Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.1. 2016
Fjölskyldan Nýtt krílasálmanámskeið hefst í Laugarneskirkju fimmtudaginn 21. janúar.Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir ung börn og foreldra þeirra, þar sem
tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva börnin. Tímarnir eru
milli 13 og 14 og er skráning nauðsynleg. Nánar á laugarneskirkja.is.
Sálmar fyrir kríli
Þ
að getur verið mikið að
gera á stórum heimilum og
óreiða flækir lífið frekar en
hitt. Í byrjun árs er gott
tækifæri til að endurskipuleggja
sig og fá alla í fjölskyldunni til að
hjálpa til við að skapa ró á heim-
ilinu. Hérna koma nokkur góð ráð
til þess að minnka draslið.
1. Afgreiddu ruslpóstinn
Settu ruslpóstinn strax í endur-
vinnslu þannig að hann dreifist ekki
um allt hús. Athugaðu líka hvaða
póst hægt er að losna við alfarið
með því að afþakka fjölpóst. Það er
mikið áreiti frá auglýsingapósti, sem
getur líka skapað gerviþarfir hjá
fullorðnum og ekki síður hjá ungum
og áhrifagjörnum börnum. Líka er
mikilvægt að opna og takast á við
gluggapóst um leið og hann berst.
Annars safnast hann bara upp.
2. Hrein borð í eldhúsinu
Það getur komið sér vel að geyma
sem flest eldhústæki inni í skáp ef
það er pláss. Hrein borð í eldhús-
inu gera það að verkum að auð-
veldara er að vinna í eldhúsinu,
þrífa og ganga frá. Líka er góð
regla að ganga strax frá eftir mat-
inn því það er fátt sem dregur úr
manni kraftinn eins og eldhús í
óreiðu að morgni.
Yfir daginn getur hreinlega ver-
ið fljótlegra að vaska upp einstaka
bolla og diska heldur en að stafla
þessu í uppþvottavélina. Þannig
verður líka örugglega nóg pláss í
uppþvottavélinni fyrir kvöldmat-
ardiskana og auðveldara að ganga
frá síðar.
Til að minnka uppvask og frá-
gang má líka haga því þannig að
hver og einn fjölskyldumeðlimur
eigi sitt eigið vatnsglas sem hann
noti endurtekið yfir daginn.
3. Til atlögu við þvottafjallið
Þvottafjallið getur verið eins og sí-
stækkandi skrímsli, annaðhvort er
það þvottakarfan sem er troðfull
eða staflarnir af hreinum þvotti
hrannast upp.
Í þessum máli eins og svo
mörgum öðrum er best að fást
við vandamálið strax. Gakktu
strax frá hreinum fötum og ekki
henda óhreinum fötum á gólfið,
þau ganga ekki sjálf í óhreina
tauið. Best er ef allir á heimilinu
átta sig á þessu. Þvotturinn verð-
ur ekki að eins miklu fjalli ef
gengið er strax frá. Mikilvægt er
líka að fækka fötunum í skáp-
unum, þannig verður ekki eins
mikið að hugsa um. Gott er að
hafa poka hjá þvottavélinni og
setja þar föt sem eiga að fara til
Rauða krossins eða annað í end-
urnýtingu.
Börn vaxa hratt og því eru
stundum of lítil föt í skúffunum hjá
þeim sem gera það erfiðara fyrir
að ganga frá því plássið hefur
minnkað.
Þeir sem vilja prófa nýja aðferð
til að brjóta fötin saman, þannig að
auðveldara sé að sjá hvað er í
skúffunni ættu að slá inn „Kon-
Mari folding“ á Google.
4. Finndu stað fyrir dótið
Leikdót barnanna á ekki heima á
gólfinu nema þegar það er verið að
leika með það. Það er mikilvægt að
dótið eigi sér sinn stað. Þannig
verður auðveldara fyrir börn að
ganga sjálf frá og líka að finna
það sem á að leika með.
Það er gott fyrir börn að
þurfa að ganga frá dótinu
sínu á hverju kvöldi, taka
það sem hefur orðið eft-
ir inni í stofu eða ann-
ars staðar og setja
það á sinn stað.
Þetta kennir
þeim ábyrgð
og lætur þau
átta sig á því
að meira er
ekki alltaf betra.
Til viðbótar er
heimilið líka hreinna fyrir foreldr-
ana, þegar þeir geta loksins sest
niður um kvöldið.
Reyndar er þetta góð regla fyrir
fleira en dót. Ef hlutir eiga sér
sinn stað er miklu auðveldara að
ganga frá þeim.
5. Minnkaðu skrautið
Það er gaman að eiga fallega hluti
og stilla þeim til sýnis uppi í hillu
eða ofan á kommóðu. Þessir hlutir
fjölga sér smám saman þangað til
einn getur verið farið að skyggja á
annan. Stundum njóta færri hlutir
sín betur en fleiri. Fækkaðu þess-
um skrautmunum, taktu kassa með
þér í stofuna og fækkaðu hlutum
markvisst. Taktu það í burtu sem
þér finnst ekki fallegt eða hefur
mikla merkingu fyrir þig. Þetta á
áreiðanlega eftir að veita þér meiri
ró og gleði. Ef þú saknar einhvers
þá er bara að setja hlutinn á sama
stað aftur. Færri hlutir þýða líka
að það er færra til að þurrka af og
þrífa.
6. Pláss til að hengja af sér
Það er mikilvægt að það séu alltaf
laus herðatré í fataskápnum í and-
dyrinu. Þannig er líklegra að gestir
og heimilismeðlimir hengi af sér
þegar þeir koma inn. Troðfullur
fataskápur er ekki mjög aðlaðandi.
Fyrir börn er líka gott að notast
við snaga eða hengi en það virðist
sem börnum sé tamara að nota
herðatré sem sverð í leik heldur en
rauverulegt áhald. Ef börn vita
hvar þau eiga að hengja af sér,
skilja eftir skóna og geyma
skólatöskuna verður strax
mun ólíklegra að þessir
hlutir fari á flakk á heim-
ilinu þar sem einhver ann-
ar dettur um þá.
Innblástur í greinina
fékkst m.a. frá becom-
ingminimalist.com og
alphamom.com.
NOKKUR GÓÐ TILTEKTARRÁÐ FYRIR FJÖLSKYLDUR
Minnkaðu
draslið á
heimilinu
Hrein borð í eldhúsinu gefa meira vinnupláss og auðveldara er líka að þrífa eldhúsið þannig.
Getty Images/iStockphoto
ÞAÐ DREYMIR MARGA UM EINFALDARA LÍF OG ÞAÐ ÞARF
AÐ SKERA NIÐUR Á FLEIRI STÖÐUM EN Í MATARÆÐINU Í
BYRJUN ÁRS. Í ÞESSU EINS OG ÖÐRU ER GOTT AÐ VERA
STAÐFASTUR EN HÉR KOMA SEX GÓÐ RÁÐ SEM HJÁLPA
TIL VIÐ AÐ MYNDA GÓÐAR VENJUR, MINNKA DRASLIÐ
OG RÓA HUGANN UM LEIÐ.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Þvottafjallið
er vissulega
áskorun.
Erla Björnsdóttir og Þóra Hrund Guðbrandsdóttir segjast
vera „algjörir dagbókapervertar“. Í leit sinni að hinni full-
komnu dagbók ákváðu þær að búa hana til sjálfar. Á síðu
þeirra munum.is segir að dagbókin sé hönnuð með það að
leiðarljósi „að auka líkur á hámarks árangri
með því að auðvelda markmiðasetningu, tíma-
stjórnun, hvetja til framkvæmda og efla já-
kvæða hugsun,“ en þar er einnig að finna nánari
upplýsingar.
„Hún þurfti að vera falleg, fara vel í tösku, hafa
nóg pláss til að skrifa niður klukkustund fyrir
klukkustund, vera markmiðadrifin, hafa pláss fyrir
matseðil vikunnar, æfingu dagsins og umfram allt
að gefa innblástur. Við reyndum að hafa þetta allt
að leiðarljósi við hönnun bókarinnar og erum mjög
ánægðar með útkomuna og þau frábæru viðbrögð
sem bókin hefur fengið,“ sagði Erla í viðtali á mbl.is.
NÝSTÁRLEGAR DAGBÆKUR
Tímastjórnun og
jákvæð hugsun
Bókin fæst í
tveimur litum.
Þóra Hrund Guð-
brandsdóttir og Erla
Björnsdóttir.
Umboðsaðili: Yd heildverslun, s. 587 9393, yd@yd.is, YdBolighus