Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Blaðsíða 39
úrtakið rís undir nafni þar sem það tekur til ríkustu manna veraldar og þeirra valdamestu. Við bætast háttskrifaðir og háttskrifandi blaðamenn og á þessa miklu rjómatertu setjast svo kirsuber eins og Kevin Spacey (Underwood myndi passa vel þarna), Leon- ardo DiCaprio og Bono, svo hluti skreytinganna sé nefndur. Í liðinni viku var Mario Draghi í Davos, æðsti mó- gúll Seðlabanka evrunnar. Enda mætti halda því fram að hefði Draghi ekki verið þar við núverandi að- stæður væri ofsagt að „allir“ hefðu verið þar. Banka- stjórinn skynjaði óróleika stórmenna og burgeisa yfir brothættu ástandi og jafnframt að hann væri senni- lega einn af fáum sálusorgurum sem þessir áheyr- andur kynnu að taka mark á. Áhorfendahópurinn hefur spurt sig hátt og í hljóði hvort skollin væri á ný kreppa eða hvort kreppan frá 2008 hafi aðeins legið niðri, eins og íslensk eldgos gera, og væri nú að gjósa aftur á nýrri sprungu. Draghi sagði, að sögn Evans-Pritchards, sem þarna var: „Við höfum margvísleg verkfæri í okkar vopna- búrum, markmið okkar liggja ljós fyrir og við höfum viljastyrk til að beita okkar verkfærum.“ Það þekkir hver á sjálfum sér að góðar fréttir eru teknar með minni fyrirvara en þær lakari. Því var gerður góður rómur að hreystitali bankastjórans. Þeir sem fylgdust með mönnum í návígi í aðdraganda heimatilbúnu heimskreppunnar, t.d. frá ársbyrjun 2007 til haustsins 2008, gleyma því seint hvernig af- neitunin yfirskyggði önnur viðbrögð. Jafnvel menn, sem heimurinn leit á sem risa á sviði efnahagsmála tóku forystu í þeim viðbrögðum og hjarðeðlið lét þá ekki að sér hæða. Þeim sem leyfðu sér að andæfa í þessu andrúms- lofti var kurteislega en ákveðið sýnt að þeir væru á röngu róli og ábyrgðarlaust tal gæti jafnvel grafið undan stöðu sem væri þó á flesta lund traust. Senn er áratugur frá þessum atburðum, sem ættu þó enn að vera í fersku minni. Nýlega virtist háskólakennarinn Gylfi Magnússon viðra þá kenningu sína að þessi kreppa hefði með ein- hverjum hætti átt rót í að sala íslenska ríkisins á tveimur bönkum af þremur (ekki þeim sem féll fyrst á Íslandi) hefði ekki verið nægjanlega „gagnsæ“. Klisjan var ekki greind nánar. Háskólakennarinn er frægur fyrir einstæða þekkingu sína á kúbversku efnahagsumhverfi. Það þarf þó ekki að þýða að þegar af þeirri ástæðu séu aðrar fullyrðingar af slíku tagi endaleysa. En hvað sem því líður þá virðist þessi kenning vera það. Andmæli úr öflugri átt En í Davos var á meðal annarra „allra“ æðsti yfir- maður svissneska bankans UBS. Hann lét ekki eftir sér að „kaupa“ huggunarorð Draghis og gerði at- hugasemd. Gjarnan er litið á slíka sem veisluspilla í svo sérlegum selskap. En þar sem í hlut átti Dr. Axel Weber lögðu menn við hlustir. Dr. Weber var áður aðalbankastjóri Seðlabanka Þýskalands og vildi frú Merkel hann sem eftirmann Trichet, bankastjóra evrubankans, en Weber afþakkaði. Hann sat þó lengi í stjórn þess banka og var þar í hópi mestu áhrifamanna. Weber sagði, „að það sem Seðlabanki evrunnar gæti náð fram væri augljóslega háð skýrum takmörk- unum. Vandinn er sá, að peningastefnan (bankans) er komin að endamörkum sínum.“ Weber bætti við að „aukaverkanir lyfjagjafar bank- ans færu sífellt vaxandi, en þau jákvæðu áhrif sem lyfjagjöfin ætti að hafa á meinið sem barist er gegn, minnkuðu jafnt og þétt.“ Axel Weber sagði ennfremur að „óróleikinn í efna- hagslífi heimsins, sem við erum nú vitni að, eru fyrstu merkin um timburmennina og vitnisburður um gjald- ið sem við verðum að greiða að lokum.“ Hann sagðist samt búast við því að Seðlabanki Draghis „væri líklegur til að reyna að þvinga vextina enn lengra niður á „neikvæða svæðið“. En sú gjörð myndi hitta menn sjálfa fyrir. Það er mjög mikil hætta á því, að með slíkri stefnu verði lausafénu að lokum bolað út úr hagkerfinu.“ Morgunblaðið/RAX 24.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.