Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Side 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Side 37
V erslunarkeðjan Zara er þekkt fyrir að herma eftir hönnun stóru tískuhúsanna og framleiða undir eigin nafni. Það kom Fionu Crib- ben, írskum fatahönnuði sem búsett hefur verið hérlendis í áraraðir, heldur betur í opna skjöldu að Zara væri að herma eftir skartgripalínu hennar. „Ég hef rætt þetta við vini mína sem þekkja vel til í þessum geira. Það er víst vaninn hjá Zöru að herma eftir hönnun, og líka hjá sjálfstæðum hönnuðum sem eru með eigin fyrirtæki. Þá bíða þau í tvö ár áður en þau setja varning á markað sem er þá eftirherma litlu hönnunarhúsanna en fjóra til sex mánuði með stóru tísku- húsin,“ útskýrir Fiona en lína hennar er fjögurra ára. Lín- an samanstendur af skart- gripum unnum úr hval- tönnum. Fiona segir það óalgengt að sjá skartgripi úr hvaltönnum og þannig hljóti að vera að Zara hafi fengið hugmyndina að armböndunum frá henni. Nýir hönnuðir eru yfirleitt frekar frjáls- ari í hönnun sinni og þykir hönnun þeirra því oft- ast of nýstárleg fyrir kúnnana. En Zara leitar þá uppi og bíður í um tvö ár með að selja eftirlíkinguna. Fiona segir þó ekki óalgengt að stór tískuhús líki eftir hönnun annarra. „Þegar ég vann sem hönnuður hjá Victoria’s Secret voru þau með gríð- arlegt safn af flíkum eftir aðra hönnuði sem þau hermdu eftir og sendu í framleiðslu. Eftirlíkingar eru bara hluti af því að vinna fyrir stærstu merk- in.“ Fyrrverandi nemandi Fionu úr Listaháskólanum sendi henni mynd af armböndum sem hún rakst á í Zöru í Kaupmannahöfn sem voru gríðarlega lík hönnun Fionu og segir hún það hafa verið áfall. „Annars vegar er ég frekar upp með mér að Zöru lítist vel á hönnun mína en hinsvegar er keðjan væntanlega að stórgræða á þessu og það væri gott að fá einhverja prósentu af því. Ef þeir ynnu þannig að þeir hefðu samband við hönnuði og byðu þeim hluta af gróðanum gegn því að selja útgáfu af hönnun þeirra, myndi það gera þetta miklu heiðarlegra,“ útskýrir Fiona. Fiona segist hafa talað við lögfræðing á Íslandi sem sagði að það væri auðvitað hægt að kæra tískukeðjuna en það eru ýmis ákvæði sem gera það að verkum að það er ólíklegt að Fiona myndi vinna málið. „Ég er ekki búin að fá einkaleyfi fyrir hönn- uninni til að mynda. Zara hefur einnig útfært þetta ólíkt hönnun minni á fimm vegu sem gerir það að verkum að þeir kæmust sennilega upp með þetta.“ Aðspurð segist Fiona hafa lent í þessu áður en fyrir tveimur árum hermdi COS-verslunarkeðjan í eigu H&M eftir eyrnalokkum frá henni. „Vörurnar mínar eru unnar úr ekta gulli, en Zara fjöldaframleiðir armböndin úr ódýrum efn- um sem eiga varla eftir að endast lengi.“ Ef vörurnar eru á Bandaríkjamarkaði mun Fiona þó kæra keðjuna. Hún mun þá hafa samband við bandarískt fyrirtæki sem hjálpar fólki í þessum að- stæðum ef því finnst tilefni til og tekur síðan helm- ing af gróðanum sem vinnst fyrir málið. ELIE SAAB Indland var innblástur hátískulínu Elie Saab fyrir sumarið 2016. Fallegur út- saumur og textíll einkenndu línuna sem var í náttúrulegum og mildum litum. Kögur og spennandi fylgihlutir gerðu jafnframt mikið fyrir heildarsvipinn. 31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 ERFITT AÐ KÆRA HÖNNUNARSTULD Zara hermir eftir hönnun Fionu Cribben FATAHÖNNUÐURINN FIONA CRIBBEN FÉKK ÞÁ ÓSKEMMTILEGU VITNESKJU Í VIKUNNI AÐ SPÆNSKA VERSLUNARKEÐJAN ZARA VÆRI AÐ HERMA EFTIR HÖNNUN HENNAR. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Ljósmynd/Fiona Cribben Fiona Cribben komst að því að Zara væri að herma eftir fjögurra ára gamalli hönnun hennar. Hringar Fionu Cribben eru úr 14-18 karata gulli og ekta hvaltönn. DIOR Það var teymi af ungu fólki sem hneigði sig eftir hátískulínu Dior að þessu sinni þar sem tískuhúsið er í svolitlu millibils- ástandi eftir að yfirhönn- uður þess, Raf Simons sagði skil- ið við það. Teymið hélt í gamlar hefðir hússins sem voru helst áberandi í sniðum og formum fatn- aðarins. Þó vantaði eitthvað í lín- una, hún var auðvitað afskaplega fögur en aðeins of hefðbundin. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.