Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Blaðsíða 51
31.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Nanna Rögnvaldardóttir hefur sent frá sér enn eina bókina um mat; hana kallar höfund- urinn Létt og litríkt. Þar fjallar Nanna um hversdagsmat og leggur áherslu á holla næringu. „Ég hef lést um rúm tuttugu kíló síðan ég hætti alveg að borða sykur fyrir rúmu ári og er óneitanlega liprari og léttari fyrir vikið,“ segir Nanna í for- mála bókarinnar. Nanna segir fleira breytt en að sykurinn sé horfinn úr mat- argerðinni því hún sé jafnframt meðvitaðri um hvað hún borði og hve mikið. Og hún ver meiri tíma til að njóta matarins en áður. Hún bendir á að með því að gefa sér góðan tíma til að borða „nýtur maður ekki bara bragðsins af matnum bet- ur, það er jafnframt líklegt að maður borði minna“. Fjöldi uppskrifta er í bók- inni. Létt og litríkt frá Nönnu Helgi Hallgrímsson, náttúrufræðingur af Fljótsdalshéraði, hefur skilað til útgáfu handriti að bók sem hefur einmitt vinnuheitið „Fljótsdæla“ og kemur að öllum líkindum út í haust á vegum Skruddu. Þar er mikið rit á ferðinni eins og vænta mátti. Helgi hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2011 í flokki fræðirita fyrir Sveppabókina og áður hafði hann fengið verðlaun Hagþenkis fyrir bók sína um Lagarfljót. Báðar voru miklar að vöxtum og verður Fljóts- dæla í sama broti og Lagarfljótsbókin, líklega á sjötta hundrað blaðsíðna. Helgi hefur unnið að bókinni í nokkur ár og fjallar um nánast allt milli himins og jarðar. „Bókin er að meginstofni um jarðir og ábúendur á þeim, frá því um 1800, og sumar svolítið lengra aftur. Svo eru sérstakir kaflar meðal annars um náttúruna, um söguna frá upphafi, um skólamál, skáld, rithöfunda og aðra listamenn – nóg er af þeim – og svo er að sjálfsögðu virkjanakafli í bókinni,“ sagði Helgi í sam- tali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. Helgi er frá Droplaugarstöðum í Fljótsdal. „Það er ysti bærinn að norðanverðu, við Hrafn- gerðisána.“ Þar eru hreppamörk; áin skilur Fell og Fljótsdal. Helgi nam líffræði með grasa- fræði sem aðalgrein í Þýskalandi á sjötta áratugnum og fram á þann sjöunda, kenndi við Eiða- skóla og Menntaskólann á Akureyri og var um árabil forstöðumaður við Náttúrugripasafnið á Akureyri. Hann hefur fengist við margskonar rannsóknir á náttúru Íslands. Fljótsdalshreppur kostar útgáfu bókarinnar að miklu leyti, að sögn Helga. „Það liggur í hlut- arins eðli, annars hefði bókin aldrei komið út,“ segir hann. skapti@mbl.is FLJÓTSDÆLA HELGA VÆNTANLEG Horft yfir að bænum Glúmsstöðum II í Norðurdal, einum innst bæ í byggð í Fljótsdal. Helgi Hallgrímsson Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fjöldi hagyrðinga hefur í nærri aldarfjórðung skipst á kveð- skap sér til ánægju á vefnum og kalla póstlistann Leir. Sýn- ishorn af því sem þar hefur birst er nú komið út á bók. Á síðum Leirs, en svo nefnist bókin, eru „eingöngu vísur eða ljóð í léttum dúr eða það sem kalla má skemmtivísur,“ segir Davíð Hjálmar Haraldsson m.a. í formála en hann og Björn Ingólfsson tóku saman efnið sem birt er. Hjálmar Freysteinsson orti þegar strangfriðaðir fuglar á borð við fálka fundust í frysti- kistu: Húsvíkingar harla drjúga hafa tekjuvon í því að iðulega fálkar fljúga frystikistur þeirra í. Davíð Hjálmar segir að Leir- limir yrki gjarnan góðlátlegt grín hver um annan eða sjálfa sig, „þó getur kastast í kekki en rætni og dónaskapur eru fátíð. Stjórnmál og stjórnmálamenn og dægurmál almennt eru dag- legt yrkisefni. Klám sést varla en tvíræðar vísur eru algengar og er reyndar ort um allt milli himins og jarðar, jafnvel trúmál enda prestar á leir.“ Áðurnefndur Hjálmar, lækn- ir á Akureyri, velti fyrir sér hvort farsímanotkun væri hættuleg: Einn því fylgir ókostur að eiga símann hættan á að hringt sé í mann. Leirburður í aldarfjórðung Andleg fæða og líkamleg BLAND Í POKA LESTRARHESTAR OG AÐRIR ÍSLENDINGAR ERU NÝBÚNIR AÐ SPORÐRENNA SÍÐASTA BITA AF JÓLAMATNUM OG ÞORRINN ÞEGAR GENGINN Í GARÐ MEÐ ÖLLUM SÍNUM SÚR. MATGÆÐING- URINN NANNA RÖGNVALDARDÓTTIR ER HINS VEGAR Á MUN LÉTTARI NÓTUM Í NÝJUSTU MAT- ARBÓK SINNI OG FLEIRA GÓÐGÆTI ER AÐ FINNA ÞEGAR FARIÐ ER YFIR BUNKA ÞEIRRA BÓKA SEM KOMIÐ HAFA ÚT UPP Á SÍÐKASTIÐ. Heimsbyggðin gekk í barn- dóm nýverið að því leyti að fjöldinn dró fram litabækur fyrir fullorðna og liti. Hópur sem kallar sig Gunnarsbörn hefur nú sent frá er Íslensku litabókina þar sem tækifæri gefst til að lita myndir úr ís- lensku landslagi og um- hverfi. Bókin er prentuð á góðan pappír og nota má hvort sem er túss, vatnsliti, pastelliti eða tréliti. Litabók eftir hóp listamanna Æviminningar tónlistarkonunnar og rithöfundarins – og „Íslandsvin- arins“ – Patti Smith þykja með bestu bókum nýliðins árs að mati eins þriggja gagnrýnanda New York Times og gagnrýnandi breska ríkisútvarpsins, BBC, valdi hana eina af tíu bestu bókum ársins. Í bókinni, M Train, fer Smith með lesandann í ferð og kemur við á 18 stöðvum sem veitt hafa henni innblástur. Gagnrýnandinn, Mic- hiko Kakutani, segir bókina fallegan minjagrip um fortíðina. Smith segir m.a. frá ferð til Reykjavíkur þar sem hún nær fundi skáksnill- ingsins Bobbys Fischers sem þá var búsettur í borginni. Hann var ekki allra og eftir reiðilestur Fischers stendur Smith á fætur og segir: Ég get talað á jafn ógeðfelldan hátt og þú, bara um aðra hluti. Á endanum sættust þau skv. frásögn hennar og vörðu nokkrum klukkustundum saman við að syngja saman lög eftir Buddy Holly og fleiri, „lífverði Fischers til mik- illar furðu,“ eins og segir í New York Times. Patti Smith hlaut bandarísku bókmenntaverðlaunin National Book Award árið 2010 fyrir minn- ingabókina Just Kids, Bara börn. Dúettinn Patti Smith og Bobby Fischer í Reykjavík! BÓKSALA 20.-26. JAN. Allar bækur Listinn er tekinn saman af Eymundsson. 1 Stríðsárin 1938-1945Páll Baldvin Baldvinsson 2 DauðaslóðinSara Blædel 3 Þýska húsiðArnaldur Indriðason 4 Mamma klikk!Gunnar Helgason 5 Stóri skjálftiAuður Jónsdóttir 6 SogiðYrsa Sigurðardóttir 7 Fram hjáJill Alexander Essbaum 8 Fávís mærIda Simons 9 Konan í blokkinniJónína Leósdóttir 10 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson Barnabækur 1 Mamma klikk!Gunnar Helgasonl 2 Þín eigin goðsagaÆvar Þór Benediktsson 3 DúkkaGerður Kristný 4 Skósveinarnir - leitið og finniðTrey King 5 HótelráðgátanMartin Widmark 6 Staðreyndabók SveppaSverrir Þór Sverrisson 7 Vísindabók Villa - GeimurinnVilhelm Anton Jónsson/ Sævar Helgi Bragasona 8 Dóta læknir hjálpar vinum sínumWalt Disney 9 Kort Aleksandra Mizielinscy/ Daniel Mizielinscy 10 Kafteinn ofurbrók og endurkomatúrbó 2000 Dav Pilkey
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.