Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Blaðsíða 45
Eitt vinsælasta íslenska orðið á Twitter, sem ekki er skrifað af íslenskumælandi, er hið klass- íska Vaðlaheiðarvegavinnuverkfærageymsluskúraútidyralyklakippuhringur. Að sjálfsögðu er það atkvæðafjöldinn, sem og í fjölda annarra orða, sem vekur athygli. Þá vinna margir íslenskir tónlistarmenn gott starf í að vekja athygli á tungumálinu og þá sérstaklega Sigur Rós sem vinsælt er að vitna til. Á Twitter vita ótrúlega margir hvað nafn eins vinsælasta lags hljómsveitarinnar, Hoppaípolla, þýðir. Almennt eru líflegar umræður á Twitter um ís- lenskt mál og gaman að fylgjast með. „Íslendingar eru helteknir af hreinleika tungumálsins, þeir vilja engin erlend orð, nema algebru, hún má vera með.“ Ems Simpson, Bretlandi. „Mig langar að læra að tala íslensku því öll orðin í tungumálinu er eins og einhver hafi skellt allri hendinni á lyklaborðið.“ Emily Hardinger, Oregon. „Íslenska, eina tungumálið í heim- inum sem hljómar eins og Íslendingar séu bara að skálda orðin upp jafnóðum og þeir segja frá.“ Zair Rihaz, Pakistan. „Er að reyna að vera kurteis þegar ég tala íslensku en þá man ég að þeir eiga ekkert orð yfir „please“.“ Josefina, Bretlandi. „Þegar fólk skrifar nöfnin á þess- um íslensku eldfjöllum, held ég alltaf að það sé léleg tilraun til að skrifa fyndið orð.“ Bradley R, Bandaríkjunum. „Þjóðverjar eru þekktir fyrir fá- ránlega löng orð, en ég held að Ís- land gæti keppt við þá – Rjóma- súkkulaðihúðaðar rúsínur.“ Andrew, Bandaríkjunum. Ýmislegt Árið 2011 fór fyrirbærið „jólabókaflóðið“ að vekja mikla athygli á Twitter þar sem fólk hvaðanæva úr heiminum tísti um að Íslendingar ættu sérstakt orð yfir metsölu í bóka- geiranum fyrir jólin. Enn í dag er jólabókaflóðið, fyrirbærið og orðið sjálft, í miklu uppá- haldi á samfélagsmiðlinum og sérstaklega í kringum hver jól þar sem mörg hundruð er- lendar færslur birtast. „Hvað er betra en flóð af bókum? Ekkert, ég er að segja ykkur það. EKKERT.“ Monique Mata, Bandaríkjunum. „En frábær hugmynd. Ég held að við verðum að koma þessu á lagg- irnar í Ameríku þegar í stað. Gleðilegt jólabókaflóð!“ Heather Maclean, Michigan. „Það gleður mig að það hvernig ég hef fagnað jóla- dagskvöldi í meira en þrjá- tíu ár á sér raunverulega nafn; Gleðilegt jólabóka- flóð!“ Mental multivitamin, Chicago. „Jólabókaflóð hljómar svalt. Gætum átt von á minniháttar flóði hér.“ Peter Houghton, Bretlandi. „Í miðju jólabókaflóði, fann ég út að íslenska orðið fyrir sextán er „sex town“ (kynlífsbær). Eimitt það, alheimur.“ Michaela Peringer, Seattle. „Við verðum að koma þessu jólabókaflóði, „christmas book flood“, til Taívan. Reyndar gæti allur heimurinn bætt við sig fleiri bókum, ekki satt.“ Elias, Taívan. „Gleymið þessum 50 orðum yfir snjó. Það er sér- stakt orð á íslenku yfir jóla-bóka- flóð.“ Jeannie Lin, Kína. Jólabókaflóðið Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Ásdís Íslenskan er auðug að orðum sem lýsa snjó, margvíslegum gerðum hans, hvernig hann fellur til jarðar og jafnvel liggur á jörðu. Víðast hvar erlendis, nema hjá þjóðum eins og Inúítum, eru orðin ekki svo fjölbreytileg. Öll þessi orð yfir snjó, að ógleymdu veðrinu hérlendis almennt, eru vinsælt umræðuefni á Twitter, þá sérstaklega orðið hundslappadrífa. En sömuleiðis má benda á að margir telja Íslendinga skorta fleiri nöfn yfir rigningu. „Íslenska orðið yfir blautan snjó er drasl (krap). Það er mjög viðeigandi.“ River Homewood, Bandaríkin. „Borið fram nákvæmlega eins og enska orðið yfir gaman (fun). Fönn þýðir fullt af snjó.“ Ariel Balske, Ohio. „46 orð yfir snjó. Mjöll, nýfallinn. Bleytuslag, djúpur og krapakenndur. Uppáhaldið mitt er hundslappadrífa, snjóspor jafnstór og hundsloppur.“ Beth Ellyn McClendon, California. „Hundslappadrífa hljómar svolítið skítugt.“ Drave vas Veshkriset, Oregon. „Reykvískar veðurfréttir; algjör helli- demba. Eskimóar eiga fullt af orðum yfir snjó. Íslendingar ættu að eiga að minnsta kosti 20 orð yfir „blautt“ og „kalt“. Vicki Lank, Bretland. „Sá svolítið af norðurljósum í gær. Núna rignir – og það eru aðeins þrjú orð á íslensku yfir regn meðan þau eru um 60 yfir snjó.“ David Isgrove, Bretland. „Íslenskan á hundrað orð yfir snjó, en maður þarf að segja þau öll samtímis.“ Liana Maeby, Los Angeles. Og öll þessi orð yfir snjó „Þetta fékk mig til að hlæja í dag. Handleggur á ís- lensku þýðir bókstaflega; hand-fótur.“ Kirsten de Keyser, Bretland. „Fyrsta orðið í íslensku sem hljómar rökrétt. Höndin þín er „handleggur“. Fótleggur með hönd.“ Alice Kingsley, Ástralía, búsett á Íslandi. „Það lítur út fyrir að Íslendingar hafi hugsað með sér: „Hmm, þetta er eins og fótleggur nema með hönd á endanum. Handleggur dugar.““ Sam Yo, Bandaríkin. „Hafið þið heyrt hvað íslenska orðið hand- leggur þýðir? Mér finnst þetta spreng- hlægilegt.“ Michelle Blanchard, Kanada. Handleggur Á Twitter er vinsælt að tísta um einstaka líkamsparta og hvernig þeir hljóma á hin- um ýmsu tungumálum og yfirleitt þykir það nú fyndnast ef það tengist rassi og kyn- færum og það sama á við um íslensk orð, til dæmis orðið píka sem netverjum þykir afar fyndið hvað þýðir í ljósi þess að ein þekktasta teiknimyndapersóna heims, Pi- cachu, þeytist um allt og segir „Pika Pika“. Það sama á þó ekki við um annan líkamspart sem einnig hefur vakið athygli á net- inu, meðal annars á Twitter, fyrir hvað hann heitir. Það er handleggur. Orðið þykir sérstaklega rökrétt, og þó, ekki allir eru sammála. 31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 Mjöll, nýsnævi, hjarn, skari, ísskel, brota, fastalæsing, kafsnjór, kafald, kafaldi, ka- faldshjastur, bleytuslag, krap, blotasnjór, él, moldél, kalsasnæðingur, snjóbörlingur, hundslappadrífa, skæðadrífa, logndrífa, kafaldsmyglingur, hjaldur, lognkafald, ryk, kaskahríð, hríð, lenjuhríð, blotahríð, of- ankoma, fukt, bylur, skafrenningur, neð- anbylur, skafald, snjófok, snjódrif, kóf, fjúk, snjódríf, drift, fjúkburður, fýlingur, sviðr- ingsbylur, slydda, bleytukafaldur, kless- ingur, slyttingur. NOKKUR ÍSLENSK ORÐ YFIR SNJÓ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.