Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Blaðsíða 17
31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
1940. Þá var litið á íþróttina frek-
ar sem skemmtiatriði en íþrótt.
„Þetta var svolítið eins og fjöl-
bragðaglíman sem var rosalega of-
beldisfull en líka bara leikrit.
Þetta var ekki alvarleg íþrótt og
einungis konur voru í henni. Svo
voru það stelpur í Texas sem tóku
íþróttina og löguðu hana til og
bjuggu til reglugerðir og gerðu
þetta að alvöru sporti. Núna er
þetta risa samfélag í heiminum.
Og nú eru líka karlar í þessu,“
segir Alexandra. Hún segir að
konur og karlar spili á ólíkan hátt.
„Konur spila þetta meira með
mjöðnunum en karlar með öxl-
unum,“ segir hún.
Sjö dómarar fylgjast með
Sjö dómarar eru á vellinum en
íþróttin er svo hröð að það þarf
marga dómara til að fylgjast með.
Dómarar dæma þá villur á leik-
menn ef þeir brjóta af sér. „Ef
þú færð sjö villur ertu rekinn af
vellinum og þá þarftu bara að
gefa skautana og helst að fara úr
húsinu. En það er algengt að fólk
fái villur. Það er mikið af reglum.
Þá ferðu í skammarkrók í 30 sek-
úndur, sem er frekar mikið af
tveimur mínútum en þá máttu
fara að skauta aftur inn á,“ út-
skýrir hún.
Hjálmar og hlífar
Roller Derby á Íslandi heldur oft
nýliðanámskeið og fá þá þátttak-
endur allan búnað lánaðan, nema
hjálminn. En staðalbúnaður er
hjólaskautar, hjálmur og hlífar á
munn, hné, olnboga og úlnliði.
„Við komum þeim af stað og síð-
an kaupa þau eigin útbúnað ef
þau vilja vera áfram með okkur,“
segir hún og nefnir að meðlimir
séu fjörutíu en að þau séu tutt-
ugu hér á landi sem stundi þetta
reglulega.
Alexandra segir þau vera búin
að sækja um að komast í Íþrótta-
félag Íslands og leita þau að góðu
íslensku nafni yfir Roller Derby.
„Þetta er viðurkennd íþrótt og er
stefnt að því að hún verði á ól-
ympíuleikunum einn daginn,“ seg-
ir hún en íslensku nöfnin sem
hafa verið nefnd eru skautaat og
hjólaskautarallý.
Eina liðið á landinu
Íslenska félagið hefur verið til í
fjögur ár en fór á fullt skrið fyrir
tveimur árum. Keppendur þurfa
að vera átján ára og er fólk upp
að fimmtugsaldri að æfa sportið.
Æft er þrisvar í viku í 2-3 tíma í
senn. Það hefur verið vandamál
að keppa í greininni þar sem þau
eru eina liðið á landinu. „Við höf-
um verið að keppa tvo heimaleiki
á ári við fólk erlendis frá,“ segir
Alexandra. Hún segir að liðið sé
að verða nógu stórt til að þau
geti skipt í tvö lið og keppt við
hvort annað. „Þá munum við
keppa mun oftar,“ segir Alex-
andra og vonast hún til að sjá
fleiri Íslendinga á hjólaskautum í
framtíðinni.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
* Svo reynirðuað hlaupa ann-an hring og fá fleiri
stig. Þú ert í raun
að skauta eins og
brjálæðingur ef þú
ert djammari og síð-
an að slást til að
komast í gegn.
Roller Derby er nýtt á Íslandi
og er æft þrisvar í viku. Mikil
harka er í leiknum en leik-
menn eru á hjólaskautum.
Læknirinn getur hjálpað þér að halda heilsunni en ábyrgðin er alltaf
hjá þér. Fáðu annað álit ef þú ert í vafa og haltu heilsufarsdagbók.
Skráðu þar niður allt sem viðkemur þínum sjúkdómi, lyfjanotkun og
heimsóknum til lækna. Kynntu þér vel sjúkdómasögu ættingja þinna.
Vertu ábyrgur sjúklingur* Ef þú býrð ekki yfir sjálfstrausti muntu alltaf finna leið til að tapa.
Carl Lewis
Manneskjan, sem íbúi jarðar, verð-
ur að huga að sjálfbærni í neyslu-
venjum sínum til að ganga ekki á
auðlindir jarðar. Ekki viljum við
skilja eftir sviðna jörð fyrir kom-
andi kynslóðir og því þarf hver og
einn að líta í eigin barm. Á vefsíð-
unni heilsanokkar.is er ítarlega far-
ið yfir þessi mál.
Fólksfjölgun er gríðarleg og er
talið að jarðarbúar verði yfir 9
milljarðar eftir 25 ár. Til að tryggja
fæðuöryggi verður að huga að
þessum málum strax í dag. Til þess
að leggja þitt af mörkum eru hér
gefin fimm góð ráð:
Veldu plöntuafurðir Þá stuðlar
þú að minni notkun á ferskvatni
auk þess að minnka eyðingu skóga.
Minnkaðu kjötneyslu Kjötfram-
leiðsla veldur mikilli losun gróð-
urhúsalofttegunda en það þarf 11
sinnum meiri orku til að framleiða
eina hitaeiningu af dýrapróteini en
eina hitaeiningu af plöntupróteini.
Veldu sjávarafurðir Þær eru
hollar og góðar og er bleikur fiskur
sérstaklega ríkur af omega-3 fitu-
sýrum og D-vítamíni.
Verslaðu í nærumhverfi. Þar er
oft að finna lífrænt ræktaðan mat.
Slík ræktun stuðlar að minnkun í
orkunotkun og flutningskostnaði
og tilsvarandi minnkun í losun
gróðurhúsalofttegunda.
Vertu meðvitaður um það
sem þú borðar Hugsaðu út í
hvaðan maturinn kemur, hvernig
hann er ræktaður og hvernig hann
nærir líkamann.
SJÁLFBÆRAR NEYSLUVENJUR
Hugað að sjálfbærni
Verslaðu lífrænt
grænmeti í versl-
un nálægt þér.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
sem hefur starfað sem ráðgjafi fyrir
síðustu þrjár ríkisstjórnir í Bret-
landi.
Í Bretlandi hafa þessar sál-
fræðiaðferðir verið notaðar með
góðum árangri. Jón segir þessar að-
ferðir sálfræðinga skila sér vel til
sjúklingsins sem kemst þá aftur út á
vinnumarkaðinn en einnig skilar það
sér í ríkiskassann á endanum. Hann
segir að margir ráðamenn hafi sótt
fyrirlestur Clarks. „Ráðherra heil-
brigðismála er áhugasamur, hann
hefur sýnt það. Það er alltaf byrj-
unin. Það þarf að setja pening í alla
hluti til að fá þá til baka. Það þarf
líka að þjálfa fólk og við þurfum að
gera það,“ segir hann. Stjórn-
málamenn vilja þetta þegar þeir átta
sig á því að við getum alltaf sýnt
hvað við erum að gera,“ segir Jón og
nefnir að þetta virki vel í Bretlandi.
Þarf að vera niðurgreitt
„En til þess að þetta verði að veru-
leika þarf að leggja svolítið í þetta og
menn þurfa að vera óhræddir og
treysta því að það komi eitthvað til
baka. Nú eru fleiri lönd að skoða
þetta módel,“ segir hann og bendir á
að það sé ekki verið að segja að lyf
séu gagnslaus. Þetta snýst fyrst og
fremst um það að það sé til úrræði
sem er aðgengilegt en nú er gang-
verðið á sálfræðiviðtali 14 þúsund
krónur. „Fólk veigrar sér oft við að
borga fyrir svona,“ segir Jón sem vill
fá slíka þjónustu niðurgreidda af rík-
inu. „Það er hægt að breyta þessu á
skynsamlegan og gagnlegan hátt.
Sjúklingurinn á að fá bestu meðferð
sem völ er á; hann á að fá ódýrustu
meðferðina og hún á að skila árangri,“
segir Jón að lokum.
Fyrir áhugasama má lesa um
verkefnið en það nefnist Improved
Access to Psychological Therapies.
Á slóðinni http://www.ru.is/
haskolinn/vidburdir/nr/32553 má sjá
fyrirlesturinn sem David M. Clark
hélt í vikunni.
Morgunblaðið/Ásdís
Sjá útsölustaði Crabtree & Evelyn á www.heggis.is