Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 40
Viðtal 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.1. 2016 Þ að er létt yfir Gunnari Braga Sveinssyni þegar fundum okkar ber saman á skrifstofu utanrík- isráðherra á þessum fallega en snjóþunga vetrarmorgni. Hann spyr frétta af landsbyggðinni, það er að segja Hádegismóum, og bros færist yfir and- litið. Komandi frá honum er það þó án efa hrós blaðinu til handa enda er Gunnar Bragi fæddur og uppalinn á Sauðárkróki og þing- maður Norðvesturkjördæmis. En af landsbyggðinni og út í heim. Þátt- taka Íslands í refsiaðgerðum gegn Rússlandi hefur verið umdeild og beinast liggur við að spyrja ráðherrann fyrst út í það mál. Hvers vegna var nauðsynlegt að taka þátt í þeim aðgerðum? Er þetta ekki bara symbólískt af hálfu Íslands? „Það má vel vera að þessar aðgerðir séu symbólískar en það þýðir ekki að þær skipti ekki máli,“ svarar Gunnar Bragi. „Ef við er- um sammála því að þarna hafi alþjóðalög og -samningar verið brotnir skiptir það auðvitað verulegu máli; ekki síst fyrir litla þjóð eins og Ísland. Það skiptir litlar þjóðir yfirleitt meira máli en stórþjóðir að alþjóðasamn- ingar séu virtir. Við eigum fullveldi okkar undir því. Við erum líka hluti af bandalagi vestrænna ríkja og deilum með þeim ákveðnum grunngildum og það væri mjög undarlegt að Ísland, sem verið hefur fram- arlega í flokki við að viðurkenna sjálfstæði ríkja, eins og til dæmis Eystrasaltsríkjanna og Palestínu, mótmælti ekki þegar landa- mæri eru ekki virt og jafnvel verið að ógna fullveldi ríkja. Á þessu byggist þessi ákvörð- un. Okkar leið til að taka þátt í þessum þving- unum liggur gegnum löggjöf frá 2008 sem gerir okkur kleift að taka undir þvinganir al- þjóðastofnana og ríkjabandalaga. Í EES- samningnum er gert ráð fyrir að við getum tekið undir svona þvinganir. Það er líka ágætt að hafa í huga að það voru Banda- ríkjamenn sem lögðu af stað með þvinganir gegn Rússum en Evrópusambandið kom í kjölfarið. Það eru fjörutíu ríki sem taka þátt í þessum þvingunum í dag.“ Skynjaði ákall fólksins – Spilaði heimsókn þín til Úkraínu á sínum tíma á einhvern hátt inn í þessa ákvörðun? Breytti það einhverju að hafa kynnst and- rúmsloftinu og hitt fólkið? „Nei, það hafði ekki áhrif á ákvörðunina sem slíka. Vissulega skynjaði ég mjög sterkt ákall fólksins og þörf fyrir lýðræði og um- bætur í landinu, alveg eins og fulltrúar margra annarra þjóða sem komið hafa til Úkraínu til að kynna sér ástandið og styðja við slíkar hugmyndir. Seinast þegar ég kom til Úkraínu heimsótti ég borg sem heitir Dnipropetrovsk og þar skynjaði ég mjög sterkt óttann og þörfina fyrir að standa með þessari þjóð gegn innrás Rússa. Auðvitað hafði það áhrif á mann að sjá flóttamennina með eigin augum en ákvörðunin um að taka þátt í þessum þvingunum er eigi að síður al- farið tekin með hagsmuni Íslands að leið- arljósi. Mínar tilfinningar koma því máli ekkert við.“ – Ertu bjartsýnn á að þvingununum verði aflétt í sumar, eins og menn eru farnir að gera sér vonir um? „Við skulum segja að ég sé hóflega bjart- sýnn. Það sem þarf að gerast er að Úkra- ínumenn og Rússar, sem eru aðilar að Minsk-samkomulaginu, virði samkomulagið eða í það minnsta byrji að uppfylla það. Það eru vissulega vonir um að það geti orðið en gleymum því samt ekki að þær vonir hafa komið upp áður. Vonandi getum við byrjað að aflétta þessum þvingunum í sumar. Að því hljótum við að stefna; það vill enginn hafa svona þvinganir til langframa.“ Hefur verið óþægilegt – Hvað gerist þá? Það er ekki sjálfgefið að Rússar aflétti sínum viðskiptaþvingunum gagnvart Íslandi strax í kjölfarið. „Alls ekki. Þvinganir Rússa eru þeirra ákvörðun og svar við þessum refsiaðgerðum. Þeir sérsníða þær aðgerðir að hverju landi fyrir sig. Ekki gildir sama um Ísland og Þýskaland. Vonandi bregðast þeir þó við sem fyrst með jákvæðum hætti.“ – Málið er augljóslega umdeilt enda miklir viðskiptahagsmunir í húfi hér heima. Hef- urðu orðið fyrir þrýstingi af þeim sökum? „Það er alveg ljóst að miklir hagsmunir eru í húfi. Hagsmunir Íslands eru hins vegar mun stærri en þessir tilteknu viðskiptahags- munir. Og já, ég hef orðið fyrir miklum þrýstingi vegna þessa máls. Það er engin spurning.“ – Hefur það verið erfitt? „Það hefur verið óþægilegt. Og jú, erfitt líka. Maður vill helst ekki standa í deilum, hvort sem það er við félaga sína eða aðra. Ég hef hins vegar alltaf verið sannfærður um að þetta sé það eina rétta fyrir Ísland og fyrir vikið hefur ekki komið til álita að breyta þessari ákvörðun. Hún stendur. Það er líka mikilvægt að hafa í huga að málið var í upphafi samþykkt í ríkisstjórn. Þetta var ekki bara ákvörðun utanríkisráðherra. Við- brögðin hafa heldur alls ekki eingöngu verið neikvæð. Ég hef líka fundið fyrir miklum stuðningi vegna þessa máls. Bæði frá mínum félögum í pólitík og líka heima í héraði.“ Ekki ganga fram af brúninni – Hvaðan hefur þrýstingurinn verið mestur? Á Alþingi, frá atvinnulífinu eða heima í hér- aði? „Það er augljóst að þrýstingurinn frá út- gerðinni og útflutningsaðilum hefur verið mestur. Í því sambandi ætla ég hins vegar alls ekki að setja alla undir sama hatt. Þetta er gríðarlega stór og fjölbreyttur hópur og margir innan hans hafa lýst yfir stuðningi við þessar aðgerðir. Nokkur hópur hefur hins vegar verið ósáttur enda hefur hann mögulega meiri hagsmuna að gæta en aðrir. Ég virði alveg slík sjónarmið en menn verða samt að gæta að sér. Ganga ekki fram af brúninni.“ – Hafa menn gert það? „Já, mér hefur fundist það. Þó að miklir sérhagsmunir séu í húfi verða menn að gæta að því að skaða ekki orðspor lands og þjóð- ar. Það getur tekið langan tíma að vinna tapað traust til baka.“ – Þá að Evrópumálum. Líturðu svo á að rétt hafi verið staðið að því að draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka? Margir, ekki síst andstæðingar að- ildar, líta svo á að málinu sé ekki lokið. „Málinu er lokið. Það er alveg ljóst. Sá litli hópur sem er ósáttur við hvernig að málinu var staðið var fyrst og fremst ósáttur við að þingið hefði ekki verið látið taka af- stöðu. Það er hins vegar alveg ljóst að rík- isstjórnin er ekki bundin af þingsályktun Al- þingis frá árinu 2009 og fyrir vikið er hún fallin um sjálfa sig. Vert er að hafa í huga að þegar Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson sendu bréfið á sínum tíma var hvergi minnst á þátt Alþingis í málinu. Það var bara síðasta ríkisstjórn sem sótti um aðild að Evrópusambandinu. Að sama skapi getur núverandi ríkisstjórn hætt við að sækja um. Og það höfum við gert. Það var alltaf ljóst að málið yrði tekið í gíslingu í þinginu af stjórnarandstöðunni og þess vegna hafði það engan tilgang að fara með það þangað inn.“ Engum mun detta í hug að spyrja ekki þjóðina – En mátti ekki spyrja þjóðina? „Ég svara því alltaf þannig, að þjóðin hafi ekki verið spurð í upphafi. Lærdómurinn af þessari aðildarumsókn er hins vegar sá að vilji menn einhvern tíma sækja aftur um að- ild að Evrópusambandinu – sem ég vona að sjálfsögðu að gerist aldrei – þá held ég að engum muni detta í hug að spyrja ekki þjóð- ina áður en lagt verður af stað í þá vegferð. Nú er þessum kafla í okkar lífi hins vegar lokið og með tímanum fennir yfir þá vinnu sem lagt var í. Evrópusambandið sjálft er á miklu breytingaskeiði og fráleitt að láta sér detta í hug að sækja um aðild á næstu tutt- ugu árum. Þess utan er auðvitað ljóst að Evrópusambandið mun ekki gleypa við um- sókn frá Íslandi aftur nema að kanna vand- lega áður hvernig að henni var staðið.“ – Schengen-samstarfið er í uppnámi. Hyggst Ísland draga sig út úr Schengen og hvað myndi það þýða? „Það hefur ekki verið rætt að draga okkur út úr Schengen enda þótt ég þykist vita að allskyns skoðanir eru á því máli og ein- hverjar hugmyndir um að við ættum að gera það. Það er hins vegar alveg ljóst að þetta fyrirkomulag virkar ekki í dag. Við því er tvennt að gera. Annars vegar að laga það þannig að það virki eða að búa til minna Schengen-svæði. Að mínu áliti er það ekkert sérstakur kostur að búa til minna svæði en samt er ekki hægt að útiloka það. Innanrík- Sköðum ekki orðspor lands og þjóðar! GUNNAR BRAGI SVEINSSON SEGIR ÁKVÖRÐUNINA UM AÐ TAKA ÞÁTT Í REFSIAÐGERÐUM GEGN RÚSSUM VEGNA HERNAÐARBRÖLTS ÞEIRRA Í ÚKRAÍNU BYGGJAST Á LANGTÍMA HAGSMUNUM ÍSLANDS EN EKKI TILFINNINGUM. HANN ER LÍKA ÞEIRRAR SKOÐUNAR AÐ MÖRG MISTÖK HAFI VERIÐ GERÐ Í MÁLEFNUM FLÓTTAMANNA OG EVRÓPUSAMBANDIÐ SÉ VANBÚIÐ TIL AÐ LEYSA VANDA AF ÞESSU TAGI. RÁÐHERRA GAGNRÝNIR ÖRYGGISRÁÐ SÞ VEGNA STRÍÐSINS Í SÝRLANDI OG TELUR ÓLÍKLEGT AÐ DONALD TRUMP VERÐI KJÖRINN NÆSTI FORSETI BANDARÍKJANNA. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.