Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.01.2016, Page 56
SUNNUDAGUR 31. JANÚAR 2016 Kattaeigendur kannast margir við þann vanda að kötturinn á heim- ilinu klárar ekki matinn sinn. Kisi lætur sér duga að narta í það sem er í miðri skálinni en snertir ekki það sem er næst brúnunum. Svo vælir kisi og mænir á eiganda sinn með ásökunarsvip eins hann sé að segja: „Á að svelta mig til bana, eftir öll skiptin sem ég leyfði þér að klóra mér á kollinum?“ Aðrir eru óhressir með þá iðju hjá kettinum að vippa matnum upp úr skálinni, og borða síðan af gólf- inu. Nú virðist komin skýring á þessu athæfi: í báðum tilvikum er ástæð- an sú að kötturinn þjáist af veiði- hárastreitu. Veiðhárin á köttum eru mjög næm fyrir þrýstingi og sumum köttum þykir einfaldlega mjög óþægilegt þegar veiðihárin strjúkast utan í barmana á þröngri matarskálinni. Lausnin er að bera matinn fram í grunnri og breiðri skál líkt og fyrirtækið Dr. Catsby (www.drcatsby.com) hefur sett á markað. Skálin er úr ryðfríu stáli og situr á gúmmímottu sem heldur skálinni á sínum stað. Nú þvælast veiði- hárin ekki fyrir og kisi getur tekið gleði sína á ný. ai@mbl.is Skálin er grunn og víð svo að ekki er þrýst á veiðihárin. NÝ TEGUND AF MATARSKÁL Þjáist kötturinn þinn af veiðihárastreitu? Ljósmynd / DrCatsby.com Kannski hafa mat- vandir kettir verið hafðir fyrir rangri sök. Þrettán ára piltur, Þröstur Árna- son, varð í lok janúar 1986 yngsti skákmeistari Reykjavíkur. Hann hlaut 9 vinninga á Skákþingi Reykjavíkur. Helsti keppinautur hans og jafnaldri, Hannes Hlífar Stefánsson, varð að sætta sig við jafntefli í lokaumferðinni, gegn Héðni Steingrímssyni, sem var að- eins ellefu ára. Hannes hlaut 8 og hálfan vinning á mótinu, eins og Arnaldur Loftsson en Héðinn 8 vinninga. „Skákþingið var sannarlega mót þessara pilta,“ sagði í frétt Morg- unblaðsins. Í fréttinni kom einnig fram að forsvarsmenn Reykjavík- urskákmótsins hefðu ákveðið að bjóða bæði Þresti og Hannesi á mótið en þeir voru á þessum tíma án skákstiga. GAMLA FRÉTTIN Þrettán ára skákmeistari Þröstur Árnason, þrettán ára, Héðinn Steingrímsson, ellefu ára, og Hannes Hlífar Stefánsson, þrettán ára. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Sigríður Margrét Jónsdóttir eigandi Litlu hönnunarbúðarinnar Sigríður Víðis Jónsdóttir kynningarstjóri UNICEF Sigríður Jónsdóttir doktor í efnafræðiSkeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Flottir sófar Þar sem gæði og hönnun fara saman Natuzzi Capriccio Model 2896 Lengd 195 cm. Áklæði ct.70. Verð 275.000,- ▲ Natuzzi Borghese Model 2826 Lengd 220 cm. Leður ct.15. Verð 515.000,- ▲ Natuzzi Quadro Model 2849 Lengd 200 cm. Leður Ct.10. Verð 475.000,- Lengd 167 cm. Leður Ct.10. Verð 435.000,- ▲ ▲ Natuzzi Duse Model 2829 Lengd 206 cm. Áklæði ct.83. Verð 399.000,- Natuzzi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.