Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016
Kannanir sýna að fjölmargir
múslímakarlar líta svo að ef
kona sýni bert hold sé hún
að gefa til kynna að hún sé
vændiskona. Kvenfyrirlitning
er víða rótgróin í heimi ísl-
ams og skipulagðar hóp-
árásir ungra karla á konur á
almannafæri, arabíska heitið
er Taharrush gamea, eru al-
gengar í arabalöndum.
Fyrir fimm árum hlaut
egypsk kvikmynd, 678, verð-
laun en hún fjallaði einmitt
um slíkar árásir sem stund-
um enda með nauðg-
unum. Mikið var
um árásir á
konur í upp-
hafi upp-
reisnarinnar
í Egyptalandi
2011.
Frægt er að allir breskir fjöl-miðlar steinþögðu á fjórða ára-tugnum um samband hins
kvensama Játvarðar prins (og síðar
konungs í nokkra mánuði) við frú
Wallis Simpson, fráskilda, banda-
ríska konu. Bretar sem komu til
Bandaríkjanna urðu margir stein-
hissa þegar þeir fréttu þar af málinu.
Vafalaust voru eigendur blaðanna og
ritstjórar sannfærðir um að ekki
mætti treysta almenningi fyrir svona
hættulegum fréttum. Hafa yrði vit
fyrir pöpulnum.
En eru málefni innflytjenda og
hælisleitenda þess eðlis að verjandi
sé að þegja um óþægilegar stað-
reyndir af ótta við að þær ýti undir
fordóma og útlendingahatur?
Margir hafa bent á að slík þögg-
unarleið sé í raun ófær á tímum nets
og samskiptamiðla, einhver í lögregl-
unni muni á endanum leka. Og ef um
sé að ræða tilfinningaþrungin mál
geri þöggunin illt verra. Hún auki
enn útbreidda tortryggni fólks í garð
yfirvalda og líka fjölmiðla, taki þeir
þátt í leiknum. Yfirmenn sænsku
lögreglunnar ákváðu síðustu mánuði
að meina fjölmiðlum aðgang öllum
upplýsingum um lögreglumál þar
sem hælisleitendur komu við sögu.
Það á jafnt við um mál þar sem þeir
hafa verið vitni, fórnarlömb eða ger-
endur. Slík mál fengu sérstaka
merkingu, töluna 291.
Uss...En nú er blaðra lögregl-
unnar sprungin og það með látum.
Virðuleg blöð eins og Dagens Nyhe-
ter, sem styður jafnaðarmenn, flokk
Stefans Löfvens forsætisráðherra,
lýsa hneykslun sinni á þessu leyni-
makki. Til að gera málið enn eldfim-
ara er komið í ljós að lögreglan sagði
beinlínis ósatt um hópárásir hæl-
isleitenda frá múslímaríkjum á kon-
ur, þær voru áreittar kynferðislega.
Hvað gera menn þegar kvenfrelsi
og samúð með með hælisleitendum
stangast á? Það fyrra víkur hjá mörg-
um Svíum. Ivar Arpi, leiðarahöfundur
á Svenska Dagbladet, fjallar í grein í
Spectator um áhrif pólitískrar rétt-
hugsunar í landinu á umræður um
hælisleitendur, hvernig beitt er
harkalegri þöggun, ekki síst með því
að klína rasistamerkinu á alla sem
spyrja óþægilegra spurninga um að-
lögun múslíma að samfélaginu.
Í Aftonbladet hafi verið sagt að það
væri rasismi að benda á að gerend-
urnir í hópárásunum í Köln væru frá
N-Afríku og arabalöndum. Þýskir karl-
ar hefðu líka áreitt konur á Oktober-
fest í Bæjaralandi. Og Arpi segir
marga Svía fullyrða núna að vandinn
sé karlar almennt, ekki ungir músl-
ímakarlar og menningarhefðir þeirra.
Fer lögreglan í framboð?
En mörg dæmi munu vera um slíkar
hópárásir hælisleitenda og innflytj-
enda frá múslímasvæðum í Svíþjóð
síðustu árin, m.a. á Sthlm-tón-
listarhátíðinni, bæði 2014 og 2015,
þar sem ungir, afganskir karlmenn
voru að verki. Lögreglan sagði op-
inberlega að afbrot og handtökur
hefðu verið „tiltölulega fá, miðað við
fjölda þátttakenda“. Í innri skýrslu
lögreglunnar, sem var haldið
leyndri, kemur hins vegar fram að
menn hafi orðið skelkaðir og reynt
að finna leiðir til að stöðva hópana.
Var það ætlun sænsku lögregl-
unnar að þagga niður allar umræð-
ur um hælisleitendur til að tryggja
að þær yrðu ekki pólitískt fóður fyr-
ir Svíþjóðardemókratana, SD? Pó-
púlistaflokkinn er nú þriðji stærsti
flokkurinn á þingi, hann berst hat-
rammlega gegn því að fleiri innflytj-
endur fái að setjast að í landinu.
Nær 160 þúsund hælisleitendur
eru nú í Svíþjóð. En Löfven hefur
nú skellt í lás, takmarkað mjög
strauminn eftir að hafa galopnað
landamærin í nokkra mánuði. Álagið
á innviði ríkisins var orðið of mikið,
sagði hann. Og kannanir sýna hann
og jafnaðarmenn í frjálsu falli.
Athyglisvert er að sjá að einn af
æðstu yfirmönnum lögreglunnar
hefur beinlínis viðurkennt að pólitík
hafi stýrt gerðum hennar. „Stund-
um þorum við ekki að segja hvernig
hlutirnir eru í raun og veru vegna
þess að við álítum að það myndi
gagnast Svíþjóðardemókrötum,“
sagði Peter Ågren, lögreglustjóri í
miðborg Stokkhólms. Sumir aðrir
yfirmenn fullyrða annað, segjast
vera „alveg ópólitískir“.
En áður en Dan Eliasson, rík-
islögreglustjóri Svíþjóðar, tók við
embætti sínu, mun hann hafa tvítað
að hann „ældi“ þegar hann sæi
Jimmy Åkesson, leiðtoga SD, á
sjónvarpsskjánum!
SD hefur síðustu mánuði reynt að
hrista af sér fasista-orðspor sem
flokkurinn fékk á sig vegna fortíðar
margra félaganna en einnig ýmissa
hatursfullra ummæla. En hvað sem
mönnum finnst um hættuna af
flokknum hlýtur það að vera líka
hættulegt ef lögreglan er komin á
kaf í pólitík.
Blaðran sem
alltaf spring-
ur að lokum
EIGA YFIRVÖLD AÐ SPORNA VIÐ UPPGANGI ÞJÓÐERN-
ISÖFGAFLOKKA MEÐ ÞVÍ AÐ ÞEGJA UM STAÐREYNDIR SEM
GETA GAGNAST FLOKKUNUM Í STJÓRNMÁLABARÁTTUNNI?
SÆNSKA LÖGREGLAN VIRÐIST ÁLÍTA ÞAÐ RÉTTA STEFNU.
Stúlkur í
Kaíró.
TAHARRUSH GAMEA
Sýrlenskir hælisleitendur hafa margir sýnt hug sinn og mótmælt ofbeldi gegn konum í Köln í Þýskalandi eftir skipu-
lagðar hópárásir sem um 1000 ungir múslímar gerðu þar á konur á gamlárskvöld.
AFP
* Það er ekki þannig að ég geti ekki þagað yfir leynd-armálum en þeir sem ég segi þau geta ekki haldið sérsaman. Abraham Lincoln, Bandaríkjaforseti 1861-1865.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
HEIMURINN
BRETL
m gerðórnvöld
neska njósnaranumvegna morðsins á rúss nenkó í London
var laumað í tebolla Litvinenkósð 2006. Geislavirku efni nn var þá
ku leyniþjónustunnar og hafði gagnrýorðinn starfsmaður bres tVladímír
Litvinenkó sagði m.a. í bók að PútPútín forseta harkalega. hefði látið
skipuleggja mannskæð ræði í nokkrum
rússneskum borgum ð 1999 en markmiðið
hefði verið að ko ruliða Tétsena
r kennt usem va rstaðan er að
morðið áes leyrússn pulagt
ssun sínaaranumnjós
aðyfir þ
B
ALHÖFÐIANAVERC
æðingatandarískir sB
ppggjast hafa use
istjörre kerfinuól
m 10go
ekki séðsinnum meiri massa e
ggisthnöttinn í stjörnukíki
á stærðfræ egarðilíkönum
Neptúnus til
þess stærð an
vera til er só
ÞÝSKA
BERLÍN R
í lok febrúa
manni sem jú
og gegndi m
útrýmingarbúðunu
var tekin af lífi í gask
aðallega gyðingar. Zaf
ermorðum nær 3.700 m
niðurstöðu fykomdómstó
Í
og hanna vstórlegum hefur verið
m farið erm r komið,
essa, þá hafiflí s 996 var talið m
v En skýrsluhöfunda
verið nær 130
nn í opinberar
mábá
i