Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Side 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Side 17
Til að halda kjörþyngd velja sumir að borða lítið af öllu. Samkvæmt rann- sókn sem birtist í PLOS ONE þar sem fylgt var eftir fimm þúsund manns í fimm til sjö ár kom í ljós að þeir sem leyfðu sér allt í smáskömmtum söfnuðu fitu um sig miðja. Sumir juku magamálið um 120%. Lítið af öllu ekki gott fyrir línurnar 24.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Fæst í apótekum | Celsus ehf. | www.celsus.is Sorbact - Græn sáralækning Klíniskar rannsóknir sýna bata á sveppasýkingu* hjá yfir 85% þátttakenda *candida albicans Fyrir tilstilli vatnsfælni bindast allir helstu sárasýklar og sveppir við umbúðirnar. Sýklarnir verða óvirkir og hætta að fjölga sér, án sýkla- eða sveppadrepandi efna. Virkar á VRE og MOSA sárasýkla. Skaðar ekki nýjar frumur. Ótakmörkuð notkun. Engar aukaverkanir. Ekkert ofnæmi. Sveppasýkingar - í húðfellingum - Einföld og áhrifarík, húðvæn meðferð Þægilegur grisjuborði, passar í nára, undir brjóst og magafellingar. Engin krem eða duft. F ljótlegasta leiðin til að fara utan er að sjálfsögðu að fara með þotu yfir hafið en mörgu fólki líður ekki sem best í háloftunum. Líkamlegir eða andlegir kvillar láta gjarnan kræla á sér. Sumir eru flughræddir, aðrir fá bjúg, flug- þreytu eða verki í líkamann. Margir eiga erfitt með að sofna í flugvélum og enn aðrir eru að reyna að sinna litlum börnum. En margt er til ráða til að láta sér líða betur á flugi, bæði fyrir áhafnir og farþega. Vefsíðan fittofly.com gefur frábær ráð um allt milli himins og jarðar sem tengist velferð á flugi. Stútfullur vefur af upplýsingum og ráðum Vefurinn er í umsjá Geirþrúðar Alfreðsdóttur, flugstjóra hjá Icelandair, en margir sérfræðingar, hver á sínu sviði, skrifa greinar á vefinn og er mikil áhersla lögð á fagmennsku. Grein- arar fjalla um ýmis mál tengd ferðalögum. Þar má til að mynda finna ráð varðandi öryggismál í útlöndum og er þar bent á ýmsar leiðir til að forðast að lenda í þjófnaði, svo eitt- hvað sé nefnt. Hægt er að lesa um réttindi flugfarþega, ráð við flughræðslu, hættuna á blóðtappa, flug á meðgöngu, hollt nesti á ferðalögum, bjúg á fótum, þurrt loft í flugvélum og margt fleira. Mælt með léttum æfingum Eitt af því sem fjallað er um er kyrrseta á flugi. Kyrrsetan í flugi veldur því að fólk verður stíft og stirt og er mælt með því að gera léttar hreyfingar, en þær er hægt að gera í sætinu. Sérstaklega er mælt með léttum æfingum á lengri flugleiðum til þess að örva blóðrásina og minnka þannig líkur á bólgum og bjúgmyndun sem stundum vilja myndast við slíkar að- stæður. Einnig er mælt með að standa upp og ganga um far- þegarýmið ef færi gefst. Hægt að minnka eða lækna flughræðslu Á vefnum eru gefin góð ráð við flughræðslu, sem er ein al- gengasta tegund fælni. Erlendar kannanir sýna að fimmti til tíundi hver fullorðinn er flughræddur og mun fleirum er ekk- ert vel við þennan ferðamáta. Konur eru frekar flughræddar en karlar og er flughræðsla algengust hjá fólki á aldrinum frá tvítugu til fertugs. Margir telja það tengjast ábyrgðartilfinn- ingu sem fylgir foreldrahlutverkinu. Margt er hægt að gera til að minnka eða lækna flughræðslu og er vel farið yfir þessi mál í grein Eiríks Arnar Arnarssonar, prófessors í sálfræði. Hægt að slaka á í flugvél Ef þú hyggur á ferðalög á næstunni er upplagt að kynna sér málin á fittofly.com. Það er hægt að njóta þess að slaka á í flugvél, horfa á góða bíómynd, lesa góða bók eða spjalla við ferðafélagana og umfram allt að láta sér líða vel. Sumir ná meira að segja að fá sér góðan lúr. Margir eru á leiðinni á framandi slóðir og því gott að koma vel hvíldur og endur- nærður á áfangastað. FIT TO FLY: FRÆÐSLUVEFUR FYRIR FLUGÁHAFNIR OG FLUGFARÞEGA Að njóta flugsins Getty Images/iStockphoto Á vefnum fittofly.com eru gefin mörg góð ráð sem tengjast vellíðan í flugvél. Á VERALDARVEFNUM MÁ FINNA ÍSLENSKU HEIMASÍÐUNA FITTOFLY.COM EN ÞAR MÁ FINNA ÝMSAN FRÓÐLEIK UM HVERNIG HÆGT SÉ AÐ LÁTA SÉR LÍÐA VEL UM BORÐ Í FLUGVÉLUM. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is *Heilsa fæst ekki keypt; þaðþarf að vinna fyrir hennimeð heilsusamlegu líferni. Dr. Joel Fuhrman. Flest þekkjum við einhvern sem líður illa í bíl. Fólk upplifir vanlíð- an og ógleði og endar það oft með uppköstum. En hvað er bíl- veiki og hvers vegna þjáist sumt fólk af henni? Bílveiki er ein tegund af ferða- veiki sem fólk getur fundið fyrir í bíl, flugvél, skipi, lest eða í tívolí- tæki. Ástæðan fyrir veikinni er sú að heilanum berast misvísandi boð frá ýmsum skynfærum lík- amans um stöðu hans og afleið- ingin er vanlíðan. Góð ráð við bílveiki eru að hafa augun á sjóndeildarhringnum en ekki einblína á hluti sem þeysa fram hjá. Það gæti einnig hjálpað að sitja í framsætinu og ekki lesa bók á ferð. Ekki vera nýbúin að borða fyrir langa bílferð og þá sérstaklega ekki brasaðan mat og ekki neyta áfengis og/eða annarra lyfja rétt fyrir eða meðan á ferð stendur. Rannsóknir hafa sýnt að engifer getur dregið úr áhrifum ferðaveiki. Piparmynta og te eru gömul húsráð sem hægt væri að prófa fyrir brottför. Sumir taka andhistamínlyf nokkrum klukku- tímum fyrir brottför eða ógleði- lyf. Getty Images/iStockphoto Ráð við bílveiki

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.