Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016
Matur og drykkir
E
inn af „nýjustu“ óvinum nútímamannsins er án efa sykurinn en
hann má finna í fleiri vörum en við gerum okkur grein fyrir. Ým-
islegt sem við teljum meinhollt er stútfullt af þessu hvíta dufti
sem því miður kætir bragðlaukana hjá mörgum. En hægt er að
njóta sætinda án sykurs.
Helgin kallar á sætmeti
Blaðamaður ákvað að prófa á sjálfum sér sykurleysi og hefur nú þraukað
í tvær vikur, án mikilla vandræða. Það sem kemur mest á óvart er hvað
viðbætti sykurinn leynist víða og stend ég oft í matvörubúðinni og grand-
skoða innihaldslýsingar. Margt fær að vera kyrrt í hillunum. En nú er
komin helgi og þá langar mann oft í eitthvað sætt. Ekki eru pönnsur eða
sykraðar kökur á dagskrá á næstunni þannig að úr varð að skoða hvaða
góðgæti mætti búa til, án sykurs. Íslenskir matgæðingar eru duglegir að
blogga og deila með okkur girnilegum uppskriftum af sykurlausu sætmeti.
Því ekki að prófa? Getty Images/iStockphoto
LJÚFFENGIR EFTIRRÉTTIR OG KÖKUR ÁN SYKURS
Sykurlaus
sætindi
SLEPPTU NAMMIBARNUM OG KOMDU FJÖLSKYLDUNNI Á
ÓVART UM HELGINA OG PRÓFAÐU SYKURLAUS SÆTINDI.
HÆGT ER AÐ BÚA TIL LJÚFFENGAR KÖKUR OG EFTIRRÉTTI
ÁN SYKURS OG ERU MATARBLOGGARAR DUGLEGIR AÐ
DEILA MEÐ OKKUR UPPSKRIFTUM.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
150 g möndlur
75 g pekanhnetur (eða t.d. valhnetur)
40 g kakóduft
50 g kakósmjör eða kókosfeiti (palmín eða
kókosolía)
30 g smjör
½ tsk vanilluessens
KREM
425 g döðlur
100 g kakóduft
125 g palmín (eða kókosolía)
1 tsk. vanilluessens
½ tsk flögusalt
OFAN Á
2 msk heslihnetu- eða möndluflögur
Setjið möndlurnar og pekanhneturnar í mat-
vinnsluvélina og malið þær, ekki rosalega fínt.
Setjið kakóduftið út í og þeytið því saman við.
Bræðið á meðan kakósmjör og smjör saman í
potti við vægan hita, takið það af um leið og það
er bráðið, hrærið vanillunni saman við og hellið
þessu svo yfir hnetublönduna og hrærið saman í
vélinni.
Hellið blöndunni í smelluform sem búið er að
pensla með ögn af olíu. Dreifið fyrst úr henni
með sleikju og notið svo fingurgómana til að
slétta betur úr henni og jafna í formið. Setjið það
svo í frysti á meðan kremið er útbúið.
Byrjið á að taka steinana úr döðlunum og setj-
ið þær í matvinnsluvélina. Látið hana ganga þar til
þær eru orðnar að mauki. Bræddu á meðan
palmínið. Setjið kakóduftið, vanilluna, saltið og
brædda palmínið út í og látið vélina ganga þar til
kremið er alveg slétt og fínt. Ef það er aðeins of
gróft og þurrt má bræða ögn meira palmín og
setja út í. Náið svo í botninn í frystiskápinn, setj-
ið kremið á hann og sléttið vel úr því með
sleikju. Stráið 2 msk. af heslihnetuflögum (má
líka nota t.d. möndluflögur) yfir og kælið kökuna
vel í ísskáp – það má líka stinga henni smástund í
frysti ef maður er að flýta sér. Af matarbloggi
Nönnu Rögnvaldardóttur á
nannarognvaldar.wordpress.com.
Óbökuð súkkulaðidöðlukaka
BOTN
5 dl möndlumjöl
6 eggjahvítur
1-2 msk sukrin eða önnur sæta
Þeytið eggjahvítur þar til þær eru stíf-
ar. Bætið við sukrin og blandið í lokin
möndlumjöli varlega við. Skiptið í
tvennt og setjið á bökunarpappír og
búið til hringbotn sem er ca 20 cm í
þvermáli. Bakið við 150 °C í 20 mín-
útur.
KREM
6 eggjarauður
1½ dl rjómi
1 dl sukrin eða önnur sæta
150 g smjör
nokkrir dropar af vanilludropum
(valfrjálst)
Setjið rjóma, rauður og sykur í pott og
hrærið í við meðal hita. Takið af hit-
anum þegar þykknar og bætið smjöri
við. Passið að hræra allan tímann í
pottinum. Setjið í kæli í að minnsta
kosti tvo tíma til að þykkja kremið.
Skreytið með ristuðum möndluflög-
um, jafnvel má nota bláber eða jarð-
arber. Kakan er líka góð ein og sér.
Uppskrift af http://www.disukokur.is/
Möndlukaka með unaðslegu kremi
200-225 g döðlur
2 1/2 dl vatn
3 stappaðir bananar
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
150 g möndlumjöl
150 g spelt
2 egg
2 msk ólífuolía
2 tsk vanilludropar
Sjóðið döðlurnar í vatninu í
nokkrar mínútur þar til þær verða mjúkar. Maukið
döðlurnar í blandara með vatninu.
Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið eggj-
um, ólífuolíu, vanilludropum, stöppuðum banönum
og döðlumauki saman við.
Smyrjið eða spreyið muffinsform með feiti og
hellið deiginu í. Uppskriftin dugar í 12 múffur. Bakið
við 200°C í 15-20 mínútur. Af matarbloggi Tinnu
Bjargar Friðþórsdóttur: tinnabjorg.com
Sykurlausar bananamúffur
Það er örugglega einhverjir sem
gretta sig þegar þeir sjá orðið
svartbaunir sett við hliðina á brow-
nies en ég lofa, þetta virkar!
1 dós svartar baunir
3 meðalstór egg
5 msk kókosolía (var með
bragðlausa)
150 g Sukrin Gold
55 g ósykrað kakó
1.5 tsk vanillu-essens eða
-dropar
½ tsk vínsteinslyftiduft eða
glútenlaust lyftiduft
100 g saxað sykurlaust súkku-
laði (valfrjálst)
(Ef þið viljið glúten- og sykurlaust
súkkulaði mæli ég með IQ súkku-
laðinu)
Sigtið bauninar og skolið vel.
Setjið í blandara ásamt eggjum og
blandið vel saman. Bætið við rest-
inni af hráefnunum (fyrir utan
súkkulaði) og blandið vel.
Saxið súkkulaði niður og bætið
út í og blandið með sleif. Setjið
bökunarpappír í eldfast mót, ca
20x28 cm og setjið deigið í. Smyrj-
ið því jafnt út og bakið á 180°C í
30-35 mínútur.
Reyndar er deigið svo gott og
þykkt að það er alveg hægt að
sleppa því að baka það og bera
fram sem súkkulaðimús.
Af matarbloggi Hafdísar Priscillu
Magnúsdóttur: disukokur.is
Svartbauna brownies