Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 28
fiskinn. Grillið eða ofnbakið fiskinn í um 8 mínútur eða þar til fiskurinn er passlega eldaður (varist að ofelda hann). Bræðið smjörið á meðan í potti og hrærið síðan sítrónusafa og hveiti sam- an við. Bætið rjómanum smátt og smátt saman við og hrærið þar til sós- an er byrjuð að þykkna en látið hana alls ekki sjóða. Bætið að lokum kapers út í sósuna og hellið yfir fiskinn. Berið fram t.d. með rótargrænmeti, kart- öflumús og litríku salati. Frá Gulur, rauður, grænn og salt: grgs.is. 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016 SÍTRÓNUR FRÁBÆRAR Í MAT OG KÖKUR Sítrónan í aðalhlutverki SÍTRÓNUR ERU STÚTFULLAR AF C-VÍTAMÍNI OG MEINHOLLAR. ÞÆR ERU FRÁBÆRAR Í ALLA MAT- ARGERÐ OG HENTA MJÖG VEL MEÐ LAMBI, KJÚK- LINGI, FISKI OG Í EFTIRRÉTTI OG KÖKUR. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is 1 pakki kjúklingaleggir 1 sítróna, börkur og safi 3-4 msk ólífuolía 3 stilkar ferskt rósmarín, saxað 1 hvítlauksrif, pressað salt og pipar Rífið með fínu rifjárni hýðið af sítrón- unni. Látið í skál ásamt ólífuolíunni, söx- uðu rósmaríni, safa úr sítrónunni og pressuðu hvítlauksrifi. Blandið saman og saltið og piprið. Látið kjúklingalegg- ina í skál eða poka og hellið blöndunni saman við. Nuddið kryddinu vel í kjúk- linginn. Látið í ofnfast mót og eldið við 200°C hita í um 25-30 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir og stökkir. Frá Gulur, rauður, grænn og salt: grgs.is. Kjúklingaleggir með sítrónu og rósmaríni 150 g ósaltað smjör 2 stór egg 2,5 dl hrásykur 1 tsk vanilluextract 1/2 tsk salt 1 sítróna 1,5 dl hveiti eða fínmalað spelt Hitið ofn í 150 gráður með blæstri. Byrjið á að bræða smjörið í potti og leyfið því að kólna aðeins. Rífið börkinn af sítrónunni með fínu rifjárni, athugið að taka einungis gula hlutann af hýðinu. Kreistið safann úr sítrónunni og setjið til hliðar. Þeytið sam- an egg, sykur og vanillu þar til létt og ljós. Minnkið hraðann og bætið salti, sítrónu- skræli og safa út í ásamt smjörinu. Sigtið hveitið út í og blandið varlega saman við með sleikju. Hellið í smurt form, ca. 20 cm í þvermál og bakið í 35 mínútur. Kælið í forminu, setjið á kökudisk, stráið flór- sykri yfir og skreytið t.d með rifsberjum. Frá eldhusperlur.com. Sítrónu „brownie“ kaka Matur og drykkir 100 gr kornax hveiti 1 1/2 tsk lyftiduft 1/8 tsk salt 100 g smjör (mjúkt) 100 g flórsykur 1 egg 2 tsk sítrónusafi eða 2 tsk rifinn sítrónubö Kveikið á ofninum, 180° Þeytið saman smjörið sykurinn þar til það er lé ljóst. Þeytið sítrónusafan sítrónubörkinn og eggið við smjörið. Sigtið þurre saman við og hrærið sam hrærið þó eins lítið og þ ist upp með. Setjið eina til eina og h matskeið af deigi í cupca formin og bakið í 10 – 2 útur eða þar til pinni kem Sítrón sít Fiskréttur með kapers og sítrónurjómasósu Fyrir 4 800-900 g hvítur fiskur (t.d. þorskur eða ýsa) 1 tsk paprikuduft 1 tsk laukduft (onion powder) 1/2 tsk sykur 2 tsk sjávarsalt 2 msk smjör safi úr 2 sítrónum 1 msk hveiti 250 ml rjómi 50 g kapers Blandið paprikudufti, laukdufti, sykri og sjávarsalti saman í skál og stráið yfir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.