Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Blaðsíða 2
Hvernig var að vinna með svona góðum
gamanleikurum?
Þetta var hræðilega erfiður tími. Orkan í þeim á æfing-
um var þvílík að ég lagðist bara beint í rúmið þegar
heim kom. Svo lenti ég í sjálfsálitskrísu. Bæði konan
mín og mamma hafa oft sagt mér að ég sé frekar fynd-
inn, en í þessum félagsskap var grínið mitt einhvern
veginn ekki neitt neitt. Get ekki mælt með þessu við
nokkurn mann.
Hvaðan fenguð þið innblástur fyrir tón-
listina? Þið notið margar tegundir af
hljóðfærum.
Við Baldur vildum reyna að endurskapa tónlistarleg
einkenni þjóðanna sem við heimsækjum, án þess þó að
spila bara gömul þjóðlög. Þá hjálpar að nota viðeigandi
hljóðfæri og/eða söngstíl þar sem hægt er. Harmónikka
kveikir t.d. hugrenningar um Frakkland, sítar tengist
Indlandi beint, samstígar ferundir tengjum við beint við
kínverska tónlist (hvort sem við þekkjum fræðiheitið eða
ekki) o.s.frv.
Svo er líka lag þar sem ekki er notast við hljóð-
færi heldur líkamann ekki satt?
Eitt lag er sungið án undirleiks. Þá rekur Filías Fogg ferða-
áætlun sína, en hópurinn syngur fjölraddað Tikk Takk undir.
Það er gaman að hafa svona söngfært fólk á sviðinu, og alls ekki
sjálfgefið að leikhópur geti sungið í mörgum röddum.
Hvernig var að standa sjálfur á sviði í þessu hlut-
verki? Í indjánabúningi og með húðflúr á hausn-
um?
Indjáninn minn er yndislegur, hann fékk svo fallegan boðskap í
texta sem var auðvelt að semja laglínu við. Það sama má reyndar
segja um Frakkann minn (annar karakter sem ég leik). Höf-
uðflúrið er stórkostlegt, eins og allt útlit sýningarinnar.
Hvernig myndir þú ferðast umhverfis jörðina á
80 dögum? Einhverjir draumaáfangastaðir?
Ekki siglandi, svo mikið er víst. Ég verð allt of sjóveikur til þess.
Ég myndi vilja nota ferðalagið til að kynnast áhugaverðri tónlist.
Eyða kannski mánuði í að flakka um Afríku, og öðrum mánuði í
Ástralíu. Vika eða tvær á Balí í millitíðinni, og restin færi svo í flug
og millilendingar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUNNAR BEN
SITUR FYRIR SVÖRUM
Sjóveikur
indjáni
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016
Nei, veistu, það er bara það ógeðslegasta
sem ég veit.
Birna Guðrún Þórðardóttir
Nei, ekki að staðaldri. Ég borða harðfisk og
lýg því að sjálfum mér að hákarl sé góður. Ég
smakka hann bara til að vera meiri Íslend-
ingur.
Ari Stefán Hróbjartsson
Nei, ekki neitt svoleiðis. Nema harðfisk.
Ívar Dór Orrason
Já, og líklega er hákarlinn í uppáhaldi. Ég er
alin upp við þetta.
Arna Eir Gunnarsdóttir
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR BORÐAR ÞÚ ÞORRAMAT?
„Mér finnst ég vera að fást
við allan skala mannlegra
tilfinninga,“ segir Sigga
Björg Sigurðardóttir
myndlistarkona þegar hún
er spurð um furðuleg
mannskoffínin sem birtast í
verkum hennar. Sigga Björk
sýnir nú í Hverfisgalleríi
stórar blekteikningar og
þrívíð dýr. Menning 48
FURÐUHEIMUR BLEKFÍGÚRANNA
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Sítróna er ávöxtur sem nýta
má til allrar matargerðar en
safinn, kjötið og börkurinn er
dásamlegt krydd í kjöt-, fisk-
og eftirrétti svo ekki sé
minnst á kökur. Nokkrar
dásamlegar uppskriftir sem
innihalda sítrónur má finna í
blaðinu í dag. Matur 28
Roller Derby, eða hjólaskautaruðningur, er nýtt
sport á Íslandi. Leikmenn þeysa hring eftir hring á hjóla-
skautum í mikilli baráttu til að koma manni sínum fram-
úr andstæðingnum. Mikil harka er í leiknum. Heilsa 16
„Borgarastríðið hvílir enn í
dag þungt á mörgum hér,“
segir Finninn Kjell
Westö, sem fékk bók-
menntaverðlaun Norð-
urlandaráðs fyrir bókina
Hilling 38 sem nú er komin
út hérlendis. Aðalpersóna
bókarinnar er enn að gera
upp við hörmungarnar frá
1918. Bækur 50
Gunnar Ben og Baldur Ragnarsson úr Skálmöld semja tónlistina í
Umhverfis jörðina á 80 dögum sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Leik-
arar eru m.a. Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfs-
son og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.