Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Side 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Side 35
24.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 Jólin eru ekki fyrr búin í öllu sínu veldi en næsta djamm hefst affullum þunga. Þeir sem ætluðu að vera búnir að núllstillast fyrirþennan tíma misstu pínulítið af lestinni (en svona er þetta bara). Ef það eru ekki þorrablótin sem eru að ryksuga upp frítímann þá eru það árshátíðirnar sem eru um það bil að bresta á. Vinkona smáhestsins vaknaði upp við vondan draum í vikunni þeg- ar hún áttaði sig á því að það væri árshá- tíð um helgina. Þegar smáhesturinn spurði í sakleysi sínu í hverju hún ætlaði á árshátíðina hló hún og tilkynnti að hún passaði ekki í nein föt. Hún sagði þetta líkt og ekkert væri eðlilegra. Smáhest- urinn lagði ekki alveg í að spyrja hvernig í ósköpunum þetta hefði eiginlega getað gerst en smátt og smátt rifjaðist það upp fyrir honum að ræktarferðir, salatát og vatnsdrykkja hefðu dálítið vikið fyrir út- landaferðum, ostum, eðalvínum og öðr- um huggulegheitum. Stundum er lífið bara svo gott og innihaldsríkt að það gefst ekki tími í svita, rækt og allt það. Smáhesturinn ætti að þekkja þetta. Hann má ekki hugsa um sætabrauð og sykursnúða þá belgist kvið- urinn á honum út og andlitið verður eins og tungl í fyll- ingu. Það er enginn að halda því fram að það sé eitthvað að þessu útliti, alls ekki, en lífið hefur þó kennt smáhestinum að tilveran í heild sinni verður betri ef hann stígur varlega til jarðar þegar kemur að sæt- indum og afurðum af hveiti- ökrum. Í byrjun árs ákvað smá- hesturinn að halda áfram að iðka sykurbindindi sitt (sem fokkaðist upp í desember), sem gefst alltaf ægilega vel þegar það er ástundað. Þetta afmarkaða sykurbindindi gengur út á að borða allan venjulegan mat en sleppa sælgæti, súkkulaði, kökum og sykurhúðuðum af- urðum. Hann borðar alveg ávexti og ein- staka sinnum, ef hann fer í boð, þá borð- ar hann það sem er í boði (til þess að búa ekki til vonda stemningu). Nema hvað þarna í byrjun árs varð sykurbindindið eitthvað svo erfitt að smáhesturinn stalst til að kaupa sér gosdrykk með gervisætu. Hann gerði þetta jafnvel þótt hann vissi að gervisætan myndi mögu- lega drepa hann einhvern tímann síðar á lífsleiðinni eða valda skemmtum á líf- færum. Eitt eða tvö glös … Hvað er það á milli vina hugsaði hann meðan syk- ursæta gosið rann ljúflega niður. Það versnaði þó í því þegar börnin opnuðu ísskápinn og spurðu mömmu sína, alveg gapandi hissa, hvað þessi gos- flaska væri eiginlega að gera í ísskápn- um. Það er búið að ala þessi börn svo þrusuvel upp að þau vita að það er ekki keypt neitt svona óþarfa glundur nema á hátíðisdögum. Smáhesturinn treysti sér ekki alveg til að ræða það við börnin að hann hefði verið að bugast í sínu sjálfskipaða sykurbindindi og sagði þess í stað: „Ég keypti þetta óvart.“ Börnin horfðu á móður sína undrunaraugum og spurðu hvernig í ósköpunum hún hefði eiginlega farið að því. Smáhesturinn reyndi að breyta um umræðuefni … Nokkrum dögum síðar fór fjölskyldan í nýlenduvöruverslun. „Mamma, manstu þegar þú keyptir þetta óvart,“ sögðu börnin og glottu. Svona svo því sé haldið til haga þá ruglast náttúrlega enginn á sódavatni og svörtu gosi nema vera með alvarlega sjónskerðingu. martamaria@mbl.is Þessi kjóll ýtir barminum ekki niður og býr til fallegar línur. Hann er úr Lindex. Grænn pallíettu- kjóll og kápa í stíl frá Emilio Pucci. „Ég keypti þetta óvart“ Það er allt í lagi að brúka litapallettu vorsins á árshátíðinni. Þessi er úr vorlínu Gucci 2016. Morgunblaðið gefur út sérblað föstudaginn 12. febrúar um Tísku & förðun Fjallað verður um tískuna vorið 2016 í förðun, snyrtingu, útliti og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 16 mánudaginn 8. febrúar. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.