Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 10
Condé Nast getur þess að Victoria sé hálfsystir listamannsins Ólafs Elíassonar. Í matarumfjöllunum evrópskra mat- artímarita hefur borið nokkuð á nafni íslensks matreiðslumanns, Victoriu Elíasdóttur, sem rekur veit- ingastaðinn Dóttir í Berlín. Bloom- berg-fréttastofan fjallaði til dæmis um veitingastaðinn á síðasta ári og sagði hann einn þann besta í borg- inni. Nú í vikunni útnefndi ferða- tímarit Condé Nast Victoriu einn áhugaverðasta unga kokk heimsins en í grein sem birtist meðal annars á vefhluta blaðsins voru 10 kokkar um víða veröld nefndir til sögunnar, sem þykja upprennandi stjörnur. Þess er sérstaklega getið í grein- inni að Victoria sé systir listamanns- ins Ólafs Elíassonar og að upp- haflega hafi hún komið til Berlínar að áeggjan bróður síns. Þangað kom hún fyrst til að sjá um eldamennsku fyrir níutíu manna starfslið í stúdíói Ólafs ásamt ýmsum fleiri verkefnum en í framhaldinu bauðst henni að opna sinn eigin veitingastað í borg- inni. Hráefnin sem notuð eru á veit- ingastaðnum Dóttir eru mörg hver íslensk, svo sem þurrkað sjáv- arþang, en mikil áhersla er lögð á fiskrétti á matseðlinum. Victoria er 27 ára gömul og þykir hafa komist ótrúlega langt miðað við ungan aldur. Victoria er fædd í Dan- mörku en ólst meðal annars upp á Íslandi. Victoria Elíasdóttir lofuð í hástert Veitingastaðurinn Dóttir í Berlín þykir einn af þeim betri í borginni. Vettvangur 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016 Ég uppgötvaði um áramótin að mér hafðiláðst að láta nýjan launagreiðanda geraráð fyrir viðbótarlífeyrissparnaði í sér- eignarsjóð. Ég hef alltaf lagt fyrir tiltekinn hluta launa minna með þeim hætti og þannig fengið framlag frá launagreiðanda sem nemur 2% af launum. Í upphafi skrifaði ég undir samning við einhvern séreignarsjóðinn, tilkynnti þáverandi launagreiðanda þá ákvörðun og hef lítið haft af málinu að segja eftir það. Ég varð því svolítið hvekkt þegar ég uppgötvaði að greiðslur í sjóð- inn höfðu fallið niður í nokkra mánuði. Auðvitað var andvaraleysi mínu um að kenna en ég velti þó fyrir mér hví athygli mín hafi ekki verið vakin á þessu. Lína frá launadeild hefði nægt: „Sigríð- ur mín, ertu ekki að greiða í viðbótarlífeyr- issjóð?“ Kvikna ekki rauð ljós í launadeild ef ein- hver er ekki að greiða séreignarsjóð? Nei. Það kom mér á óvart að heyra að fráleitt allir á vinnustaðnum greiða viðbótarframlag í lífeyr- issjóð. Nokkur hluti starfsmannanna hefur þann- ig kosið að afþakka 2% launahækkun um hver mánaðamót! Þetta hefði ekki átt að koma mér á óvart í ljósi umræðu um lífeyrismál og kjör eldri borgara. Mér hefur þótt örla á því að það komi mönnum á óvart við lok starfsævinnar hver lífeyrir þeirra er. Þá er ríkt hjá sumum að vilja líta svo á að menn eigi sjálfstæðan rétt til ellilífeyris frá TR, án tillits til tekna þeirra að öðru leyti; „Ég hef alltaf greitt skattana mína og á því rétt á þessum bótum TR“. Svona rétt eins og heilsuhraustir menn hafi rétt á því að leggjast helgi og helgi inn á spítala. Mörgum þykir afar ósanngjarnt að bætur TR séu að verulegu leyti tekjutengdar. Það er jafnframt harðlega gagnrýnt að þeir sem eiga langa starfsævi að baki og hafa ætíð greitt í lífeyrissjóð hafi litlu meira ráðstöfunarfé en þeir sem eingöngu reiða sig á almannabótakerfið. Það nær hins vegar ekki nokkurri átt að fólk með góðar eða jafnvel háar greiðslur úr lífeyr- issjóði fái háar bætur frá skattgreiðendum. Sí- vaxandi hluti þeirra sem nú kemst á ellilífeyr- isaldur hefur greitt í lífeyrissjóð alla sína starfsævi og fáar þjóðir hafa lagt jafn mikið fyrir og Íslendingar. Nú eru í lífeyrissjóðum lands- manna eignir sem jafngilda allri landsframleiðsl- unni í 18 mánuði. Ísland nýtur verulegs forskots á aðrar Norðurlandaþjóðir hvað þetta varðar. Markmiðið með lífeyrissjóðakerfinu er að hver og einn hafi forræði á sínum kjörum að lokinni starfsævi, bæði með samtryggingarsjóðum og séreignarsöfnun en ekki með bótum frá ríkinu Við munum færast jafnt og þétt nær þessu marki. Þá eykst rýmið til að bæta hag þeirra sem af ýmsum ástæðum hafa lítt eða aldrei greitt í lífeyrissjóð. Í upphafi skal endinn skoða * Fáar þjóðir hafa lagtjafn mikið fyrir í lífeyr-issjóði og Íslendingar. Af þjóðum OECD hafa aðeins Hollendingar lagt fyrir stærri hlut af landsframleiðslu en við Íslendingar. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Sigríður Ásthildur Andersen sigga@sigridur.is Hátíð framsækinnar nútíma- tónlistar á Íslandi, Myrkir mús- íkdagar, er í fullum gangi en fjöl- miðlamaðurinn Logi Bergmann tísti um hátíðina í vikunni: „Shit hvað mér finnst alltaf fyndið þegar fólk að spila nútíma- tónlist þykist vera að spila eftir nótum.“ Og bætti svo við: „Mér finnst þetta allt líta út eins og gott vinnustaðagrín.“ Félagar hans á Twitter gerðu ei- lítið grín að honum í kjölfarið og útvarpsmaðurinn Þossi, betur þekktur sem Þorsteinn Hregg- viðsson, spurði Loga hvort hann hefði verið í hóp- eflisferð með Bylgjunni. Þorsteinn Guðmundsson grínisti skrifaði svo: „Been there þegar ég spilaði á trompet sem unglingur. Ég spurði stjórnandann hvort ég hefði spilað rétt. Hann yppti bara öxlum.“ Áttunda myndin í myndaflokkn- um Fast and the Furious, Fast 8, verður tekin upp á Íslandi, meðal annars á Akranesi nú í vor. Kvik- myndin snýst að stórum hluta um götukappakstur í hinum ýmsu borgum en menningarritstjóri Kastljóssins, Bergsteinn Sig- urðsson, skrifaði á Facebook: „Það má ekki sýna neinar myndir af bílunum í Fast and the Furious 8 meðan á tökum stendur. Þeir eru allir með spoiler.“ Og rithöfund- urinn Auður Jónsdóttir skrif- aði á Facebook í tilefni umræðna um listamannalaun: „Veraldarvön vinkona mín (ekki á starfslaunum listamanna) velti því fyrir sér um daginn, yfir grískum smárétti á mat- armarkaði hér í Berlín, hvort hávær gagnrýni ákveðinna ráðamanna á starfslaun listamanna væri m.a. til þess hugsuð að draga athygli fólks frá búvörusamningnum við bændur. Ég hafði ekki hugsað út í það, satt að segja, ekki fyrr en nú.“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.