Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016
Fjölskyldan Krakkamengi, tilraunanámskeið í tónlistarsköpun fyrir 4-6 ára börn, verður haldið íannað sinn sunnudaginn 31. janúar klukkan 10.30 í Mengi við Óðinsgötu. Benedikt
Hermann Hermannsson, tónlistarmaður og kennari, leiðir námskeiðið en gestir
verða Kira Kira (Kristín Björk Kristjánsdóttir) og Futuregrapher (Árni Grétar).
Annað Krakkamengi
Ungt fólk eyðir meiri tímaá netinu en í að horfa ásjónvarpsþætti, sam-
kvæmt árlegri könnun sem gerð
er í Bretlandi til að kanna sjón-
varps- og netnotkun barna.
Starfsfólk rannsóknarstofunnar
Childwise segir þetta marka
mikla breytingu. Hjá þeim sem
horfa á sjónvarp er Netflix vin-
sælla en hefðbundin sjónvarps-
stöð. Fréttavefur BBC greinir
frá þessu.
Ennfremur hefur orðið mikil
auking á spjaldtölvueign barna,
eða um 50% frá fyrra ári.
Könnunin náði til fleiri en
2.000 barna, fimm til sextán ára,
og hefur verið gerð árlega frá
því á miðjum tíunda áratugnum.
Þetta er í fyrsta sinn sem
netnotkun, þrír tímar á dag, er
meiri en sjónvarpsáhorf, sem
mælist að meðaltali 2,1 klukku-
stund á dag.
Á meðal 15-16 ára unglinga
horfir minna en fjórðungur
hópsins á sjónvarp í línulegri
dagskrá. 32% þessa aldurshóps
eiga sér engan uppáhalds-
sjónvarpsþátt.
Helmingur horfir á Netflix
50% höfðu horft á Netflix í vik-
unni sem könnunin fór fram en
sambærileg tala fyrir vinsælustu
sjónvarpsstöðvarnar var 47% hjá
ITV1 og 46% hjá BBC1.
Ungt fólk vill þó ennþá helst
horfa á sjónvarp í sjónvarpstæki
og horfir lítill hópur á sjón-
varpsþætti í farsímanum.
Meðalnetnotkun barna er þrír
tímar á dag en á meðal 15-16
ára unglinga er notkunin nærri
því fimm tímar. Algengasta leið-
in til að nota netið er í gegnum
farsíma, sem er í almennri eigu
þessa hóps.
Á meðal yngri barna hefur
verið mikil aukning á notkun
spjaldtölva og er iPad þar vin-
sælastur. Þetta er í fyrsta sinn
í könnuninni sem spjaldtölvan er
vinsælli en aðrar tegundir af
tölvum.
Börn fara á netið til að horfa
á myndbönd, hlusta á tónlist,
spila leiki og í heimildaöflun fyr-
ir heimavinnu. Eldri hópurinn
notar samfélagsmiðla, ekki síst
stelpur.
YouTube er einhver vinsælasti
áfangastaðurinn á netinu og er
vefurinn notaður af nærri helm-
ingi allra fimm til sextán ára
barna.
Fyndin myndbönd vinsæl
Vinsælasta efnið er fyndin
myndbönd og kennslumyndbönd
og horfa margir á kennslu-
myndbönd um ýmsa tölvuleiki.
YouTube er líka vinsæl leið til
að horfa á sjónvarpsþætti en
74% ungs fólks horfa þannig
samanborið við 40% sem horfa á
BBC iPlayer, sem er vinsælasta
sjónvarpsþjónustan af þessu tagi
á Bretlandi.
Annað sem vinsælt er að gera
á netinu er að fara á Snapchat,
skoða Instagram eða Facebook
og spila Minecraft.
Geislaspilarinn er á útleið en
flestir hlusta á tónlist í gegnum
farsímann sinn. Tímarit eru enn-
fremur lesin af færri en áður.
VATNASKIL Í MIÐLANOTKUN BARNA OG UNGLINGA Í BRETLANDI
Á meðal 15-16 ára unglinga horfir minna en fjórðungur hópsins á sjónvarp í línulegri dagskrá. 32% þessa aldurshóps eiga
sér engan uppáhaldssjónvarpsþátt. YouTube er vinsæl leið til að horfa á sjónvarpsþætti.
Getty Images/iStockphoto
BÖRN OG UNGLINGAR Í BRETLANDI EYÐA NÚ MEIRI
TÍMA Á NETINU EN Í AÐ HORFA Á SJÓNVARPSÞÆTTI,
SAMKVÆMT ÁRLEGRI KÖNNUN, OG ER ÞETTA
Í FYRSTA SINN SEM TÖLVURNAR OG SNJALLTÆKIN
ERU VINSÆLLI EN SJÓNVARPIÐ.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Meiri tími í tölvur en sjónvarp
Skólastjóri í Bretlandi hefur skrifað foreldrum barna
í skólanum og biðlar til þeirra um að hætta að fylgja
börnunum í skólann á náttfötunum. Kate Chisholm,
skólastjóri grunnskólans Skerne Park Academy í
Darlington, skrifaði bréfið eftir að hún tók eftir því
að sífellt fleiri foreldrar fylgdu börnum sínum í og úr
skóla í náttfötunum, náttslopp og jafnvel inniskóm.
Chisholm segir að kornið sem fyllti mælinn hafi
verið þegar einhverjir foreldrar mættu í náttfötum á
jólasýningu skólans og á foreldrauppákomur að
kvöldi til í skólanum. Hún segist vera að gera þetta
til að börnin fái betri fyrirmyndir í lífinu.
„Ég er ekki að reyna að segja fólki hvað það eigi
að gera við líf sitt en mér finnst mikilvægt að börn
hafi góða fyrirmynd á morgnana, að foreldrar fari á
fætur, klæði sig og séu tilbúnir í daginn þegar þeir
fari út að morgni,“ sagði hún í samtali við BBC. „Mér
fannst bara að þetta hefði gengið of langt,“ sagði
hún.
„Ég hef fengið mikinn stuðning frá nærsamfélag-
inu og fólk hefur sagt við mig að það væri tími kom-
inn til að taka á þessu. Ég hef fengið fleiri jákvæð
viðbrögð en neikvæð,“ sagði Chisholm sem segir að
besta tækifærið til að hlúa betur að börnunum sé í
gegnum foreldrana.
SKÓLASTJÓRI HVETUR FORELDRA TIL AÐ KLÆÐA SIG
Engin náttföt á skólalóðinni
Náttföt eru
ekki skólaföt.
Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is
• Tímasparnaður
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Umhverfisvænt
• 6 x hreinna - betri þrif
• Vinnuvistvænt
• Minni vatnsnotkun
Nýja ENJO vörulínan er komin á markað
Ferskari, líflegri og enn meiri gæði
Margir foreldrar hafa áhyggjur af að börnin
þeirra eyði allt of miklum tíma á netinu. Þetta get-
ur valdið togstreitu á heimilinu, sér í lagi þegar
áhyggjur foreldra brjótast út með stöðugu tuði og
nöldri. Aðfinnslur foreldranna leiða til þess að
barnið verður pirrað sem veldur foreldrunum enn
þá meiri áhyggjum. Um tvennt er að velja vilji for-
eldrar koma sér út úr þessum vítahring: að kynna
sér netið af eigin raun með aðstoð barnanna og að
ræða við börnin af yfirvegun.
Mælt er með að foreldrar gefi sér tíma til að
kynna sér hvað börnin þeirra eru að gera á netinu,
hvaða leiki þau spila og hvaða vefsíður þau nota
mest. Þannig getur skapast samtal milli foreldra og
barna, bæði um kosti þess að nota netið og aðra
miðla og eins hvaða hættur það getur haft í för
með sér. Samtal skilar alltaf betri árangri en stöð-
ugar aðfinnslur og yfirgangur. Börn eiga líka rétt á
að segja sína skoðun.
Setji foreldrar allt of strangar reglur um miðla-
notkun á heimilinu er hætt við að börnin verði
hvekkt og veigri sér jafnvel við að biðja um aðstoð
síðar meir. Traust og opin samskipti eru lykilatriði
eigi miðlanotkun barnsins að vera eins örugg og
hægt er. Einnig er mikilvægt að foreldrar gangi á
undan með góðu fordæmi og gjói ekki augum sífellt
á símann eða sjónvarpið. Slökkvi jafnvel stundum á
miðlunum og njóti friðar og samveru við börnin
sín.
Börn og unglingar vita fátt skemmtilegra en að
spjalla við foreldra sína og eiga athygli þeirra
óskipta í smástund.
Það getur líka verið gaman að lesa saman, læra að
nota myndavél eða horfa á kvikmyndir saman. Það
er ein besta kennsla í miðlalæsi sem foreldrar geta
gefið börnum sínum. Með þessum hætti getur fjöl-
skyldan farið saman í ferðalag um miðlaumhverfi
21. aldarinnar. Þetta snýst ekki bara um að setja
ramma og reglur!
Úr handbókinni Börn og miðlanotkun sem er að finna
á heimiliogskoli.is
Fjölskylduleiðbeiningar um miðlanotkun