Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 18
Ferðalög
og flakk *Hallað hefur undan fæti í hagkerfinu og ekki hjálparpólitísk ólga jafnt innanlands og í nágrannalönd-unum. Fyrir vikið hefur gengi tyrknesku lírunnarlækkað töluvert á undanförnum misserum. Í dagkostar líran rúmlega 43 krónur en var um fimmt-ungi hærri fyrir ári og meira en tvöfalt sterkari árið2013. Er kjörið að sækja Tyrkina heim áður en
gengið styrkist á ný.
Gengið með hagstæðasta móti
Ljósmynd / Wikipedia – Kultigin (PD)
Baklava er fyrir þá
sem kunna að
meta sætmeti.
Þ
eir sem kynnast bestu hliðum
Istanbúl eiga erfitt með að
standast töfra borgarinnar. Þeir
standa sig að því að snúa aftur
og aftur til þessarar fyrrverandi höf-
uðborgar Tyrkjaveldis þar sem austrið
og vestrið mætast.
Hægt væri að telja upp langan lista af
óviðjafnanlegum minjum, moskum og
höllum sem ferðalangurinn verður að
heimsækja, á borð við Ægisif, Grand
Bazaar, Bláu moskuna, Prins-eyjarnar,
Galata-turninn og Ottómanahöllina Top-
kapi. En það sem gerir borgina svo sér-
staka og ómótstæðilega er umfram allt
mannlífið og menningin, og Istanbúlbú-
arnir sjálfir sem geta verið svo ynd-
islegir.
Kannski eru kettirnir greinilegasta
birtingarmynd þess anda sem er yfir
borginni og fólkinu sem þar býr. Kis-
urnar fá að valsa um og eru í senn eig-
endalausar og í umsjá allra. Góðhjart-
aðir borgarbúar láta sig ekki muna um
að skilja eftir smá vatn í skál við inn-
ganginn að heimilum sínum og jafnvel
gauka þurrfóðri að hverfiskisunum. Þeg-
ar kólnar í veðri spretta upp lítil heima-
gerð skýli hér og þar, í bakgörðum og
húsasundum, þar sem loðnu heið-
ursborgararnir geta fengið að kúra ef
þeim tekst ekki að finna sér afdrep í
tómum kjallara einhvers staðar. Rataði
það meira að segja í fréttirnar á dög-
unum að imam nokkur í borginni ákvað
að opna moskuna sína fyrir kisunum í
vetrarkuldanum.
Að lifa eins og köttur
Svo virðist sem kattareðlið hafi smitast
yfir til mannfólksins og endurspeglast í
mörgu því besta sem borgin hefur að
bjóða og allir gestir ættu að prófa: Er
t.d. auðvelt að komast í tengsl við sinn
innri kött á þægilegum bekk á kaffihúsi,
í einhverri hliðargötunni í gamla borg-
arhlutanum. Vatnspípa og tyrkneskur
tebolli kórónar upplifunina. Það er líka
kattarlegt að fylgjast með veiðimönn-
unum sem dorga af Galata-brúnni og
leita svo uppi veitingastað sem býður
upp á nýveiddan fisk beint upp úr Mið-
jarðarhafinu. Er líka allt í lagi að kaupa
einfaldlega alvöru dürüm á leiðinni heim
til að kjamsa á uppi á hótelherbergi og
kannski eina öskju af baklava í eftirrétt.
Ef þetta dugar ekki til þá verður ein-
faldlega að taka stefnuna á gott baðhús,
hamam. Kettir eru þrifalegir og það eru
gestir baðhúsanna líka, skrúbbaðir hátt
og lágt og vöðvarnir nuddaðir lengst inn
að kjarna. Jafnvel bara heimsókn á rak-
arastofuna getur fengið fólk til að mala,
því þar er nostrað við skegg og barta og
þykir þjónustan langt undir meðallagi ef
ekki fylgir með smá höfuðnudd.
Þeir kunna þetta, Istanbúlbúarnir, og
lærðu það örugglega allt af köttunum.
AFP
Menn á gangi á Istiklal, einni helstu verslunargötu Ist-
anbúl. Rauður sporvagn fer upp og niður götuna.
ÁFANGASTAÐUR VIKUNNAR: ISTANBÚL
Kattaborgin við
Bosporus-sund
GESTIR Í ISTANBÚL ÆTTU AÐ PRÓFA AÐ NJÓTA HINS DAGLEGA
LÍFS Á KAFFIHÚSUNUM OG Í BAÐHÚSUNUM, OG REYNA AÐ LÆRA
LÍFSGILDIN AF KÖTTUNUM SEM HAFA LAGT BORGINA UNDIR SIG.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Þó almennt sé ágætlega hugsað um kisurnar í
Istanbúl er ástandið fjarri því fullkomið. Þrot-
laus vinna sjálfboðaliða
virðist vera að bæta að-
stæður kattanna smám
saman með geldingum,
bólusetningum og lækn-
isaðstoð.
Kattavinir sem heim-
sækja Istanbúl ættu að
reyna að hafa eins og einn poka af þurrmat í
hliðartöskunni á ferðum sínum um borgina því
kettirnir fá ekki jafnmikla umhyggju í öllum bæj-
arhlutum og eru oft svangir og matnum fegnir.
Þeir sem vilja komast í kynni við sjálfboðalið-
ana geta t.d. kíkt á Facebook-hópinn „Cih-
angir … Cool for Cats“ sem er félagsskapur
kattavina í miðbæjarhlutanum. Þeirra bíður ær-
inn starfi og aldrei að vita nema sjálfboðavinna
eða fjárframlög Íslendinga sem eiga leið um
borgina væru vel þegin.
Istanbúl er fögur hvort held-
ur bökuð í sumarsólinni eða
undir hvítu snjóteppi.
Kettir láta fara vel um sig á markaði í Istanbúl, kúrandi í hrúgu innan um glingur og gersemar.
AFP
Ljósmynd / Flickr – Johan Siegers (CC)
EKKI EINTÓMT SÆLDARLÍF
Kattavinir velkomnir