Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Side 26
Afgangar af saltfiskrétti
2 baguette
rifinn ostur
Skerið innan úr brauðinu í eins konar „v“
og takið „v“ úr (um1/3 af brauðinu).
Tætið saltfiskréttinn í ragú. Hitað í 2-3
mínútur í örbylgjunni. Setjið ofan í bagu-
ette-brauðið og stráið ostinum yfir og
hitið í ofni á 180°C í 5 mín. Stillið á grill í
lokin til að brúna ostinn.
Saltfisk-baguette
Afgangar af saltfiskrétti
10 stk kokteil-tómatar
½ gúrka
2 tsk kapers
1 poki blandað salat
¼ sítróna
grænar ólífur
Takið afganga af saltfiskrétt-
inum og tætið gróft og blandið
saman. Skerið tómata og gúrku
og blandið við ásamt kapersi og
ólífum og setjið blönduna út á
salatið. Bleytið með ólífuolíu
og kreistið einn bát af sítrónu
yfir. Sniðugt er að nota aðra
grænmetisafganga sem þið eig-
ið til. Gott með heitu baguette-
brauði.
Spánskt salt-
fisksalat
Matur
og drykkir
Kryddjurtir í matargerð
*Gott er að vita hvenær á að setja kryddjurtirí matinn. Harðgerar kryddjurtir eins og t.d.timían, rósmarín og óreganó eiga að fara íréttinn snemma í elduninni til að þær nái aðgefa hámarks bragð en einnig til að linastundir tönn. Fíngerðari kryddjurtir, eins ogbasil, kóríander, tarragon og steinselja fara
hins vegar síðastar í pottinn. Annars missa
þær sitt ferska bragð og fallega lit.
Þ
egar öllu er á botninn
hvolft þá er lífið þó
umfram alt saltfiskur
en ekki draumaríngl,“
segir Salka Valka hans Hall-
dórs Laxness. Fátt hefur ver-
ið jarðbundnara eða hvers-
dagslegra en saltfiskur í
gamla daga þegar þessu
fleygu orð voru rituð. En
saltfiskurinn hans Óskars er
langt frá því að vera hvers-
dagslegur því þótt hann sé
fljótlegur og auðveldur að
matbúa er þetta hinn besti
veislumatur. Hér fáum við ís-
lenska saltfiskinn með
spænsku yfirbragði, stútfullan
af hráefni sem kitlar bragð-
laukana svo um munar.
Lífið er
saltfiskur!
ÓSKAR FINNSSON SÝNIR NÚ LISTIR
SÍNAR MEÐ SALTFISK OG ÚTBÝR KLASS-
ÍSKAN SPÆNSKAN OFNRÉTT EN LÆRA
MÁ HANDTÖKIN Á MBL.IS Í KORTER Í
KVÖLDMAT. AFGANGANA MÁ SVO
NÝTA Í TVO GÓÐA RÉTTI.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Óskar var ekki lengi að galdra fram
frábæran saltfiskrétt.
Morgunblaðið/Ásdís
700 – 800 g útvatnaður salt-
fiskur – frá Ekta
400 g kartöflur
1 stk paprika
50 g kasjúhnetur
1 stk fennel
ólífuolía
1 stk chili
½ msk engifer, rifið
2 hvítlauksrif, rifin
1 dós niðursoðnir tómatar,
saxaðir
50 – 100 g rúsínur
15 stk ólífur
2 msk parmesan, rifinn
pipar
tabasco (má sleppa)
Sjóðið kartöflur og stillið ofn á
180°C. Þurrsteikið kasjúhneturnar
og setjið þær til hliðar. Saxið
papriku, chili og fennel og steikið á
pönnu í stutta stund.
Bætið við söxuðum lauk, engifer
og hvítlauk á pönnuna. Bætið við
tómötum og ólífum og kryddið með
pipar og smá tabasco. Leyfið sósunni
að malla í smá stund. Bætið við
steiktu hnetunum og rúsínum. Hellið
sósunni í eldfast fat. Raðið fiskflökum
ofan á og rífið parmesan yfir fiskinn.
Bakið í ofni á 180°C í 12-14 mínútur.
Berið fram með soðnu kartöflunum.
Ofnbakaður saltfiskur
ÞESSA RÉTTI ER HÆGT AÐ ÚTBÚA ÚR AFGÖNGUNUM