Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.01.2016, Page 49
24.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Nú styttist í afhendingu Óskarsverðlaunanna og áhugamenn um kvikmyndir eru spenntir að sjá þær myndir sem berjast um helstu verð- launin. Þar á meðal eru The Reve- nent og The Big Short sem nú eru sýndar hér á landi. 2 Tveir ljósmyndarar segja um helgina frá verkunum á sýn- ingum sínum. Á laugardag kl. 14 mun Friðgeir Helgason ræða um verkin á sýning- unni „Stemning“ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi og á sunnu- dag kl. 15 mun Ingvar Högni Ragn- arsson segja frá verkunum í „Upp- sprettum“ í Gerðarsafni. 4 Einleikurinn Eldklerkurinn, um séra Jón Steingrímsson, verður sýndur í tvígang í Tjarnarbíóí í mánuðinum og fyrst á sunnudagskvöldið klukkan 19. Hann var frumsýndur fyrir tveimur árum og hlaut afar góðar viðtökur. 5 Gísli Sigurðsson, rann- sóknarprófessor hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslensk- um fræðum, mun á sunnudag klukkan 14 veita leiðsögn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Gísli mun sérstaklega fjalla um mynd- og bókmenntir í hand- ritunum en á sýningunni eru meðal annars 14 handrit af Jónsbók. Aðgang- ur er ókeypis. 3 Myndlistarmaðurinn Kristinn Már Pálmason opnar í dag, laugardag, klukkan 13 sína tuttugustu einkasýningu í Dead Gallery, Laugarvegi 29. Sýn- inguna kallar listamaðurinn „Svartur punktur“ og gefur að líta ný málverk. MÆLT MEÐ 1 þátt í þessari mynd líka. Þær klipptu myndina og unnu kraftaverk. Það er ekki hlaupið að því að koma svona stórum sögum saman. Ég vildi ekki að saga ömmu og afa týndist í sögu Lehr- manns, sem er mjög stór. Og öfugt. Sjálfur stend ég svo nálægt málinu að gott var að fá ferska sýn á það. Sindri, Titti og Þuríður stóðu sig öll frábærlega að því leyti. Hjálpuðu mér að skilja ansi margt. Eins og með alla kvik- myndagerð þá verður maður að vera tilbúinn að færa fórnir; henda jafnvel því sem er manni kærast í ruslið. Kill your darlings, eins og sagt er.“ Eins og áður segir verður Njósnir, lygar og fjölskyldubönd frumsýnd í Bíói Paradís næst- komandi fimmtudag. Að sögn Helga er næsta skref að kynna myndina gagnvart hinum ýmsu hátíðum en aðilar í Svíþjóð og Þýska- landi hafa þegar sýnt henni áhuga. Spurður um Bretland kveðst Helgi ekki vera kominn svo langt en að sjálfsögðu verði reynt að koma myndinni á framfæri þar. Steinninn farinn úr skónum Myndin á sér tæplega þriggja áratuga að- draganda og Helgi viðurkennir að þungu fargi sé af sér létt. „Það er frábært að þessu langa og stranga verkefni sé lokið. Ég hef verið að freista þess að ná réttu jafnvægi í myndina fram á síðasta dag en nú er hún loksins tilbú- in. Héðan af verður engu breytt. Þetta hefur verið eins og að vera með stein í skónum. Nú er ég loksins búinn að losa hann úr og geng eðlilega á ný. Þá get ég farið að snúa mér að öðrum verkefnum.“ Málið er viðkvæmt í föðurfjölskyldu Helga og hann vonar innilega að myndin ýfi ekki upp gömul sár. „Andinn í fjölskyldunni hefur verið góður enda loksins búið að grafa stríðs- öxina, að ég held. Ég sýndi drög að myndinni á ættarmóti sem fjölskyldan hét á Ísafirði í fyrra og var vel tekið. Eftir að sýningu lauk kom að vísu dálítil þögn sem var svolítið þrúgandi en síðan virtust allir vera sáttir. Myndin hefur reyndar breyst svolítið síðan sem þýðir að kannski erum við ekki vinir lengur.“ Hann hlær. „Þetta er mikið tilfinningamál og það tekur ekki bara á að vinna efni sem stendur manni svona nálægt, heldur líka að sýna öðrum það. Hvað ætli Freud myndi segja ef ég legðist á sófann hjá honum? Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að losa mig út úr þessu en niðurstaðan hefur alltaf verið að halda áfram. Og nú verður ekki aftur snú- ið!“ „Þetta er mikið tilfinningamál og það tekur ekki bara á að vinna efni sem stendur manni svona nálægt, heldur líka að sýna öðr- um það,“ segir Helgi Felixson kvikmyndagerðarmaður. Morgunblaðið/RAX Hjónin Margarethe Häsler og Tryggvi Jóakimsson ásamt sonum sínum, Aðalbirni, Felix og Tryggva. Mágkonurnar Gertrude og Margarethe Häsler á Ísafirði áður en slettist upp á vinskapinn. Með þeim eru synir þeirrar síðarnefndu, Felix og Tryggvi og Aðalbjörn í vagninum. Ísafjörður fyrir seinna stríð. Myndin er líklega tekin 1935 eða 1936.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.