Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 15
Þ Compton, fengu tilnefningar sem sneru aðhvítum handritshöfundum og hvítum auka-leikurum.Fimm ára verkefniðEn er eitthvað annað í bígerð en að bæta við322 nýjum meðlimum í Akademíuna til aðbreyta þessu?Í nóvember síðastliðnum sagði formaðurÓskarsakademíunnar að fimm ára verkefnisem ber yfirskriftina A2020 væri komið áfulla ferð. Snýst það um að Akademían og
kvikmyndaverin vinna að því að æðstu
stjórnendur í kvikmyndaheiminum leitist við
að endurspegla fjölbreytni samfélagsins
þegar kemur að því að ráða, kenna
og hvetja ungt hæfileikafólk.
Skiptar skoðanir eru um þessa
áætlun. Einn hópur segir fimm
ára plan allt of þróttlítið mark-
mið, þetta gæti gerst fyrr ef vilj-
inn væri fyrir hendi. Aðrir segja
að kaldur raunveruleikinn sé sá
að þetta geti engan veginn gerst
fyrr og þá vegna þess að flest kvik-
myndaver hafi skipulagt sína dag-
skrá langt fram í tímann,
hafi ráðið handritshöf-
unda, leikstjóra og
leikara nokkur
ár fram í tím-
ann. Þótt allir
séu af vilja
gerðir sé ekki
hægt að rifta
gerðum samn-
ingum. Svo að
áfram gæti heims-
byggðin verið að
sjá hvítra manna
Óskarsverðlaun
nokkur ár í viðbót.
undar og leikstjórar, þá hafa hvítir verið
98% verðlaunahafa í báðum flokkum alla tíð.
Óskarspanellinn er þannig samsettur að
um 94% eru hvít, 76% karlmenn og meiri-
hlutinn er yfir 63 ára.
Hvítir tilnefndir fyrir
myndir svartra
Ekki eru allir sem segja að spjótin eigi að
beinast í svo ríkum mæli að Óskarsnefnd-
inni. Þetta sé áhyggjuefni alla 365 daga árs-
ins en ekki bara vikurnar í kringum verð-
launin. Rót vandans sé ekki að finna innan
Akademíunnar.
Því þeir sem stjórna kvikmyndaiðn-
aðinum; þeir sem ráða leikstjóra, leik-
ara og leikkonur í kvikmyndir, séu í
raun þeir sem beri ábyrgðina.
Kvikmyndaiðnaðinum sé stýrt af
hvítum körlum og út frá þeirra
sjónarhóli lífsins séu kvikmyndir
framleiddar.
Þegar blökkufólk fær tilnefningar
til leikaraverðlauna hafa margir bent
á að þá sé oftar en ekki tilnefnt fyrir
hlutverk þar sem það er hvorki
kóngar, ráðamenn né valdhaf-
ar. Tilnefningarnar ber-
ast frekar fyrir hlut-
verk þar sem
svartir leika
þjóna, þræla,
verkamenn og
fólk í lægri stétt-
um þjóðfélagsins.
Enn meiri úlfúð
vekur að þær kvik-
myndir sem fjalla
um líf blökkufólks
sem tilnefndar eru í
ár; myndirnar Creed
og Straight Outta
„Ég hef lifibrauð mitt af kvikmyndum. Ég get sagt
ykkur hvert vandamálið er. Það er ekki það að þeir í
tilnefningarnefndinni séu of hvítir. Vandamálið er
fólkið sem getur komið því til leiðar að kvikmyndir
með svörtum, fólki af rómönskum uppruna, konum
og öllu því – að peningarnir skila sér ekki þangað
því sú hugmynd er uppi að það sé ekki pláss fyrir
„Svartar bíómyndir.““
Whoopi Goldberg leikkona
„Það er augljóslega alvarlegt vandamál í Hollywood
sem snertir kynþætti, kynhneigð og kyn. En það endar
hvorki né byrjar hjá um 6.000 meðlimum Akademí-
unnar.“ Eitt vandamálið er það hvað kvikmyndaiðn-
aðurinn er ekki að gera. Við erum brjáluð út í
Akademíuna en fyrir utan Idris Elba sem afrískur
stríðsherra í Beasts of No nation, Samuel L. Jackson í
The Hateful Eight, Creed og ýmiss konar tengd atriði í
Straight Outta Compton“, sem, hvers virði svo sem það
er, mér líkuðu fyrstu 40 mínúturnar af, hvaða svarta
fólki eða hvaða svörtu myndum missti Akademían í
raun af?“
Wesley Morris, kvikmyndagagnrýnandi New York Times
„Fólk kvartar jafnvel þótt við fáum fullt
af tilnefningum. Það er eins og það er.
Ég hef verið með í þessu í 25 ár. Þú
veist aldrei; þetta snýst um heppni.
Ég er ekki hissa. Ég er heldur ekki
vonsvikinn. Það er fullt af hlutum að
gerast sem hefja okkur upp.“
John Singleton, fyrsti blökkumaðurinn sem var
tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir bestu leikstjórn
Til varnar Akademíunni
Kvikmyndagerðarmaðurinn Spike Lee og leikkonan Jada Pinkett Smith hafa
lýst því yfir að þau muni sniðganga Óskarsverðlaunahátíðina og á fimmtudag-
inn bættist leikarinn Will Smith í hópinn. Á Twitter birtast óteljandi færslur
sem innihalda gagnrýni undir yfirskriftinni #OscarsSoWhite. Í fjölmiðlum
hafa tilnefningarnar til Óskarsverðlaunanna 2016 verið gagnrýndar harðlega.
„Ef maður hugsar 10 ár aftur í tímann stóð
Akademían sig betur en nú. Þá voru mun fleiri
blökkumenn tilnefndir.“
George Clooney
„Hvernig má það vera að annað árið í röð séu allir 20
tilnefndir í flokki leikara hvítir. Og förum ekki einu
sinni út í aðra flokka.“
Spike Lee
„Á Óskarsverðlaunahátíðum... Hörundslituðu fólki er
boðið að afhenda verðlaun... jafnvel skemmta gestum.“
Jada Pinkett Smith
„Af hverju las Óskarsnefndin allar hvítu tilnefningarnar
fyrst upp?“
Ricky Gervais
„Þetta eru erfiðar en mikilvægar umræður og það er
kominn tími á róttækar breytingar.“
Cheryl Boone Isaacs, formaður Óskarsakademíunnar.
„Þetta hefur fengið mig til að hugsa um
ómeðvitaða fordóma og hvað er metið að
verðleikum í menningu okkar.“
Lupita Nyong’o
„Ég er meðlimur Akademíunnar og
hún endurspeglar ekki mig. Hún
endurspeglar ekki þjóðina.“
David Oyelowo
Gagnrýnisraddir
Það er varlega til
orða tekið að
Hollywood hafi
farið á hliðina
þegar tilkynnt
var um til-
nefningar til
Óskarsverðlauna
í ár. Það kraumaði í
pottinum á síðasta ári
þegar allir leikarar og leik-
konur sem tilnefnd voru
voru hvít. Það sauð upp úr
þegar það gerðist annað árið í röð.
Cheryl Boone Issacs, formaður Óskars-
akademíunnar, brást við „alhvítri“ niðurstöðu
á síðasta ári með því að bæta við 322 nýjum
meðlimum í um 6.000 manna kosningapanel-
inn. Var það gert með það fyrir augum að
auka fjölbreytnina, ekki bara hvað varðar
kynþætti heldur einnig kynhneigð og kyn.
Þessar tilraunir Issacs virðast ekki hafa skil-
að neinu enn sem komið er að minnsta kosti.
Því þetta er staðreyndin:
Í þeim flokkum sem fá mesta athyglina,
leikurum og leikkonum í aðal- og auka-
hlutverkum sem og leikstjórum, er enginn
svartur tilnefndur. Og aðeins einn er ekki
hvítur eða hvít; mexíkanski leikstjórinn Alej-
andro González Iñárritu.
Í 87, brátt 88, ára sögu Óskarsverðlaun-
anna hafa 2.947 manns farið heim með gyllta
styttu. Aðeins 31 þeirra var svartur. 7%
Óskarsverðlaunahafa í flokki karlkynsleikara
hafa verið svört.
Árið 2002 varð Halle Berry fyrsta svarta
konan sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik í
aðalhlutverki. Og hingað til sú eina. Í flokki
leikstjóra hefur svartur einstaklingur aldrei
unnið Óskarsverðlaun.
Ef farið er yfir þá flokka sem fá hvað
mesta athygli utan leikaranna, handritshöf-
Hvernig verður panelnum í Akademíunni
breytt? Slíkt gæti líka reynst flókið. Bæði
eru meðlimir akademíunnar þangað komnir
til að sitja fyrir lífstíð í nefndinni, samkvæmt
núgildandi reglum. Og þeir sem bætast við,
þar á meðal þeir nýjustu 322, þurfa að upp-
fylla þau skilyrði sem sett eru fyrir því að
komast í nefndina. Viðkomandi þarf að hafa
langa reynslu af kvikmyndaiðnaðinum. Og
þegar kvikmyndaiðnaðurinn hleypir ekki
svörtum að í handritsskrif, leikstjórn og leik
í meiri mæli öðlast þeir ekki reynslu til að
komast í dómarasætin.
Þetta snýst þá líka um pening. Rannsóknir
sýna að það er mun erfiðara fyrir blökku-
menn að fá fjármagn til að framleiða stór-
myndir. Það sama á við um konur.
Jöfn kynjaskipting
eftir 700 ár?
Þótt umræðuna um svarta versus hvíta
tilnefnda til Óskarsverðlaunanna í ár beri
hæst um þessar mundir er akademían ár-
lega gagnrýnd fyrir hlut kvenna í tilnefn-
ingum. Um 16% allra tilnefninga til Ósk-
arsverðlauna hafa farið til kvenna frá því
byrjað var að veita verðlaunin, árið 1928.
Sú misskipting endurspeglar staðreyndir
sem leikkonan Geena Davis rakti í erindi
sínu á Inspiral WE2015 í Hörpu en hún
kom hingað til lands á miðju síðasta ári. Í
Hollywood-kvikmyndum eru konur til
dæmis 17% mannfjöldans í hópsenum.
Þróunin sé of hæg, það hæg að miðað við
hana í dag muni hlutföllin verða jöfn árið
2815 eða eftir 700 ár. Davis segir að þessu
sé hægt að breyta á einni nóttu, með því
einfaldlega að skrifa konur inn í handritin.
Það sé ódýrt og einfalt. Blökkumenn í
Bandaríkjunum og víðar segja að það sama
eigi við um þá. Þetta sé bara spurning um
vilja.
24.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15