ég veit kannski ekki hvað hann heit- ir, en við deilum sannri einingu! Eða bros þriggja ára sonar míns þegar hann sér mig – hann hleypur alltaf til mín og stekkur upp til að faðma mig af slíkri væntumþykju. Eða þegar ókunnugur maður heilsar mér á götu, sem gefur okkur báðum hamingjutilfinningu það sem eftir lifir dags. Ef ástin er gjöf sjálfsins, þá sannar þessi ákafi svipur, þetta einlæga bros, kveðjan að það besta í lífinu er frítt. Sért þú nokkru sinni í vafa skalt þú halda í þér andanum eins lengi og þú getur og síðan anda inn og út súr- efninu sem móðir náttúra gefur okkur í boði hússins. Það besta í lífinu stendur þeim til boða sem taka sér tímann til að taka eftir því og njóta þess. © 2015 Youssou N’Dour Youssou N’Dour söngvari, lagahöfundur og stjórnmálamaður frá Senegal. Youssou N’Dour Coco Chanel hafði rétt fyrir sér: Það næstbesta í lífinu er mjög dýrt – vegna þess að fólk vill oft borga meira fyrir það sem það þarf ekki en það sem það þarf. Þetta segir Karl Lagerfeld, listrænn stjórnandi Chanel. THE NEW YORK TIMES Chanel hafði rétt fyrir sér: Það næstbesta í lífinu er mjög dýrt – vegna þess að fólk vill oft borga meira fyrir það sem það þarf ekki en það sem það þarf. Oft eru felldir dómar um munað á siðferðislegum forsendum, en ágóðinn er mikill ef hugsað er á hagfræðilegum nótum. Hann stuðlar að því að peningar fari manna á milli, færir peninga úr vösum hinna ríku og verður uppspretta fagmennsku. Það er gott þegar hótel getur laðað að viðskiptavini sem eru tilbúnir að borga 80 þúsund dollara fyrir nóttina á svítu vegna þess að það veitir svo mörgum vinnu: iðnaðarmönnunum sem reistu svítuna, arkitektunum sem hönnuðu hótelið, iðnaðarmönnunum sem smíðuðu húsgögnin, starfsfólkinu sem vinnur þar. Það er líka hægt að fyllast stolti yfir slíkri vinnu – svítan er listaverk í daglegri notkun með sérsmíðuðum og fallegum húsgögnum. © 2015 Karl Lagerfeld Karl Lagerfeld listrænn stjórnandi Chanel, Fendi og merkisins sem er samnefnt honum. Karl Lagerfeld Það besta í lífinu er í raun frítt. Það eru ómissandi hlutir og fylgja okkur allt- af, eins og loft, sólarljós og vatn. Við tökum lítið eftir þeim, tökum þeim sem gefnum hlut. Það er ekki fyrr en við erum við það að glata einhverju – þegar sjónin daprast, heilsan byrjar að gefa eftir eða auðlindirnar sem við reiðum okkur á verða af skornum skammti eða mengaðar – að við gerum okkur grein fyrir hvað það var dýrmætt. Það næstbesta, sem síst verður metið til fjár, er held ég leiklistarferillinn minn – sem ekki verður metinn til dollara. Hann var einfaldlega forlög. Margt ungt fólk segir að það sé tilbúið að gera hvað sem er til að ná ár- angri, en ég hefði ekki átt þess kost að uppfylla drauma mína hefði ég fórnað heilsu minni fyrir listina, svo dæmi sé tekið, eða hefði ég kastað einhverju öðru af því besta til hliðar. Oft er heppni stór þáttur og náir þú ekki markinu er ekki við þig að sakast. Það er dásamlegt þegar slíkir draumar rætast. Ég er svo þakklát. © 2015 Yao Chen Yao Chen kínverskur leikari og aðgerðasinni. Yao Chen Ég hef aldrei verið mikill efnishyggjumaður. Ég bjó í lítilli, sovéskri íbúð æsku minnar löngu eftir að ég hafði efni á að gera það ekki. Ef þú kæmir á nú- verandi heimili mitt í Moskvu sæir þú að í grunninn líkist það geðslegu hóteli með sérkennalausum gesti: Það eru engin stórkostleg listaverk, engin Fa- bergé-egg sýnileg! Bara ég, yfirleitt á vappi í Brooklyn Nets-íþróttagallanum mínum. (Verð: 95 dollarar!) Í mínum huga er „það næstbesta“ eða mjög dýrir hlutir aðeins þess virði ef þeir gegna einhverjum nytsamlegum tilgangi. Siglingar gera mig sjóveikan þannig að ég á snekkju, en nýt hennar aðeins vegna þess að hún gerir mér fært að vera á sjóþotu. Markmið mitt er að verða betri í íþróttinni og ég legg hart að mér. Það besta við snekkjuna er ókeypis – ánægjan af að hafa mætt nýrri áskor- un og náð valdi á nýrri hreyfingu (sem er sérlega erfitt ef maður er 2,07 metr- ar á hæð). Þetta getur enginn gert fyrir mig. Mér gæti ekki staðið meira á sama um snekkjuna, en ég legg upp úr per- sónulegum vexti og er tilbúinn að fjárfesta í því – auk þess að fá mér af og til gott vín. © 2015 Mikhail Prokhorov Mikhail Prokhorov rússneskur milljarðamæringur, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og eigandi körfuboltaliðsins Brooklyn Nets. Mikhail Prokhorov

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.