Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016
Heilsa og hreyfing
N
ý íþróttagrein er að
líta dagsins ljós hér á
landi þar sem kepp-
endur eru á hjóla-
skautum. Tvö lið skipuð fimm
manns hvort keppa á spor-
öskjulaga braut og skauta hring
eftir hring á miklum hraða. Valinn
er einn lykilleikmaður í hvoru liði
sem merktur er með stjörnu á
hjálminum. Hann er kallaður
djammari sem er þýðing úr enska
orðinu jammer. Það lið sem kem-
ur sínum djammara oftar fram úr
andstæðingum vinnur leikinn.
Mynda mannlega veggi
Alexandra Dögg Steinþórsdóttir,
sem stundar sportið af miklum
móð, útskýrir leikinn. „Tilgang-
urinn er að koma
djammaranum í
gegnum hópinn,
hring eftir hring í
kringum brautina.
Hún fær stig fyr-
ir hverjar mjaðm-
ir sem hún kemst
framhjá,“ segir
Alexandra.
Á vellinum er hart barist.
„Bæði liðin þurfa að vera innan
sex metra, annars myndu allir
tvístrast út um alla braut. Bæði
liðin eru að spila sókn og vörn á
sama tíma. Þetta er mikið af fólki
á sama svæði sem er að slást um
að koma sinni manneskju í gegn
og að passa að hin manneskjan
komist ekki í gegn. Við myndum
mannlega veggi því það er auðveld-
ara að stoppa manneskju fjórar
saman heldur en ein. Þegar djamm-
arinn er búinn að skauta hringinn
og er kominn á rosa hraða er mikið
högg sem kemur þegar hann er
stoppaður af. Ruðningurinn kemur
þegar hann er stoppaður en það má
ekki nota hendur og ekki olnboga
og það má ekki sparka,“ útskýrir
Alexandra. „Það má bara nota frá
miðjum lærum og upp að öxl þann-
ig að þú slengir öllum líkamanum,“
segir hún og viðurkennir að það sé
alveg hægt að meiða sig en þess
vegna eru notaðar hlífar. „Það er
hættulegast ef þú dettur og tekur
fjölda manns með þér af því að það
er svo mikill hraði,“ segir hún.
„Það er ekkert algengt að fólk slasi
sig illa, maður er bara svolítið
lemstraður.“
Skauta eins og brjálæðingar
Engin mörk eru í leiknum heldur
teljast stig þegar djammarinn
kemst framhjá andstæðingi. „Ef þú
ferð framhjá fjórum manneskjum
færðu fjögur stig. Svo reynirðu að
hlaupa annan hring og fá fleiri stig.
Þú ert í raun að skauta eins og
brjálæðingur ef þú ert djammari og
síðan að slást til að komast í gegn,“
segir hún en hver lota er einungis
tvær mínútur.
Hinir í liðinu kallast „blocker“ en
þeir eru þá í vörn og hjálpa sínum
djammara að komast í gegn. Hún
segir liðið velja hverjir eru bloc-
kerar og hver er djammari. „Við
veljum oft sterka einstaklinga sem
geta gefið stór högg og sem eru
mjög stöðugir sem blockera.
Djammararnir eru oft fólkið sem
er með gott úthald og getur
skautað rosalega hratt. En þær
þurfa líka að vera mjög sterkar
því þær eru í raun með fjórar á
móti sér á meðan blockarar eru
fjórar á móti einni,“ segir hún.
Ekki tekin alvarlega í byrjun
Roller Derby er upprunalega frá
Bandaríkjunum og byrjaði þar um
ROLLER DERBY ER NÝ ÍÞRÓTT Á ÍSLANDI
Hart barist á
hjólaskautum
ROLLER DERBY, EÐA HJÓLASKAUTARUÐNINGUR,
ER NÝ ÍÞRÓTTAGREIN SEM ER AÐ SKJÓTA RÓTUM
HÉRLENDIS. UM FJÖRUTÍU MANNS STUNDA NÚ
ÍÞRÓTTINA EN FER FJÖLGANDI. Í LEIKNUM Á
LYKILLEIKMAÐUR AÐ SKAUTA FRAM ÚR ANDSTÆÐ-
INGUM OG SAFNA STIGUM TIL AÐ VINNA LEIKINN.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Ljósmynd/Marko Niemelä
Alexandra Dögg
Steinþórsdóttir
Keppt er við erlend
lið tvisvar á ári. Í fyrra
léku þau á móti
sterku liði Finna.
Litríkur matur er ekki bara augnayndi. Sterkir
litir í mat benda oft til þess að maturinn sé holl-
ur og fullur af vítamínum og andoxunarefnum.
Borðaðu mörg handfylli af litríkum ávöxtum og
grænmeti daglega og þú þarft ekki sleppa úr
venjulegum máltíðum. Hlaup og M&M telst ekki
með, þótt litríkt sé. Hvað er betra en mangó,
bláber og jarðarber til að lífga upp á daginn?
Borðaðu litríkan mat
Í vikunni stóð sálfræðisvið og náms-
og starfsráðgjöf Háskólans í
Reykjavík fyrir vitundarvakningu
um geðheilbrigði. Fyrirlestrar voru
haldnir um ýmis geðheilbrigðismál
en aðalfyrirlesari var David M.
Clark, prófessor við Háskólann í Ox-
ford og einn þekktasti sérfræðingur
heims á sviði gagnreyndrar sál-
fræðimeðferðar. Hann fjallaði um
umfangsmikið og árangursríkt verk-
efni sem snýr að því að auka vægi
sálfræðimeðferðar í almennri heilsu-
gæslu í Bretlandi.
Jón Friðrik Sigurðsson, sálfræð-
ingur og prófessor í HR og HÍ sagði
að fyrirlestrarnir, sem voru bæði
fyrir nemendur og almenning, hefðu
verið vel sóttir. Hann er hlynntur
hugmyndum David M. Clark og
myndi gjarnan vilja sjá þessa að-
ferðafræði hér á landi. „Það eru til
úrræði, sérstaklega við þunglyndi
og kvíða og geðröskunum, sem eru
hagkvæm, en þær standa fólki ekki
til boða. Læknar hafa fá úrræði og
oft eru lyf eina úrræðið, það þekkj-
um við vel hér á landi. Við förum
fram úr öllum tölum í lyfjagjöf, t.d.
hvað varðar þunglyndislyf. Það eru
til aðferðir sem gagnast mjög vel, í
sumum tilfellum jafnvel eða betur
en lyfjameðferð og hafa ekki auka-
verkanir,“ segir Jón en um þetta
fjallaði fyrirlestur David M. Clark
Sálfræðimeðferð oft
betri en lyfjagjöf
ÞÚF
ÆRÐ
VÉLS
LEÐA
-
FATN
AÐIN
NHJ
ÁOK
KUR
STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS