Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Qupperneq 35
31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
K
affifélagi smáhestsins var örlítið bugaður í vikunni. Hann hafði
gert þau hræðilegu mistök að stíga á vigt rétt fyrir áramótin,
sem allir með meðal IQ vita að er glórulaust rugl. Hann komst
sem sagt að því að hann var við það að komast í þriggja stafa
tölu. Það er auðvitað ekkert að því að vera 100 kg en þessi félagi minn
var ekki á því að þetta væri að klæða hann nægilega vel. Með sinn
slánalega vöxt höfðu kílóin einhvern veginn safnast um hann miðjan og
þar sem hann var að verða eins og myndarlegt Þ í laginu ákvað hann að
grípa í taumana (svona áður en hann hætti að geta horft með eigin aug-
un á eitt mikilvægasta líffæri líkamans).
Í stað þess að fara í hefðbundið janúar-átak
eins og svo margir, mæta oftar í ræktina og borða
minna, ákvað hann að taka allt annan snúning á
þynninguna. Hann hætti að drekka vín, skipti
kjöti út fyrir grænmeti , henti öllum sykri út úr
mataræðinu og kvartaði svo sáran yfir því hvað
lífið væri ægilega leiðinlegt. Mæðulega sagði
hann smáhestinum frá því að hann gæti bara ekki
beðið eftir 1. febrúar. Þá myndi lífið hefjast á ný
með kjötáti og hóflegri rauðvínsdrykkju. Hann
var meira að segja að hugsa um að
flýta komu fyrsta febrúar um tvo
daga og byrja bara í sínum eðli-
lega lífsstíl nú um helgina. Það
kæmi smáhestinum því ekki á
óvart ef hann hefði sést á Ölstof-
unni í gærkvöldi …
Þetta tal um áfengi og áfeng-
isleysi minnti smáhestinn á eina
mestu fyllibyttu samtímans, hina
stórkostlegu Sue Ellen. (Svona svo
það valdi ekki misskilningi þá á kaffifélaginn ekki við
áfengisvandamál að stríða.) Sue Ellen passaði sig
hinsvegar vel á því að drekka helst ekki neitt nema
hreinan vínanda og hún gætti þess vel að dreifa
drykkjunni vel yfir daginn. Það ku nefnilega vera
hollara að drekka á morgnana en á kvöldin því heilsu-
farslega séð er afar óheppilegt að taka inn allt þetta
hitaeiningamagn rétt fyrir svefninn, þar að segja ef
drukkið er um kvöld. Skást væri að drekka á morgn-
ana eða í hádeginu. Þá hefði líkaminn allan daginn til
að vinna úr áfenginu.
Og af hverju er smáhesturinn að tala um Sue Ellen
núna? Jú, vegna þess að vortískan er svo ferlega mik-
ið í anda hennar. Í klæðaburði Sue Ellen var
áherslan yfirleitt á mittislínuna, sem gerir ein-
hvern veginn alltaf örlítið meira fyrir kvenpening-
inn. Eftir tryllt 90‘s áhrif í tískunni kemur þessi
„seventís-Sue-Ellen-tryllingur“ eins og himna-
sending fyrir þær sem vilja vera kvenlegar. Það
klæðir yfirleitt mun betur að girða efri part ofan í neðri part í stað þess
að hafa allt vítt og flaksandi.
Sue Ellen var mikið í síðbuxum sem náðu upp í mittið, sem var alveg
með ráðum gert. Um leið og buxur ná alveg upp í mittið virðumst við
hærri og spengilegri.
Ein af lykilflíkum vorsins hjá Lindex er gyðjublússa með púff-
ermum. Þær sem vilja bæta smá Sue Ellen í líf sitt ættu að skoða þenn-
an möguleika. Við gyðjublússuna má líka vera í pilsi sem nær upp í
mitti og stýrir hæð og vöxtur því í hvaða sídd pilsið er. Þær sem eru í
sömu sporum og kaffifélagi minn var á milli jóla og nýárs verða líka að
muna að það klæðir af okkur að girða ofan í og sýna kvenlegar línur.
Það er nefnilega alveg dottið úr tísku að fela sig inni í allt of stórum föt-
um … martamaria@mbl.is
Gyðjublússa úr Lindex.
Sue Ellen bjarg-
ar málunum
Sue Ellen í gallabuxum
og púffermaskyrtu.
Pils og skyrta frá
hinu ítalska tísku-
húsi GUCCI. Þetta
dress fæst á net-a-
porter.com.
Sue Ellen var alltaf með vel blásið
hár (líka þegar hún var full) og svo
var hún alltaf með flotta skartgripi.
Morgunblaðið
gefur út sérblað
föstudaginn
12. febrúar um
Tísku &
förðun
Fjallað verður um
tískuna vorið 2016 í
förðun, snyrtingu,
útliti og fatnaði
auk umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
til kl. 16 mánudaginn 8. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is