Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 31
31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Það getur verið gott fjölskyldusport að púsla en á púslmarkaði
Spilavina gefst tækifæri til að býtta, selja og kaupa notuð púsl
og jafnvel ný. Spilavinir opna kjallarann hjá sér og setja upp
borð fyrir púsluspilasölu laugardaginn 30. janúar milli 13 og 16.
Púslmarkaður í Spilavinum*Oft kemur grátur eftir skellihlátur.
Málsháttur
Ferðafélag barnanna stendur fyrir
stjörnu- og norðurljósagöngu laug-
ardagskvöldið 30. janúar.
„Af hverju eru stjörnur mismun-
andi á litinn og hvers vegna sjást
norðurljósin bara stundum? Sævar
Helgi Bragason, verkefnisstjóri við
Háskóla Íslands og kennari í Há-
skólalestinni, svarar öllum spurn-
ingum um norðurljósin, stjörn-
urnar og vetrarbrautina í
gönguferð sem helguð er him-
ingeimnum,“ segir á vef Ferða-
félags barnanna, ferdafelag-
barnanna.is.
„Þátttakendur safnast saman við
skrifstofu FÍ í Mörkinni 6, kl. 20 á
laugardagskvöldið og aka í hala-
rófu út fyrir borgarmörkin, upp í
Heiðmörk, framhjá Rauðhólum og
að Elliðabænum við Elliðavatn. Þar
leggjum við bílunum (passa að raða
þeim vel svo að allir komist fyrir)
og göngum aðeins meðfram vatn-
inu,“ segir þar ennfremur.
Lögð er áhersla á að allir séu vel
klæddir. „Það má jafnvel stinga
einhverri sessu eða gamalli frauð-
dýnu ofan í bakpokann því auðvitað
er allra best að skoða himingeim-
inn liggjandi á jörðinni og þá er
gott að liggja / sitja á einhverju
sem einangrar rassinn frá jörðinni!
Auk þess að klæða sig afar vel,
mælum við með því að fólk taki
með sér kíki og nesti, sérstaklega
er gott að taka með sér eitthvað
heitt á brúsa, því í kuldanum er
gott að fá heitan drykk í kropp-
inn.“
Gert er ráð fyrir að ferðin taki
um tvær klukkustundir. Ferðin er
hluti af samstarfsverkefni Ferða-
félags Íslands og Háskóla Íslands
sem ber nafnið: Með fróðleik í far-
arnesti.
Þátttaka er ókeypis og allir vel-
komnir. Ekki þarf að panta heldur
aðeins að mæta.
FERÐAFÉLAG
BARNANNA
Norðurljós eru magnað fyrirbæri.
Stjörnu- og
norður-
ljósaganga
Umboðsaðili: Celsus ehf
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Nettó.
Spirulina frá Lifestream er lífrænt fjölvítamín fjöl-
skyldunnar og eykur hjá okkur einbeitingu og orku út
daginn. Okkur finnst það mjög gott hrist í appelsínusafa,
eins bý ég oft til döðlunammi með Spirulina eða Veggies
grænmetisduftinu. Þó við borðum mjög hollt fæði finnum
við mikinn mun með Lifestream vörunum. Við erum ótrúlega
heilbrigð öll og leggjumst ekki í flensur eða kvefpestir.
Laus við
flensur & pestir
Ég get ekki hugsað
mér að vera án
Lifestream Spirulina
sem hefur hjálpað
mér í gegnum allt.
Ásdís Einarsdóttir, verslunarstjóri
hefur notað Lifestream Spirulina
síðan á sinni fyrstu meðgöngu og
brjóstagjöf. Hún velur Lifestream
vörurnar fyrir fjölskyldu sína til
að viðhalda góðri heilsu, orku
og einbeitingu.
100 næringarefni
Leikfangafyrirtækið Lego kynnti í fyrsta
sinn legókall sem er með einhverja fötl-
un. Aðdáendavefsíðan promobricks.de
birti mynd af legóstráki í hjólastól.
Myndin var tekin á leikfangasýningu í
Nürnberg. Kallinn verður hluti af nýjum
kassa í Lego City-línunni sem inniheldur
margar fígúrur og annað tengt skemmti-
ferð í garðinn eins og leiktæki og íssala.
Talið er að Lego hafi með þessu
brugðist við herferðinni #ToyLikeMe
þar sem skorað var á leikfangaframleið-
endur að hafa fötluð börn með í vörulín-
um sínum.
MEIRI FJÖLBREYTILEIKI
Legóstrákur í hjólastól
Strákurinn
verður í Lego
City-pakka.