Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 14
Hörð við-
brögð í
Hollywood
ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ ER ENGINN BLÖKKUMAÐUR TIL-
NEFNDUR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA FYRIR LEIK,
HVORKI Í AÐAL- NÉ AUKAHLUTVERKI. ÞÁ ER HELDUR
ENGINN TILNEFNDUR FYRIR LEIKSTJÓRN EN ÞESSIR
ÞRÍR FLOKKAR FÁ JAFNAN MESTA ATHYGLI ALMENN-
INGS OG FJÖLMIÐLA YTRA. GAGNRÝNISRADDIR
SEGJA ÓSKARSAKADEMÍUNA EKKI FYLGJA RÉTT-
INDABARÁTTU SVARTRA EFTIR OG VERÐA ÞESS Í
STAÐ HVÍTARI OG HVÍTARI. ÞEIR SEM KOMA TIL VARN-
AR SEGJA AÐ FYRST OG FREMST SÉ VIÐ ÞÁ AÐ SAK-
AST SEM FJÁRFESTA OG RÁÐA Í HLUTVERK.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Sylvester Stallone Eddie Redmayne Charlotte Rampling George Miller Mark Rylance
Leonardo DiCaprio
Alejandro Gonzalez Inarritu
Lenny Abrahamson Christian Bale
Adam McKayBrie LarsonMatt Damon Rooney MaraTom McCarthy
Saoirse Ronan Mark Ruffalo Cate Blanchett Bryan Cranston Kate Winslet
Jennifer Lawrence
Rachel McAdams
Jennifer Jason Leigh
Alicia Vikander Michael Fassbender Tom Hardy
Úttekt
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016
Margir hafa bent á að ötul baráttu blökku-
manna í Bandaríkjunum fyrir jafnrétti ætti ár-
ið 2016 að hafa skilað breytingum inn til
Óskarsakademíunnar.
Sé hins vegar horft til síðustu 20 ára eru
breytingarnar afar litlar. Heildartalan, yfir alla
flokka Óskarsverðlauna, er sú að aðeins 32
blökkumenn hafa verið tilnefndir til Óskars-
verðlauna. Það gerir um 8% allra tilnefninga. Í
ár þykir keyra um þverbak þegar ekki einn
blökkumaður er tilnefndur í fimm aðal-
flokkum Óskarsverðlaunanna.
Aðeins fjórir svartir karlleikarar hafa unn-
ið Óskarsverðlaun í flokki aðalleikara og ein
svört leikkona.
Margir leikarar, hvítir sem svartir, hafa vak-
Sidney Poitier var fyrsti blökkumaðurinn til að
hreppa Óskarsverðlaun fyrir leik í aðalhlutverki,
árið 1963 í myndinni Lilies of the Field.
Aðeins fimm Óskarsverð-
laun fyrir aðalhlutverk
ið máls á því að þau hlutverk sem svartar
leikkonur hafa verið tilnefndar til Ósk-
arsverðlauna fyrir snúast sjaldan um persónu
sem nýtur valda eða mikilvægrar stöðu.
Lupita Nyong’o sem var valin best í flokki
aukaleikkvenna á síðustu Óskarsverðlauna-
hátíð lék þræl. Halle Berry lék fátæka, ein-
stæða móður, Whoopi Goldberg vann Ósk-
arsverðlaunin fyrir hlutverk sitt sem
falsspámiðill, Hattie McDaniel var þjón-
ustustúlka. Eina svarta konan sem leikið hef-
ur persónu af hærri stigum eða með sterka
stöðu í þeim heimi sem kvikmyndin sýnir og
fengið Óskarsverðlaun fyrir er Jennifer Hud-
son sem lék tónlistarkonuna Effie White í
Dreamgirls.
Hlutverk svartra karlkynsleikara sem hlot-
ið hafa náð Akademíunnar eru aðeins fjöl-
breyttari. Jamie Foxx fékk Óskarsverðlaun
fyrir túlkun sína á tónlistarmanninum Ray
Charles og Forest Whitaker fyrir hlutverk
sitt sem forseti Úganda. Denzel Washington
fékk þá Óskarsverðlaun fyrir að leika spillta
löggu í Training Day og Morgan Freeman
hlaut Óskarsverðlaun fyrir að kenna hvítri
konu að slást í Million Dollar Baby en ekki
fyrir túlkun sína á Nelson Mandela.
Enginn blökkumaður hefur unnið Óskars-
verðlaun fyrir leikstjórn, búningahönnun,
besta handrit í upprunalegri útgáfu eða stutt-
myndum. Og Óskarsverðlaunin fyrir leik í
aðalhlutverki hafa ekki farið til svartra í 9 ár.
Denzel Washington var valinn besti leikari í að-
alhlutverki árið 2001 fyrir Training Day.
Halle Berry vann Óskarinn árið 2001 fyrir leik
sinn í Monster’s Ball.
Jamie Foxx fékk Óskarinn árið 2004 fyrir túlk-
un sína á goðsögninni Ray Charles.
Forest Whitaker tók Óskarsverðlaunin árið
2006 fyrir The Last King of Scotland.