Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 72

Morgunblaðið - 02.01.2016, Síða 72
72 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2016 Gróskan í íslenskri leikritun var mikil á árinu 2015 og sérstakt ánægjuefni hversu vel verkin voru skrifuð. Af þeim ríflega þrjátíu leiksýn- ingum sem undirrituð sá frá desemberlokum 2014 fram í miðjan desember 2015 hjá stóru at- vinnuleikhúsunum tveimur í höfuðborginni sem og sjálfstæðum leikhópum voru tuttugu íslensk verk, þar af fimmtán ný íslensk leikrit í fullri lengd, tvær uppfærslur á eldri íslenskum leik- ritum, ein leikgerð og tvær tónlistarsýningar. Íslensk verk voru í reynd fleiri, en hér er aðeins miðað við þau sem greinarhöfundur sá. Þriðja almanaksárið í röð helst hlutfall íslenskra verka svipað og annað árið í röð er mikill meirihluti verkanna frumsamin leikrit sem er mjög já- kvætt, enda bráðnauðsynlegt að fá íslensk leik- skáld til að kljást við og kryfja íslenskan raun- veruleika og þjóðarsál. Veðjað á sköpunarkraft kvenna Það er vel við hæfi að á árinu sem 100 ára af- mæli kosningaréttar kvenna var minnst hafi konur verið í áberandi hlutverkum í leikhúsinu hvort heldur er innan eða utan sviðs í mörgum þeirra sýninga sem standa upp úr fyrir frum- leika og gæði. Óhætt er að segja að Tinna Gunn- laugsdóttir, þáverandi þjóðleikhússtjóri, hafi sett tóninn þegar hún haustið 2014 kynnti al- íslenskt leikár 2014-2015 auk þess sem hún valdi að veðja sérstaklega á sköpunarkraft kvenna og fela þeim aukna ábyrgð sem höf- undum og leikstjórum. Eftirmaður hennar í starfi, Ari Matthíasson, hefur sagt að hann hyggist gæta þess að tækifæri fyrir karla og konur verði jöfn í hópi listrænna stjórnenda og er það ánægjuefni. Að þessu hefur Kristín Ey- steinsdóttir borgarleikhússtjóri einnig gætt frá því hún tók við störfum. Enn er þó langt frá því að hlutfall kynjanna sé jafnt þegar kemur að t.d. leikstjórn og leik- ritun. Af þeim leiksýningunum sem undirrituð sá var um 34% þeirra leikstýrt af konum, þ.e. konur í hópi leikstjóra voru 11 meðan karlarnir voru 22, en einni sýningu var leikstýrt af báðum kynjum og annarri af tveimur körlum. Mun verri var kynjahallinn þegar kom að leik- skáldum, því sex leiksýningar voru eftir kven- kyns leikskáld meðan 25 sýningar voru eftir karlkyns leikskáld en þess ber að geta að höf- undar í hópi karla voru í reynd fleiri vegna þess að í þremur sýningum voru höfundar tveir karl- ar eða fleiri. Þetta þýðir að aðeins rétt rúm 19% leiksýninga byggðu á leiktextum eftir konur. Eðlilega vaknar sú spurning hvort leikhúsið geti endurspeglað samfélagið þegar hallar jafn ískyggilega á annað kynið í hópi höfunda. Í upphafi árs var frumsýnt mest abstrakt sviðsverk Auðar Övu Ólafsdóttur til þessa, Ekki hætta að anda, í leikstjórn Stefáns Jónssonar og uppfærslu Háaloftsins í Borgarleikhúsinu. Leit fjögurra kvenna að skilningi og ljósi var leið- arstef sýningar sem fól í sér vel heppnaða sam- bræðslu ólíkra listforma. Áður hafði Borgarleikhúsið sýnt áhrifamikla útfærslu Hörpu Arnardóttur á Dúkkuheimili Henriks Ibsen þar sem Unni Ösp Stefánsdóttur í hlutverki Nóru tókst frábærlega að miðla sárs- auka og örvæntingu konu sem á sífellt erfiðara með að leika það hlutverk sem eiginmaður og samfélag krefst af henni. Sú krafa eiginmanns að kona hans sé skrautmunur meðan hann hafi vit fyrir báðum sveif einnig yfir vötnum í Loka- æfingu Svövu Jakobsdóttur í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur sem Háaloftið setti upp í Tjarn- arbíói. Sérstakt ánægjuefni var að upplifa hversu vel hinn margslungni leiktexti Svövu hafði elst. Með Hystory sem Sokkabandið setti upp í Borgarleikhúsinu sýndi Kristín Eiríksdóttir að hún hefur meistaralega góð tök á leikritunar- forminu. Meinfyndinn texti hennar og átak- anlegt innihaldið skilaði magnaðri sýningu und- ir styrkri stjórn Ólafs Egils Egilssonar, sem mætti sannarlega gera meira af því að leikstýra. Í 4:48 Psychosis eftir Söruh Kane í leikstjórn Friðriks Friðrikssonar sem Edda Productions og Aldrei óstelandi settu upp í Þjóðleikhúsinu birtist örvæntingarfull leit að ljósi og þrá eftir að skilja og gera skiljanlegt óþolandi ástand þunglyndis. Frumleg nálgun leikhópsins að efn- inu skilaði sér í magnþrunginni sýningu sem hvíldi á áhrifamikilli frammistöðu Eddu Bjarg- ar Eyjólfsdóttur í mjög svo vandasömu hlut- verki einleiksins. Fáar barnasýningar áhyggjuefni Stóru atvinnuleikhúsin tvö í höfuðborginni settu upp sitt hvora fjölskyldusýninguna. Uppfærsla Borgarleikhússins á söngleiknum Billy Elliot eftir Lee Hall í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfs- sonar minnti okkur á mikilvægi þess að hlúa að hæfileikum svo listamenn geti blómstrað og þannig auðgað samfélagið allt. Óhætt er að segja að Bergur Þór hafi, í samstarfi við list- ræna stjórnendur sína og samstarfsfólk, unnið sannkallað þrekvirki með uppsetningunni. Ein- staklega ánægjulegt var að sjá loks Í hjarta Hróa hattar eftir David Farr í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar og Selmu Björnsdóttur í Þjóðleikhúsinu fjórum árum eftir að Vesturport setti verkið upp í samvinnu við Royal Shake- speare Company í Bretlandi. Athygli vekur að aðeins voru frumsýndar fimm barnasýningar á árinu og allar voru þær á fyrri hluta árs. Þeirra á meðal voru tvær sýn- ingar í Tjarnarbíói, þ.e. hamfaraleikritið Eld- barnið eftir Pétur Eggerz í leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur, sem Möguleikhúsið frumsýndi í tilefni af 25 ára starfsafmæli sínu, og yndislegi barnasöngleikurinn Björt í sumarhúsi eftir El- ínu Gunnlaugsdóttur við texta Þórarins Eldjárn í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og uppsetningu Töfrahurðar og Óperarctic. Augljóst er að leik- húsin þurfa að spýta í lófana á komandi vori til að koma í veg fyrir að hneykslið frá 2013 end- urtaki sig, þegar ekki reyndist unnt að veita Grímuna fyrir bestu barnasýningu ársins á sök- um fæðar þeirra. Kynbundið ofbeldi og náttúruvá Að lokum verður að minnast á nokkra aðsóps- mikla leikstjóra. Nálgun Yönu Ross á Mávinn eftir Anton Tsjékov í Borgarleikhúsinu var rót- tæk og leysti mikinn sköpunarkraft úr læðingi hjá leikhópnum sem ánægjulegt var að verða vitni að. Sama má segja um djarfa nálgun Þor- leifs Arnar Arnarssonar í nýrri leikgerð á Sjálf- stæðu fólki eftir Halldór Laxness í Þjóðleikhús- inu. Atli Rafn Sigurðarson sýndi að hann á fullt erindi í leikstjórnarstólinn þegar hann leikstýrði afar vandaðri uppfærslu á Heimkomunni eftir Nóbelsskáldið Harold Pinter í Þjóðleikhúsinu. Eðli málsins samkvæmt fékk leikhópurinn úr safaríkum texta að moða. Sá karllægi ofbeldis- heimur sem mætir Ruth í verkinu kallaðist með óþægilegum hætti á við samtímann þar sem um- ræðan um kynbundið ofbeldi fór hátt á sam- félagsmiðlum á liðnu ári að gefnu tilefni. Uppfærslan á Endatafli eftir Nóbelsskáldið Samuel Beckett, sem Svipir settu upp í Tjarn- arbíói á Listahátíð í Reykjavík, var sérdeilis áhrifarík. Kristín Jóhannesdóttir hefur einstakt lag á því að ná því besta úr leikurum sínum og Þór Tulinius og Þorsteinn Bachmann túlkuðu Clov og Hamm af miklu öryggi og innlifun. Kristín hannaði líka leikmyndina og tókst með snjöllum hætti að vera trú leikskáldinu sam- tímis því sem hún læddi inn sterkri ádeilu á um- gengni mannsins við náttúruna sem leitt getur til svo mikilla hamfara að heimurinn verði, líkt og eftir kjarnorkuslys, óbyggilegur. Óvæntur konfektmoli undir lok árs reyndist síðan vera Vegbúar eftir KK og leikstjórann Jón Gunnar Þórðarson í Borgarleikhúsinu. Tónlistarmaðurinn rakti þar sögu gítara sinna og um leið eigin sögu á fallegan og áhrifamikinn hátt eins og sönnum sögumanni er einum lagið. Arndís Hrönn Egilsdóttir var óhugnanlega góð þegar hún datt inn í manískar einræður sínar í Hystory Kristínar Eiríksdóttur. Ljósmynd/Þorbjörn Þorgeirsson Edda Björg Eyjólfsdóttir var mögnuð í miðlun sinni á síðasta leikriti Söruh Kane sem nefnist 4:48 Psychosis. Ljósmynd/Hörður Sveinsson Unnur Ösp Stefánsdóttir náði af einstakri leikni að sýna áhorf- endum margbrotna Nóru í Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen. Ljósmynd/Grímur Bjarnason MIKIL GRÓSKA Þrátt fyrir fögur áform um jafnari hlut kynjanna í leik- húsum landsins bera konur enn skarðan hlut frá borði þegar kemur að leikstjórn og leikritun. Athygli vekur þó að hlutur kvenna er áberandi í mörgum þeirra sýninga sem standa upp úr á árinu. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR hefur starfað sem blaða- maður á Morgunblaðinu frá árinu 2003. Hún er BA í heimspeki og MA í bók- menntafræði frá Háskóla Ís- lands, en lokaverkefni hennar fjallaði um leikstjór- ann Peter Brook. Silja hefur víðtæka reynslu á sviði leik- listar og er annar tveggja leiklistargagnrýnenda Morgunblaðsins. ÁNÆGJULEGT AÐ SJÁ HVERSU VEL KLASSÍSK LEIKRIT TÖLUÐU VIÐ SAMTÍMANN ıTU RN IN TS ı 2014ı TU P O INTSı20RNIN G PO IN 14 TU RNIN G POINTS|TÍM AM Ó T|2016|TURNINGPOI TS |T ÍM AM Ó T| 20 16 |

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.