Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 20
pakka ofan í tösku nú þegar og
vera lentur í Tókýó á innan við
sólarhring. Gildi ferðalaga hefur
síður en svo minnkað en þeim
áfangastöðum fjölgað sem fólk
verður að hafa séð ef það á að
geta kallað sig veraldarvana
heimsborgara. Raunar eru
áfangastaðirnir svo margir að
erfitt er að átta sig á hvar á að
byrja, hvað er ómissandi og
hvað má hugsanlega mæta af-
gangi.
Hér á eftir fer stutt og ein-
földuð samantekt á þeim borgum
og undrum sem heimshorna-
flakkararnir ættu að einsetja sér
að heimsækja þó ekki væri
nema einu sinni á lífsleiðinni.
Þ
að að ferðast og sjá
heiminn hefur lengi verið
álitið ein af grunnstoðum
þess að vaxa og þroskast
sem manneskja. „Sá einn veit er
víða ratar, og hefir fjöld um
farið,“ sögðu víkingarnir og
sigldu vítt og breitt um Evrópu.
Á 17. öld þótti það ómissandi
liður í menntun ungra efristétt-
armanna að vitja helstu við-
komustaða í Evrópu í því sem
var kallað „Grand Tour“. Var
stefnan yfirleitt sett á Róm og
á leiðinni drukku ferðalangarnir
í sig menningu álfunnar.
Nú er heimurinn orðinn miklu
stærri og ferðalögin um leið
orðin auðveldari. Væri hægt að
ERTU BÚINN AÐ SJÁ HEIMINN, MEÐ ÖLLUM
SÍNUM UNDRUM, EÐA ERTU RÉTT AÐ BYRJA?
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Jörðin er stór
og margt sem
þarf að skoða
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016
Ferðalög og flakk
Auðveldast er sennilega að byrja
á borgunum sem eru þungamiðjur
efnahags- og menningarlífs sam-
tímans. Þetta eru borgir sem
flestir eiga erindi til, ef ekki vegna
viðskipta eða náms þá vegna þess
að þær eru margar heimili stórra
flugvalla sem tengja ferðalanga á
leið frá Íslandi við aðrar borgir
enn lengra úti í heimi.
New York á sennilega heima
efst á listanum og ekki að
ástæðulausu að borgin er oft köll-
uð höfuðborg heimsins. Sagt er
um Times Square að ef þú viljir
hitta einhvern þurfirðu bara að
bíða nógu lengi á torginu því allir
fari á endanum einhvern tíma um
þetta litríka og ljósum prýdda
torg.
London er í uppáhaldi hjá
mörgum. Orkumikil eins og New
York, full af lífi, leikhúsum og
verslunum, en um leið með langa
sögu. Bresku hefðirnar eru við
hvert fótmál, frá tveggja hæða
strætóum til heiðursvarðarins við
Buckingham-höll.
París þykir með fegurstu borg-
um. Miðstöð tísku og hámenn-
ingar, þar sem lífið er kryddað
með ferðum á kaffihús, góðu víni
og eðalostum. Hér býr Móna Lísa,
Eiffel-turninn gnæfir yfir húsþök-
unum og súpermódelin strunsa
um götur með nefið upp í loft.
Allir vegir liggja til Rómar sem
enn býr að fornri frægð. Hér eru
musterin og hringleikahúsin sem
við lærðum um í sögutímum. Inn-
an borgarmarkanna er svo Vatík-
anið, þungamiðja hinnar kaþólsku
trúar og heimili mikils safns af
ódauðlegum listaverkum og ótrú-
legum dýrgripum.
Beijing er sú heimsborg sem
er lengst frá Reykjavik. Áhrif Beij-
ing eiga bara eftir að aukast og
Forboðna borgin minnir bæjarbúa
á það mikla vald sem var, og mun
aftur safnast saman á þessum reit.
Er heldur ekki langt í Kínamúr-
inn; undur veraldar sem óviðjafn-
anlegt er að sjá með eigin augum.
Vörður vakir yfir Torgi hins himneska friðar. Beijing er borg með merkilega fortíð og forvitnilega framtíð.
Ljósmynd / Wikipedia – Zhang Yu (CC)
Heimsborgirnar
Ljósmynd / Wikipedia – Chensiyuan (CC)
Ljósmynd / Flickr – Moyan Brenn (CC)
Times Square iðar af lífi allan sólarhringinn, allt árið um kring.
Ástarborgin París er háborg tískunnar og rómantísk í meira lagi.